Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Síða 31

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Síða 31
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 2011 27 Næstu skref Samkvæmt upplýsingum er nú verið að leggja lokahönd á mat á heilbrigðisáætlun til 2010 í velferðarráðuneytinu. Eins og fyrr segir er einnig unnið að nýrri heilbrigðisáætlun. Tíð ráðherraskipti og nýlegar skipulagsbreytingar hjá velferðarráðuneytinu, landlækni og Lýðheilsu stöð hafa vísast til seinkað þeirri vinnu. Guðrún Þórey Gunnarsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu, segir að næsta áætlun verði með svipuðu sniði. Þó verða fleiri markmið og mun meira lagt í að útfæra aðgerðaáætlanir í smáatriðum. Fundað verður með umsagnaraðilum með vorinu. En hvað ætti þá að standa í þeirri áætlun að mati hjúkrunarfræðinga? Sérfræðingar í hinum ýmsu greinum hjúkrunar, sem Tímarit hjúkrunarfræðinga hefur talað við, hafa lítið kynnt sér heilbrigðisáætlunina og enn sem komið er hafa fáir velt fyrir sér hver markmiðin fyrir 2020 ættu að vera. Meðal þeirra sem hafa athugað þetta er Sólfríður Guðmundsdóttir. Hún fluttist fyrir nokkrum árum heim frá Bandaríkjunum þar sem hún lauk doktorsnámi í stjórnun lýðheilsu. Sólfríður segir að markmiðin í áætluninni til 2010 hafi verið óskalisti frekar en markmið. Lítið var sagt um hvernig ætti að ná þeim og hver bæri ábyrgðina. Í stefnu til 2020 þurfi að útfæra þetta betur. Að auki finnst Sólfríði að breyta þurfi sjúkdómahugsuninni í áætluninni. Taka þurfi á atriðum sem tengjast ekki beint einum sjúkdómi. Dæmi um það eru samfella í þjónustu, offita, hreyfingarleysi og aukinn fjöldi fólks með langvinna sjúkdóma. Þá þurfi að leggja miklu meira áherslu á fræðslu og stuðning handa þeim sem þurfa og vilja breyta um lífsstíl. „Ef við gefum okkur að 20% Íslendinga hafa tileinkað sér heilbrigðan lífsmáta þá væri til mikils d) Yfir 50% fólks 65 ára og eldra hafi að minnsta kosti 20 tennur í munni. (Árið 1990 höfðu 41,6% á aldrinum 45-54 ára 10 eða fleiri tennur í gómi og 1995 var hlutfallið 58,6%.) 4. Geðheilbrigði a) Sjálfsvígum fækki um 15%. (Markmiðið lækkað úr 25% 2001. Á árunum 1991-1995 létust 10,8 af hverjum 100.000 íbúum og var talan óbreytt 10 árum seinna.) b) Geðsjúkdómum fækki um 10%. (Árið 1994 var heildaralgengi geðsjúkdóma 22%.) 5. Hjarta- og heilavernd a) Dauðsföllum fækki vegna hjarta- og æðasjúkdóma hjá fólki á aldrinum 25-74 ára, hjá körlum um 30% og hjá konum um 20%. (Markmiðunum frá 2001 hafði verið náð en miðað var þá við árin 1991-1995. Á árunum 2001-2005 dóu árlega að meðaltali 117 af hverjum 100.000 körlum úr hjarta- og æðasjúkdómum en 39 af hverjum 100.000 konum.) b) Heilablóðföllum fækki um 30%. (Árin 1991-1995 var árleg dánartíðni karla 44,1 og kvenna 30,4 af hverjum 100.000 vegna heilablóðfalla.) c) Hamlað verði gegn frekari fjölgun fólks 20 ára og eldra sem er yfir kjörþyngd eða of feitt. (Nýtt markmið frá 2007. Árið 2002 töldust 56% fólks vera yfir kjörþyngd og 16% of feit.) Í heilbrigðisáætlun til ársins 2010 er að finna yfirlit um 18 markmið í 7 liðum. Markmiðin voru upphaflega sett 2001 en endurskoðuð 2007 og þá bættust einnig 5 markmið við. 6. Krabbameinsvarnir a) Dauðsföllum vegna krabbameina hjá fólki yngra en 75 ára fækki um 10%. (Nýtt viðmiðunartímabil þar sem markmiðinu er svo gott sem náð miðað við upphaflega tímabilið 1991-1995. Á árunum 2001-2005 létust árlega að meðaltali 96 af hverjum 100.000 körlum yngri en 75 ára og 95 af hverjum 100.000 konum.) b) Dánartíðni vegna krabbameins í blöðruhálskirtli hjá körlum yngri en 75 ára lækki um 30%. (Dánartíðni 2001-2005 var 10,3 af hverjum 100.000.) c) Dánartíðni vegna krabbameins í brjósti hjá konum yngri en 75 ára lækki um 30%. (Dánarhlutfall 2001-2005 var 16,6.) d) Dregið verði úr notkun ljósabekka um 50%. (2005 notuðu 39% fólks 12-75 ára ljósabekki.) Markmiðum b-d var öllum bætt við 2007. 7. Slysavarnir a) Slysum fækki um 25%. (1997 slösuðust um 60.000 manns.) b) Dauðaslysum fækki um 25%. (Á upphaflega viðmiðunar- tímabilinu 1991-1995 létust árlega að meðaltali 42 af hverjum 100.000 körlum af völdum slysa og 21 af hverjum 100.000 konum. 2001-2005 voru tölurnar 29 og 18. Markmiðinu hefur því þegar verið náð. Nýtt viðmiðunartímabil er 1996-2000 en þá létust 30 karlar og 13 konur af hverjum 100.000.) að vinna að hver þeirra myndi smita fimm manns. Setja þarf fjármagn og vinnu í að koma þessu af stað,“ segir Sólfríður. En til þess þurfi allt stjórnkerfið í heilbrigðisgeiranum að breytast. Forgangsröðuninni þurfi að breyta og veita þurfi talsvert meiri peningum í forvarnir. Í framhaldinu þurfi stærri hluti af vinnutíma heilbrigðisstarfsmanna að fara í forvarnastarf. Ekki er auðvelt að áætla hvað er lagt í forvarnir nú en sem dæmi má nefna að framlög til Lýðheilsustofnunar eru 0,16% af fjárlögum velferðarráðuneytisins. Forvarnir eru úrslitaatriði ef Íslendingar vilja stöðva framtíðarútgjaldaaukningu í heilbrigðismálum. Því er mikilvægt fyrir hjúkrunarfræðinga eins og aðra að láta sig varða stefnu heilbrigðisyfirvalda. Fylgst verður áfram með gerð heilbrigðisáætlunar og þátttöku hjúkrunarfræðinga í því starfi.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.