Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Page 22

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Page 22
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 201118 Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, sighuld@landspitali.is Sjálfræði aldraðra: Hindranir í umönnun Í 4. tölublaði Tímarits hjúkrunarfræðinga 2010 birtist grein um sjálfræði aldraðra og var þar fjallað um sjálfræði og búsetu. Hér heldur Sigrún Huld Þorgrímsdóttir umræðunni áfram, nú með áherslu á frelsisskerðingu og valdbeitingu í öldrunarþjónustu. Í þessari grein er sjónum beint að framkvæmd umönnunar á stofnunum fyrir aldraða, hvað varðar sjálfræði þeirra. Rætt er um skerðandi aðgerðir, svo sem læsingar, eftirlit, fjötranotkun, svo og valdbeitingu í umönnun. Eins og í fyrri grein er sérstaklega skoðað hvaða leiðbeiningar er að finna í íslenskum lögum og reglugerðum um þessi erfiðu og viðkvæmu málefni. Til samanburðar er dönsk löggjöf skoðuð en henni kynntist ég í námsdvöl í Kaupmannahöfn haustið 2009. Skerðing á ferðafrelsi Læstar útidyr eru algeng öryggisráðstöfun á stofnunum, bæði fyrir aldraða og fleiri skjólstæðinga sem ekki eru taldir færir um að sjá fótum sínum forráð. Á fyrri tímum, þar sem forræðishyggja réð ferðinni í þjónustu við slíka hópa, var þetta ekki sérstakt áhyggjuefni. Ég starfaði sjálf í Danmörku á árunum 1989-91, þá ungur hjúkrunarfræðingur. Þá var verið að setja lög í Danmörku sem bönnuðu læsingar og fjötra. Þetta þótti Íslendingnum unga ákaflega einkennilegt og sá ekki hvernig ætti að vera unnt að framfylgja slíkum lögum, einkum því að ekki mætti hindra fólk í að fara leiðar sinnar – þegar augljóslega var um að ræða einstaklinga sem hvorki voru áttaðir á stað og stund né huguðu að viðeigandi klæðaburði eða virtust færir um að gæta sín á hættum í umhverfinu. Hér takast á sjónarmiðin um að vinna að heill skjólstæðings (beneficence) og að virða sjálfræði hans. Nú, meira en 20 árum síðar, hafa þessi lög fengið mikla reynslu og slípun í Danmörku (sbr. Lov om social service, 2007) og mikil umræða átt sér stað víða á Vesturlöndum um þessi mál. Einnig hafa margir sýnt fram á skaðleg áhrif hindrana á færni, geðræna líðan og atferli skjólstæðinga (Namazi og Johnson, 1992; Goodall, 2006). Því hefur í auknum mæli verið leitað leiða til að draga úr hvers konar hindrunum. Læsingar Á Íslandi er algengast að deildir, sem ætlaðar eru einstaklingum með heilabilun, eru læstar með ýmiss konar aðferðum. Algengastir eru kóðalásar og er þá hægt að opna deildina utan frá án kóða. En einnig er til að notaðir séu lyklar og þarf þá líka að opna fyrir gestum sem koma utan að. Um þessa framkvæmd eru lög og reglugerðir afar fáorð. Í fyrri grein var Sigrún Huld Þorgrímsdóttir er hjúkrunarfræðingur, MSc, og hefur starfað við öldrunarhjúkrun frá 1999. Hún starfar nú á heilabilunardeild Landspítala á Landakoti.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.