Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Side 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Side 39
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 2011 35 ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta eftir til að mynda höfuðstól sjóðanna. Taldi FÍH að uppsöfnuð og áunnin réttindi heillar starfsstéttar yrðu ekki þurrkuð út með einu pennastriki og síðan nýtt til þess að niðurgreiða styrkveitingar til annarra starfsstétta sem eftir væru innan BHM. Í því fælist að mati FÍH augljóslega óréttmæt auðgun. Ljóst var að eftir höfnun stjórna sjóðanna á aðild hjúkrunarfræðinga að sjóðunum þyrfti FÍH að tryggja hjúkrunarfræðingum umsamin starfskjör, það er rétt til að njóta styrkja úr sjóðum sambærilegum sjúkrasjóði BHM og styrktarsjóði BHM. Hlutdeild FÍH í höfuðstól styrktarsjóðs og sjúkrasjóðs BHM yrði höfuðstóll sambærilegra sjóða innan FÍH. Sjónarmið BHM BHM krafðist frávísunar í málinu en til vara að bandalagið yrði sýknað af kröfum FÍH vegna aðildarskorts. BHM væri ekki réttur aðili að málinu heldur væru það sjóðirnir, og kröfum FÍH væri ranglega beint að BHM þar sem BHM væri ekki bært til þess að ráðstafa eignum sjúkrasjóðs BHM og styrktarsjóðs BHM sem ekki ættu aðild að gerðardómsmálinu. Jafnframt byggði BHM á því að sjúkrasjóður BHM og styrktarsjóður BHM væru aðildarhæfir hvor fyrir sig og því hafi FÍH átt að beina kröfum sínum að þeim. Sjóðirnir séu báðir lögaðilar og skráðir sem sjálfseignarstofnanir. Þeir hafi hvor um sig eigin reglur og sérstaka stjórn, kennitölu og sjálfstæðan fjárhag sem BHM hafi engin afskipti af eða áhrif á. Niðurstaða gerðardómsins Gerðardómurinn taldi það falla undir valdsvið sitt að ákvarða hvort sjúkrasjóður BHM og styrktarsjóður BHM teldust til eigna BHM í skilningi 1. mgr. 21. gr. laga BHM við fjárhagslegt uppgjör vegna úrsagnar FÍH úr BHM. Gerðardómurinn taldi FÍH eiga brýna og lögvarða hagsmuni af því að fá úr því skorið hvort FÍH ætti kröfu til hlutdeildar í eignamyndun sjóðanna vegna þess tímabils sem FÍH átti aðild að BHM. Þannig taldi gerðardómurinn að kröfugerð FÍH væri raunhæf og fæli ekki í sér lögspurningu og því væru engin tilefni til þess að fallast á kröfu BHM um frávísun þess. Í dóminum segir síðan meðal annars: „Sjúkrasjóður og styrktarsjóður varnaraðila eru sjóðir um afmarkaðan og ófjárhagslegan tilgang og stunda ekki atvinnurekstur. Þeim er ætlað að veita sjóðsfélögum félagslegan stuðning þegar á þarf að halda vegna veikinda, andláts, starfsloka eða annarra óvæntra áfalla. Þeir hafa báðir orðið til fyrir tilverknað kjarasamninga og er framlag atvinnurekenda í sjóðina hluti af umsömdum kjörum sjóðsfélaga, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda ... Sjóðirnir eru því í eðli sínu samtryggingarsjóðir sem hluti af stærri heild er myndar starfskjör viðkomandi stéttar. Hinir umdeildu sjóðir BHM hafa sérstakan og sjálfstæðan fjárhag. BHM veitir sjóðunum þjónustu á skrifstofu sinni gegn ákveðnu endurgjaldi. Ársreikningar þeirra, sem sæta skulu endurskoðun af hálfu annarra endurskoðenda en þeirra sem annast endurskoðun og gerð ársreikninga fyrir varnaraðila, skulu lagðir fyrir ársfundi fulltrúaráða sjóðanna en þeir fara með málefni þeirra ásamt sérstaklega kjörnum sjóðsstjórnum. Ársreikningarnir skulu jafnframt lagðir fram á aðalfundi varnaraðila en einungis til kynningar. Í ársreikningi varnaraðila sjálfs gætir ekki áhrifa sjóðanna í efnahags- og rekstrarreikningi. Sjóðirnir eru þannig sérstakar fjárhagslegar einingar innan vébanda BHM. Fram á það hefur ekki verið sýnt að þessir sjóðir geti ekki átt réttindi og borið skyldur að landslögum og þannig verið löghæfir í skilningi 1. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991. Að öllu þessu virtu telur gerðardómurinn að sjúkrasjóður og styrktarsjóður varnaraðila séu ekki eign hans í skilningi eignarréttar. Sóknaraðili getur því ekki átt kröfu til hlutdeildar í eignamyndun sjóðanna á ákveðnu tímabili á grundvelli ákvæðis í 21. gr. laga varnaraðila um eignamyndun hans sjálfs. Ber þannig að sýkna varnaraðila af kröfum sóknaraðila.“ Næstu skref Stjórn FÍH hefur fjallað um niðurstöðu gerðardómsins á tveimur fundum í janúar. Lögfræðingar FÍH í málinu komu á fund stjórnarinnar til ráðgjafar. Stjórnin hefur falið þeim að undirbúa næstu skref í málinu með það að markmiði að tryggja rekstur þeirra styrktar- og sjúkrasjóða sem FÍH hefur nú komið á fót. Elsa B. Friðfinnsdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.