Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Side 38

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Side 38
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 201134 Samkvæmt 21. gr. laga BHM getur félag, sem sagt hefur sig löglega úr BHM, gert kröfu um hlutdeild í eignamyndun BHM þann tíma sem félagið var í BHM. Í greininni er sérstaklega tilgreint að vinnudeilusjóður og orlofssjóður BHM skuli undanskildir slíku uppgjöri. Ekki var ágreiningur um að FÍH ætti rétt til hlutdeildar í almennum félagssjóði BHM en hins vegar kom upp ágreiningur um hvort eignir sjúkrasjóðs BHM og styrktarsjóðs BHM væru hluti eigna BHM í skilningi ákvæðis 21. greinar laga BHM. FÍH taldi að félagið ætti tilkall til hlutdeildar í eignamyndun þessara tveggja sjóða. Þeirri kröfu FÍH var hins vegar vísað á bug af hálfu stjórnar BHM og stjórna sjóðanna sem héldu því fram að sjóðirnir væru hvorki eign BHM, einstakra félaga innan bandalagsins né einstakra félagsmanna þeirra. Rétt er að ítreka að því var strax hafnað af hálfu BHM og stjórna sjóðanna að FÍH gæti áfram átt aðild að sjóðunum eftir úrsögn félagsins úr BHM. Í samræmi við ákvæði 21. gr. laga BHM krafðist FÍH þess að úr þessum ágreiningi yrði leyst fyrir gerðardómi. FÍH tilnefndi einn gerðarmann, BHM annan og þeir tveir gerðarmenn komu sér síðan saman um formann gerðardómsins. FÍH var sóknaraðili fyrir dóminum en BHM varnaraðili. Málið var fyrst tekið til meðferðar fyrir fullskipuðum gerðardómi 26. ágúst 2010. Meðan málið var rekið fyrir gerðar- dóminum komust FÍH og BHM að samkomulagi um uppgjör hlutdeildar í almennum félagssjóði BHM. Samkvæmt samkomulaginu skyldi hlutdeild FÍH nema 15.122.935 kr. og hefur sú fjárhæð þegar verið greidd. Í kjölfar þessa lýstu aðilar því yfir að málið snerist eingöngu um hlutdeild FÍH í sjúkrasjóði BHM og styrktarsjóði BHM. Málið var flutt munnlega fyrir gerðardóminum 7. desember 2010. Gerðardómurinn kvað upp sinn dóm 17. desember 2010. Sjónarmið FÍH Í málatilbúnaði sínum benti FÍH á að ef ekki yrði fallist á kröfur félagsins um að eignir sjúkrasjóðs BHM og styrktarsjóðs BHM skyldu falla undir fjárhagslegt uppgjör samkvæmt 21. gr. laga BHM, yrði niðurstaðan sú að aðrir en félags- menn FÍH kæmu til með að auðgast á kostnað félagsmanna FÍH. Þannig hafi launagreiðendur hjúkrunarfræðinga greitt í þessa sjóði samkvæmt kjarasamningum og hafi það verið hluti af starfskjörum hjúkrunarfræðinganna. Þetta sjóðafyrir- komu lag hafi komist á fyrir tilstilli aðila vinnumarkaðarins vegna þess að sjóðum, sambærilegum sjúkrasjóði BHM og styrktarsjóði BHM, hafi verið ætlað að tryggja launþegum ákveðin réttindi. Um gegnumstreymissjóði væri að ræða, það er þeir fjármunir, sem launagreiðendur greiddu í sjóðina, áttu að fara í styrkveitingar. Fyrstu árin í rekstri sjóðanna var hins vegar hluta innborgana haldið Elsa B. Friðfinnsdóttir, elsa@hjukrun.is ÚRSKURÐUR GERÐARDÓMS Í MÁLI FÍH GEGN BHM Skömmu fyrir jól kvað sérskipaður gerðardómur upp úrskurð í máli Félags íslenskra hjúkrunar fræð- inga (FÍH) gegn Banda lagi háskólamanna (BHM). Gerðardómurinn hafði verið skipaður til að leysa úr ágreiningi FÍH og BHM um hvaða eignir skyldu koma til uppgjörs eftir úrsögn FÍH úr BHM um áramótin 2009-2010.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.