Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Side 12
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 20118
og dýpt öndunar, mælt blóðþrýsting
og túlkað rannsóknarniðurstöður, svo
sem hjartalínurit eða lungnamynd, út frá
ástandi sýndarsjúklingsins hverju sinni.
Þá breytast lífeðlisfræði og einkenni
tölvustýrðra sýndarsjúklinga í samræmi
við aðgerðir eða aðgerðaleysi nemenda,
annaðhvort með því að vera forrituð eða
að leiðbeinandinn breytir þeim samkvæmt
reynslu af sambærilegum aðstæðum.
Viðbrögð og vandamál sýndarsjúklingsins
verða á þann hátt eins raunverleg og völ
er á. Einfalt dæmi um þetta flókna samspil
er verkjalyfjagjöf í æð sýndarsjúklings en
við það hægist á öndunartíðninni. Ef
skammturinn er stór hægist á hjartslætti
og blóðþrýstingur lækkar. Annað dæmi
er hægur hjartsláttur og gjöf á atrópíni en
um leið og sýndarsjúklingi er gefið lyfið
breytast öll lífeðilsfræðileg gildi líkt og um
raunverulegan sjúkling sé að ræða.
Tölvustýrðir sýndarsjúklingar eru útbúnir
með margvíslegum tækjabúnaði sem
býður upp á kennslu flókinna aðgerða
og inngripa. Slagæða-, miðbláæða- og
lungnaslagæðaleggir varpa upplýsingum
um lífeðlisfræðileg gildi sjúklingsins á
skjá. Rafbúnaður í bringu sýndarsjúklings
býður upp á rafstuð og rafvendingu með
hefðbundnu hjartastuðtæki. Brjóstkassi
sýndarsjúklinga þolir raunverulegt
hjartahnoð og varpar viðeigandi gildum
á skjá á meðan á hjartahnoði stendur.
Ef grunur er um þrýstingsloftbrjóst hjá
sýndarsjúklingi er hægt að setja nál í
annað millirifjabil við miðju viðbeins og
ef greiningin er rétt kemur loft út um
nálina. Svipuð tækni býður upp á að
draga vökva og blóð úr gollurshúsi ef
stungið er á réttan stað. Þá er hægt
að setja hefðbundið brjóstholsdren
í sýndarsjúklinginn sem loft, blóð eða
vökvi renna úr.
Framkvæmd hermináms
Í herminámi fer ekki fram kennsla í
hefðbundinni merkingu þess orðs og er
flæði þekkingar frábrugðið hefðbundnu
námi. Fyrirlestrar eru einhliða
kennsluaðferð þar sem kennari talar og
nemendur hlýða á. Í hátækniherminámi
eru nemendur á hinn bóginn virkir
þátttakendur, þurfa að standa á eigin
fótum og leysa vandamál með því að
beita eigin þekkingu og færni (Peteani,
2004). Lögð er áhersla á að tengja
saman orsakir og afleiðingar við inngrip
nemenda. Þótt lagt sé upp með að
nemendur takist sjálfir á við tilfellin fylgjast
leiðbeinendur með öllu sem fram fer og
geta þannig veitt leiðsögn og kennslu
samhliða íhlutun nemenda þar sem
herminám býður upp á þann möguleika
að kennslan sé stöðvuð tímabundið. Þá
er hægt að ræða um tilfellið og hvort
önnur úrræði séu í boði. Í kjölfarið er
hægt að halda tilfellinu áfram eða byrja
upp á nýtt og kanna aðra kosti varðandi
meðferð sýndarsjúklingsins. Ólíkt
alvörusjúklingum finnst sýndarsjúklingum
aldrei óþægilegt að óreyndir nemendur
annist þá. Óstyrkir og óreyndir nemendur
fá þannig tækifæri til að þjálfast aftur og
aftur uns færni er náð.
Í herminámi er litið á kennarann sem
leiðbeinenda sem skapar aðstæður
sem gera nemandanum kleift að öðlast
þroska eða færni á eigin forsendum.
Herminám reynir samtímis á mörg
svið þekkingar og færni við aðstæður
sem krefjast gjarnan samvinnu og
útsjónarsemi og reyna þannig á marga
hæfnisþætti. Í herminámi er lögð áhersla
á samþættingu þekkingar, verklegrar
færni og gagnrýninnar hugsunar (Rauen,
2001). Þar reynir á þekkingu nemenda í
líffærafræði, lífeðlisfræði og lyfjafræði auk
verklegrar færni, svo sem við líkamsmat
og annars konar hjúkrunarmeðferð. Í
herminámi æfa nemendur sig í að meta
ástand sýndarsjúklings og taka ákvörðun
um næstu skref. Þær ákvarðanir þurfa að
byggjast á upplýsingum sem nemendur
afla sjálfir. Ákvarðanir þurfa einnig að
taka til nýrra upplýsinga þar sem ástand
sýndarsjúklinga er síbreytilegt líkt og hjá
raunverulegum sjúklingum. Einnig þurfa
nemendur að meta áhrif inngripa með því
að endurmeta ástand sýndarsjúklingsins.
Hátækniherminám er með þessu móti
talið stuðla að þjálfun og beitingu
gagnrýninnar hugsunar hjá nemendum
þar sem viðbrögð sýndarsjúklings
ráðast fyrst og fremst af ákvarðanatöku
nemenda (Ravert, 2008). Þrátt fyrir að
margir fræðimenn innan hjúkrunar telji að
herminám muni auka gagnrýna hugsun
eru rannsóknir á því sviði skammt á veg
komnar (Rauen, 2001; Ravert, 2008).
Hefðbundið herminám skiptist í nokkra
þætti. Í upphafi er mikilvægt að kynna
aðstæður fyrir nemendum, hvar hlutir
eru geymdir og svo framvegis. Þá þurfa