Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Side 54

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Side 54
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 201150 Á tímum fjárskorts og styttri legutíma aðgerðasjúklinga er hætt við að aðrir þættir hjúkrunarþjónustu en þeir sem lúta að líkamlegum þörfum víki. Í nokkrum íslenskum rannsóknum hafa sjúklingar verið spurðir hvort þeir séu ánægðir með upplýsingar sem þeir fengu meðan á sjúkrahúsdvöl stóð og benda svörin yfirleitt til þess að sjúklingar séu ánægðir (Sveinsdóttir og Gunnlaugsdóttir, 1996; Þórdís K. Þorsteinsdóttir, 2006; Þórgunnur Jóhannsdóttir og Margrét M. Arnardóttir, 2005). Hugtakið sjúklingaánægja er þó vandmeðfarið þar sem um huglægt og oft óljóst fyrirbæri er að ræða (Tishelman og Sachs, 1992; Wagner og Bear, 2009). Erfitt hefur reynst að aðgreina mælingar á heildaránægju sjúklinga með hjúkrunarþjónustuna frá ánægju þeirra með einstaka þætti þjónustunnar (Sjöling o.fl., 2003). Þrátt fyrir þetta hefur sjúklingaánægja verið viðfangsefni fjölmargra rannsókna og það endurspeglar hversu mikilvægt þykir að leita upplýsinga hjá sjúklingum sjálfum um gæði þjónustu og eru hugtökin ánægja og gæði nú nær samofin (Wagner og Bear, 2009). Þannig er talið mikilvægt að leita til sjúklinga þegar skipuleggja á nýja meðferð eða meta hjúkrunarþjónustu sem þegar er til staðar, enda þurfa væntingar og álit sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks alls ekki að fara saman (Dozier o.fl., 2001). Í mörgum þessara rannsókna koma fram tengsl ánægju sjúklinga með veitta þjónustu og sjúklingafræðslu og enn fremur hafa fræðsla og upplýsingar áhrif á mat skurðsjúklinga á gæðum hjúkrunar (Krupat o.fl., 2000). Í hugtakagreiningu Wagner og Bear (2009) á ánægju sjúklinga með hjúkrunarþjónustu eru upplýsingar, sem sjúklingum eru veittar um heilsufar sitt, eitt þeirra lykilatriða sem stuðla að aukinni ánægju sjúklinga. Ánægja sjúklinga með veitta þjónustu gefur vísbendingar um hvar úrbóta er þörf en jafnframt hverju er vel sinnt (Tishelman og Sachs, 1992). Hér verður greint frá rannsókn sem gerð var á Landspítala árið 2007 í þeim tilgangi að lýsa fræðslu sem skurðsjúklingar á skurðdeildum Landspítala segjast fá í sjúkrahúslegunni og heima fjórum vikum síðar og skoða þætti sem hafa áhrif á ánægju þeirra með fræðsluna. Fræðsla skurðsjúklinga Sjúklingafræðsla hvílir á þeirri hugmyndafræði að þekking og skilningur á eigin veikindum, bataferli og viðhaldi heilbrigðis sé til hagsbóta fyrir einstaklinginn, fjölskyldu hans og þjóðfélagið allt (Redman, 2007). Skurðsjúklingar virðast leita upplýsinga til að aðlagast betur aðstæðum sem gera þá óvissa og eftir því sem óvissan er meiri eykst þörfin fyrir upplýsingar (Galloway og Graydon, 1996). Hér á eftir verður gerð stuttlega grein fyrir þremur þáttum sjúklingafræðslu: ávinningi fyrir sjúklinga og samfélag, þörfum skurðsjúklinga við útskrift og formi fræðslunnar. Ávinningur sjúklingafræðslu fyrir sjúkling, fjölskyldu og samfélag Rannsóknir á fræðslu skurðsjúklinga benda til margháttaðs ávinnings hennar, svo sem aukinnar ánægju með meðferð, minni verkja og kvíða, færri fylgikvilla, aukins sjálfstæðis og sjálfsbjargargetu, aukinnar meðferðarheldni og bættrar aðlögunar (Bastable, 2006; Blay og Donoghue, 2005; Cebeci og Celik, 2008; Hodginson o.fl., 2000; Lin og Wang, 2005; Sjöling o.fl., 2003; Suhonen og Leino-Kilpi, 2006). Þá virðist sjúklingafræðsla og mikilvæg fyrir fjölskylduna þar sem þeir umönnunaraðilar, sem eru viðstaddir útskriftarfræðslu, eru síður kvíðnir og ánægðari, og fá sjúklingarnir færri heilsutengd vandamál eftir útskrift en ella (Driscoll, 2000). Samfélagslegur ávinningur fræðslunnar felst í skemmri sjúkrahúsdvöl (Devine, 1992; Suhonen og Leino-Kilpi, 2006) en einnig færri og jafnvel skemmri endurinnlögnum (Naylor og McCauley, 1999). Þá virðist óvæntum endurkomum til heilbrigðisstofnana vegna vandamála eftir aðgerðir fækka (Williams, 2008). Getur það skýrst af því að sjúklingar, sem fá sértæka útskriftarfræðslu, finna fyrir færri vandamálum eftir útskrift (Cebeci og Celik, 2008). Fræðsluþarfir skurðsjúklinga við útskrift Niðurstöður margra rannsókna sýna að sérstök útskriftarfræðsla hefur jákvæð áhrif. Í yfirlitsgrein um fræðsluþarfir skurðsjúklinga við útskrift reyndust þær helstu vera: umhirða skurðsársins, verkir og önnur einkenni, virkni og hreyfifærni og upplýsingar um mataræði, útskilnað, vinnu, endurkomu, eftirlit með aukaverkunum og lífsgæði (Pieper o.fl., 2006). Niðurstöður annarrar fræðilegrar úttektar á upplýsingum, sem skurðsjúklingar fá, eru sambærilegar niðurstöðum Pieper og félaga en gefa jafnframt til kynna að þarfirnar eru mismunandi frá einum tíma til annars (Suhonen og Leino-Kilpi, 2006). Ekki er hægt að gera ráð fyrir að fræðsluþarfir sjúklinga séu fullkomlega uppfylltar við útskrift. Til dæmis nægði ekki ítarleg munnleg og skrifleg útskriftarfræðsla sjúklingum, sem gengust undir blöðruhálskirtilsbrottnám, til að gera þá fullfæra um að ráða við fylgikvilla aðgerðar (Burt o.fl., 2005). Samhljóða ofangreindu voru niðurstöður rannsóknar á fræðsluþörfum 148 eldri aðgerðasjúklinga sem, þrátt fyrir góða útskriftarfræðslu, höfðu áfram umfangsmiklar fræðsluþarfir tengdar sjálfsumönnun og einkennameðferð auk þarfa fyrir samræður vegna tilfinningalegra viðbragða sinna (Hughes o.fl., 2000). Form og tilhögun sjúklingafræðslu Athygli rannsakenda hefur gjarnan beinst að því að skoða hvaða form og tilhögun fræðslu nýtist sjúklingum best, svo sem hóp- eða einstaklingsfræðsla, munnleg fræðsla, bæklingar, myndbönd eða netfræðsla. Undanfarið hefur til dæmis fjölgað rannsóknum sem draga fram mikilvægi einstaklingshæfðrar fræðslu og virðist slík fræðsla leiða í ljós betri andlega líðan þeirra sjúklinga sem slíka fræðslu hljóta (Sørlie o.fl., 2006; McMurray o.fl., 2007). Að auki virðist þetta fræðsluform draga úr tíðni fylgikvilla eftir aðgerð og geta orðið til þess að sjúklingar muni frekar fræðsluna og þurfi síður að leita frekari upplýsinga um meðferð einkenna (Blay og Donoghue, 2005). Þannig virðist fræðsla, sem er einstaklingsmiðuð hvað varðar innihald og tilhögun, vera árangursríkari hvað heilsufar og nám snertir (Fredericks o.fl., 2010). Tímasetning fræðslu skiptir einnig máli þegar horft er til ánægju sjúklinga (Hodginson o.fl., 2000) en gæði samskipta heilbrigðisstarfsfólks við sjúkling virðast jafnframt eitt af því sem miklu skiptir um heildaránægju sjúklinga með meðferð og fræðslu (Sørlie o.fl., 2000).

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.