Morgunblaðið - 17.09.2015, Síða 10

Morgunblaðið - 17.09.2015, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2015 Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Full búð af flottum flísum Hjá Parka færðu flottar flísar í hæsta gæðaflokki frá þekktum ítölskum framleiðendum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Skólastarfið í Tjarnarskóla ermeð svolítið öðrum brag envenjulega þessa dagana.Þrjátíu gestir, 16 nemendur og 14 kennarar frá fimm löndum, eru í heimsókn. Þeir eru frá Finnlandi, Ítalíu, Grikklandi, Spáni og Slóveníu. Þótt hefðbundið skólastarf sitji kannski á hakanum þar til eftir helgi, er tímanum með gestunum fjarri því kastað á glæ að mati kennara skól- ans. Enda þykir fátt betur til þess fallið að mennta unglingana en að kynna þá fyrir fólki frá öðrum lönd- um, menningu þess og sögu. Heimsóknin er liður í Erasmus- verkefninu Involve me and I learn, eða Leyfðu mér að vera með og ég læri, sem Tjarnarskóli sótti um styrk til að taka þátt í. Um leið og styrk- urinn var í hendi hófst undir- búningur af fullum krafti. Umsjón verkefnisins féll að miklu leyti í hlut kennaranna Þóris Andra Karlssonar og Birnu Dísar Björnsdóttur. Krydd í skólastarfið „Mér líður eins og ég sé kominn í túristabransann,“ segir Þórir Andri í gríni, nýkominn frá að sækja hóp- ana frá Grikklandi og Slóveníu á flugvöllinn. Ítalirnir voru þegar komnir í hús og von var á gestunum frá Finnlandi og Spáni síðar um dag- inn. Þóri Andra finnst gestagang- urinn gott krydd í skólalífið. Kollegar hans og nemendur Tjarnarskóla eru sama sinnis. Öll hafa lagt sitt af mörkum til að gera dvöl gestanna sem ánægjulegasta og hafa foreldrar nemendanna ekki síð- ur lagt sig í framkróka við að skipu- leggja alls konar skemmtilegheit fyr- ir hina erlendu gesti. Sund- og skautaferðir og stuttar ferðir í ná- grenni borgarinnar eru á döfinni, til dæmis í Bláa lónið, og þá verða þeir á vaktinni ef norðurljósin láta á sér kræla. „Gott hópefli fyrir foreldrana sem og okkur hin,“ segir Þórir Andri. Erasmusverkefnið gengur út á gagnkvæmar heimsóknir og verkefni sem stuðla að kynnum milli unglinga í þátttökulöndunum. Til að koma verkefninu af stað hittust kennarar frá löndunum fimm til skrafs og Fjölþjóðlegur gestagangur Tjarnarskóli tekur þátt í Erasmusverkefninu Involve me and I learn, sem gengur út á gagnkvæmar heimsóknir og verkefni sem stuðla að kynnum milli unglinga í þátttökulöndunum. Núna eru nemendur og kennarar skólans í gestgjafahlutverki. Kennararfundur Kennarar bera saman bækur sínar og leggja línurnar. Bílaleikur Nemendurnir fundu sér margt til skemmtunar í Gufunesbæ. Kremfress er karlmaður sem notar krem, rafbarbari er tölvuþrjótur og barsvar spurningakeppni sem fer fram á bar, samkvæmt Slangur- orðabókinni, gagnvirku safni slang- urorða á netinu sem opið er al- menningi. Öllum er frjálst að skrá slangurorð eða nýyrði sem þeir nota eða hafa heyrt. Einnig má setja athugasemdir eða skýringar við orð sem þegar er búið að skrá. Slangurorðabókin hefur verið á netinu frá árinu 2010. Ekki er ólík- legt að margir hafi slegið sér upp á mannamótum með því að hafa á takteinum ýmis snjöll orð sem þar er að finna. Eða sett upp öndlit þegar þeir taka sjálfur. Til hægð- arauka fyrir notendur er slangrinu skipt í flokka; fjölmiðlar, mann- gerðir, matur og útlit að ógleymd- um dónalega flokknum. Nýjasta skráða slangrið er derra fyrir der- húfu. Undir liðnum óyfirfarin orð frá lesendum eru líka ýmis furðu- orð. Kannast lesendur við orðið dalasýslulegur? Ritstjórar slangurorðabókarinnar eru íslenskufræðingarnir Einar Björn Magnússon og Guðlaugur Jón Árnason. Vefsíðan www.slangur.snara.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Rafbarbari Þeir sem nýta sér tölvukunnáttu til að brjótast inn í tölvukerfi hafa löngum verið kallaðir tölvuþrjótar eða hakkarar. Rafbarbari er þó ekki út í hött. Öndlit, kremfress og rafbarbari Hvað er hamingja? Hver er geð- veikur og hver ekki? Hvernig er að upplifa jaðar skynsviðsins? Hvað skiptir máli í því stutta ferðalagi sem lífið er? Þessar spurningar og raunar lífið sjálft eru viðfangsefni á dagskrá sem kallast Hamingjan og úlfurinn og hefst kl. 20 í kvöld í Salnum – tónlistarhúsi Kópavogs. Jónas Sigurðsson tónlist- armaður, oft kenndur við Ritvélar framtíðarinnar, ræðir um og leikur tónlist sína og Héðinn Unn- steinsson, höfundur sögunnar „Vertu úlfur“, leggur út af lífsorð- unum fjórtán, einföldum kennisetn- ingum sem hjálpa honum á hverj- um degi, auk þess að fjalla um lífsreynslu sína og hamskipti. Hamingjan og úlfurinn er nokkurs konar samtal við áheyrendur, en þeir félagar hafa undanfarið átt slíkt samtal á ferðum sínum um landið. Dagskráin Hamingjan og úlf- urinn hefur fengið góðar viðtökur, meðal annars verið lýst sem upp- lifun sem enginn mætti missa af; „óviðjafnanlega inspírerandi, kraftmiklu og hrífandi stefnumóti með tveimur einstaklega heillandi og sönnum karlmönnum“. Samtal um hamingju í Salnum – tónlistarhúsi Kópavogs Hvað skiptir máli í því stutta ferðalagi sem lífið er? Morgunblaðið/Árni Sæberg Hamingjan og úlfurinn Jónas Sigurðsson tónlistarmaður og Héðinn Unn- steinsson, höfundur Vertu úlfur, fjalla um allt milli himins og jarðar. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Búlgarski félagsfræðingurinn Shaban Darakchi heldur hádegisfyrirlest- urinn Kyngervi og kynhneigð í Búlg- aríu eftir fall Sovétríkjanna í fyrir- lestrarsal Þjóðminjasafnsins kl. 12 í dag. Sósíalismi í Austur-Evrópu hefur haft mikil áhrif á stóðu kynjanna og viðhorf til kynhneigðar innan aust- antjaldssamfélaganna. Í fyrirlestr- inum verður m.a. skoðað hvernig pólitísk fortíð og mótun kynhlutverka og kynhegðunar á tímum sósíalisma í Búlgaríu hafði áhrif á breytingar á kynhlutverkum innan Evrópusam- bandsins og í alþjóðlegu samhengi. Darakchi er með doktorspróf í kynjafræði frá South-Western Uni- versity – Neofit Rilski í Búlgaríu og starfar sem rannsakandi við búlg- örsku vísindaakademíuna. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku, er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Hádegisfyrirlestur RIKK í Þjóðminjasafni Íslands Morgunblaðið/Brynjar Gauti Búlgaría Kynhlutverk og kynhegðun í Búlgaríu í brennidepli í fyrirlestrinum. Kyngervi og kynhneigð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.