Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Side 16

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Side 16
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 201112 Arndís Björk Huldudóttir og Sigurður Bogi Sævarsson, arndishuldu@gmail.com „Og er það ekki svo að allt sem maður gefur frá sér fær maður til baka?“ segir Erla Björk Sverrisdóttir. „ÞAÐ ER GOTT AÐ GEFA“ Heima er best veitir fjölbreytta aðstoð við aldraða, fatlaða eða sjúka einstaklinga til að búa heima og er þjónustan á forsendum hvers skjólstæðings um sig. Er þá kostað kapps að styðja við þarfir og óskir einstaklingsins. Hjúkrunin kom upp í hendurnar á mér Lengi man til lítilla stunda, eins og sagt er. Erla er gömul handboltakempa og þá lá beint við að verða íþróttakennari, eins og hún ætlaði sér. „Það var hins vegar einn daginn að hjúkrunin kom bókstaflega upp í hendurnar á mér. Mér var rétt umsóknareyðublað og ég sló til. Ég hef aldrei séð eftir því að hafa tekið hjúkrun fram yfir íþróttakennslu,“ segir Erla. Eftir útskrift frá Nýja hjúkrunarskólanum 1978 starfaði Erla bæði við heilsuvernd og á sjúkrahúsi og flutti til Færeyja 1980. „Það kom til þannig að sambýlismanni mínum þá bauðst staða sem þjálfari hjá fótboltaliði og ég þjálfaði handboltaliðið. Sá tími, sem við vorum í Færeyjum, var góður og er ljúfur í minningunni. Það kom mér til dæmis á óvart hvað ég var fljót að ná tungumálinu,“ segir Erla en hún vann á hjúkrunarheimilinu Ellis- og avlamisheimid í Sandavogi og segir aðstæður þar hafi verið þá svipaðar og gerðust heima. „Það sem stendur upp úr er hve vinalegir Færeyingar eru. Þarna var góður starfs- andi og ofsalega gaman að vera.“ Erla Björk Sverrisdóttir á sem hjúkrunar fræðingur fjöl þættan feril að baki. Hún hefur starfað á flestum sviðum innan spítalanna, til dæmis við öldrunarhjúkrun, geð hjúkrun og bráðahjúkrun, og hún hefur einnig mikla reynslu af stjórnun. Nú starfar hún sem þjónustustjóri hjá Heima er best, dótturfyrirtæki Öryggis- miðstöðvarinnar. Góður tími í Svíþjóð Erla starfaði síðan um tíma á sjúkrahúsum hér heima, bæði á Borgarspítalanum, Akureyri og á Landakoti, uns fjölskyldan fluttist til Lundar í Svíþjóð. „Við bjuggum í Södra Sandby, smábæ fyrir utan Lund og áttum þar góða nágranna sem við erum enn í tengslum við. Börnin þrjú eignuðust líka góða vini sem þau halda enn tryggð við. Mér fannst það aldrei vera svo að tengslin við Ísland væru að rofna. Þarna voru mjög margir Íslendingar, flestir í námi og fólk talaði almennt um það að eftir fjögur til fimm ár þá þyrfti að spá alvarlega í það hvort maður ætlaði að fara heim aftur eða setjast að. Ísland togaði alltaf þó það færi ofsalega vel um okkur enda vorum við helmingi lengur en við ætluðum upphaflega, eða í alls átta ár.“ Í Lundi var Erla í diplómanámi í stjórnun í heilbrigðisþjónustu og nú í janúar lauk

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.