Morgunblaðið - 17.09.2015, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.09.2015, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2015 ✝ Sigríður SvavaIngimundar- dóttir fæddist 4. maí 1923 á Gauks- hamri við Stein- grímsfjörð í Strandasýslu. Hún lést 5. september 2015. Foreldar hennar voru Ingimundur Guðmundsson og Svanfríður Guð- mundsdóttir. Sigríður var elst af tíu systkinum. Hún giftist manni sínum, Kjartani Björgvini Jónssyni, 1942. Þau eignuðust sjö börn: 1) Ingibjörg Jóney, f. 3. júlí 1943. 2) Úlfar, f. 19. mars 1945, d. 10. mars 1984. 3) Ingimundur, f. 6. des. 1946. 4) Svan- fríður, f. 2. janúar 1948. 5) Jón Kon- ráð, f. 3. ágúst 1949. 6) Hulda Rós, f. 9. febrúar 1954. 7) Kjartan Haf- steinn, f. 7. júní 1956. Bjuggu þau á Hólmavík til ársins 1952, fluttu þá til Akraness og síðan til Keflavíkur 1960. Útför Sigríðar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 17. september 2015, kl. 13. Elsku amma mín. Nú ertu loks komin í faðm afa. Minningarnar hrannast upp. Alltaf átti ég pláss hjá ykkur og var drjúgan hluta af mínum yngri unglingsárum hjá ykkur afa. Alltaf kallaðir þú mig litla lambið þitt og þótti mér allt- af vænt um það. Ég elskaði að vakna á sunnudagsmorgnum hjá ykkur við ilminn af ajaxi og lambakjöti í ofni og tifi í prjón- unum þínum. Þegar afi svo kvaddi gat ég ekki hugsað til þess að þú svæfir ein. Því svaf ég í afa holu hjá þér orðin 19 ára gömul. Það er svo margt sem minnir mig á þig; karamellubúðingur, prjón- ar, bestu pönnukökur í heimi, framhaldssagan fræga og ótelj- andi yndislegar minningar sem ég varðveiti í hjartanu og segi börnunum mínum frá. Já börnin mín, alltaf spurðir þú frétta af þeim ef þau voru ekki með mér þegar ég kom til þín. Og þá sér- staklega um keisarann okkar eins og þú kallaðir Jón Steinar minn. Ég heimsótti þig þremur dögum áður en þú kvaddir þenn- an heim og þú rifjaðir upp og sagðir mér frá því þegar þú varst lítil stelpa. Þú kvaddir mig, þú vissir meira en ég. En þú þarft ekki að þjást lengur, elsku amma mín. Komin til afa og vakir yfir okkur eins og þú hefur alltaf gert. Ég tel mig betri manneskju í dag fyrir að hafa átt þig fyrir ömmu. Takk fyrir allt, elsku amma mín. Hvíl í friði. Um þig minningu á ég bjarta sem yljar eins og geisli er skín. Þú áttir gott og gjöfult hjarta og gleði veitti návist þín. (Höf. ók.) Þín Hrafnhildur. Elsku amma Sigga. Nú þegar komið er að kveðjustund leita minningarnar fram í hugann. Minningar sem eru svo fallegar og dýrmætar. Pönnukökur, framhaldssaga og nýbakaðar kleinur voru alltaf á boðstólum hjá þér þegar við komum í heimsókn. Ef þú varst ekki að stússa í matargerð þá voru það prjónarnir. Þú sast aldr- ei auðum höndum. Ferðirnar okkur saman til „út- landa“, eins og þú kallaðir þær, eru okkur svo minnisstæðar en þá fórum við í bíltúr og komum við í Eden í Hveragerði. Takk fyrir allar þær stundir sem við höfum upplifað saman, nú lifa þær áfram sem minningar sem við munum aldrei gleyma. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku amma, þú sofnaðir vært og nú eruð þið afi saman á ný. Megi Guð varðveita þig og geyma. Blessuð sé minning þín. Karen og Skarphéðinn. Góð vinkona mín, Sigríður Ingimundardóttir, eða Sigga frænka í Keflavík, eins og hún var kölluð af fjölskyldu minni réttilega, enda ömmusystir barnanna minna, er látin. Það var fyrir 49 árum sem ég kynntist Siggu í stórafmæli hjá Heiðu heitinni systur hennar á Grettis- götunni í Reykjavík. Hún kynnti sig og sagði við frænda sinn sem bauð mér með sér: „Elsku Dói minn, komdu endilega með kær- ustuna í Keflavík til Siggu frænku og þið skuluð fá kaffi og framhaldssögu hjá mér.“ Svona voru okkar fyrstu kynni, en fram- haldssagan reyndist svo vera lag- kaka með sultu sem svo oft var bökuð enda átti Sigga stóra fjöl- skyldu. Æ síðan hafa leiðir okkar legið saman enda varð úr góður vinskapur. Það hefur verið gott að eiga Siggu að, þennan dugn- aðarfork og gleðigjafa, og nokkr- ar ferðirnar fórum við saman á Akranes til Unnar og Sigga, tengdaforeldra minna, sem voru einnig systir og mágur Siggu. Það var fjör á Vesturgötunni, enda oftast margt um manninn og voru Sigga og Daddi engir eft- irbátar í fjörinu. En Sigga frænka fór heldur ekki varhluta af sorginni; missti Dadda sinn í blóma lífsins, son sinn og tengda- dóttur ung og fleira, en hún var sterk kona og reyndi að bera sig vel þrátt fyrir mikla sorg og söknuð. Manninn minn heitinn, Halldór Sigurðsson, dýrkaði hún og varð mikið um þegar hann lést fyrir rúmlega tveimur og hálfu ári. Hún elskaði fjölskyldu sína mikið og var afar stolt af henni og reyndist henni vel. Elsku Sigga frænka, hafðu þökk fyrir góðan vinskap liðinna ára. Sendi fjöl- skyldunni innilegar samúðar- kveðjur. Jóna, Grindavík. Sigríður Svava Ingimundardóttir Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur Síðumúla 31, s. 588 6060 Miðlarnir, spámiðlarnir og huglæknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen talnaspekingur og spámiðill, Ragnhildur Filippusdóttir, Símon Bacon, Guðríður Hannesdóttir kristalsheilari auk annarra, starfa hjá félaginu og bjóða félagsmönnum og öðrum upp á einkatíma. Upplýsingar um félagið, starf- semi þess, rannsóknir og útgáfur, einkatíma og tímapant- anir eru alla virka daga ársins frá kl. 13-18. auk þess oft á kvöldin og um helgar. SRFR Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9,gönguhópur II kl. 10.15 og vatnsleikfimi í Vesturbæjarlaug kl. 10.50. Myndlist og prjónakaffi kl. 13. Bókmenntaklúbbur kl. 13.15. Jóga kl. 18; skráning hjá Signýju Einarsdóttur,jógakennara, í síma 894 0383 Árskógar 4 Opið frá kl.08:00 - 16:00 Smíðastofa/útskurður með leiðbeinanda kl. 09:00-16:00. Handavinna með leiðbeinanda kl.13:00 frá 1.sept. Helgistund Seljakirkju kl.10:30 -11:00. MS - félagsstarf kl.14:00 - 16:00 . Boccia, 2. hæð kl. 09:30 - 10:30. Söngstund með Mary, 2x í mán. kl.14:00 - 15:00.Tölvufærni, pantið tíma hjá ritara í afgreiðslu. Boðinn Handavinna kl.9, Boccía kl.10.30, Brids og kanasta kl.13, jóga kl.14, Boðinn Handavinna, vatnsleikfimi kl.9, vatnsleikfimi kl.9.40. Handa- vinna efri sal kl.13, Bónusrúta kl.13, Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8. Furugerði 1 Morgunmatur kl.08:10, 09:45 morgunleikfimi, hádegismatur kl.11:30, ganga kl. 13, kór eldri borgara, samverustund kl.14:00, síðdegiskaffi kl. 14:30 og kvöldmatur kl. 18-19. Handavinna. Nánari upplýsingar í síma 411-2740 Garðabæ Qi gong í Sjálandi kl.9.40, vatsleikfimi í Sjálandi kl.7.30,12.40,13.20 og 15, karlaleikfimi kl.10.55 og boccia kl.11.35 í Ásgarði handavinnuhorn kl.13, Vöfflukaffi kl.14, í Jónshúsi, kóræfing í Kirkjuhvoli kl.16. Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16. Ýmis stutt námskeið fylgist með kl. 9-12. Helgistund kl. 10.30. Starf Félags heyrnalausra kl. 11.30- 15.30. Perlusaumur kl. 13-16. Bútasaumur kl. 13-16. Myndlist m/leiðb. kl. 13-16. Heitt á könnunni. Heilsuborg Faxafeni Gönguhópur miðvikudag „Hvað þarftu að gera til að verða níræður unglingur?” Kynningarfundur fyrir félagsmenn og aðra eldri borgara í Heilsuborg fimmtudag 17. september kl. 17.00 Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, morgunleikfimi kl. 9.45, spilað boccia kl. 10, matur kl. 11.30, baðþjónusta fyrir hádegi. Handavinnuhópur kl. 13, spiluð félagsvist kl. 13.15, kaffisala kl. 14.30. Fótaaðgerðir, hársnyrting. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl.8.50, leikfimi með Guðnýju kl. 10, lífsöguhópur kl. 10:50, Selmuhópur kl. 13, Sönghópur Hæðargarðs með Sigrúnu Valgerði kl. 13.30, Línudans með Ingu kl.15-16, síðdegiskaffi kl. 14.30. Alzheimerkaffi kl.17 allir velkomnir nánar í síma 411-2790. Íþróttafélagið Glóð Í Kópavogsskóla Ringó kl. 17 00. Og línudans kl.18.00 framh. stig 3 ( 2 x í viku), kl.19.00 framh. stig 2 ( 2 x í viku) Uppl. í síma 564-1490 og á www.glod.is Kópavogur Handavinna kl 9, jóga kl 9.30, ganga kl 10, handavinna og bridge kl 13, jóga 17.15. Langahlíð 3 Opin handverksstofa með leiðbeinanda kl. 09:00, Upp- lestur kl. 10:10, Boccia kl. 13:30, Kaffiveitingar kl. 14:30, Söngstund kl. 15:00. Norðurbrún 1 mánud:Tréútskurður 13-16. Þriðjud:Tréútsk. 9- 12,Myndlist,postulínsmálun 9-12, opið í Listasmiðju 13-16, leiðbeinandi á staðnum. Miðvikud:Tréútsk. 9-12. Bónusbíllinn fer frá Norðurbrún 14:40. Félagsvist 14-16. Fimmtud:Tréútsk. 9-12. Leirlis- tanámskeið 9-12. Opið í Listasmiðju milli 13-16, leiðbeinandi á staðnum.Bókabíllinn 10-10:30 Föstud:Tréútsk. 9-12. Opið í Listasmiðju 9-12. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 07.15. Bókbandið hefst í dag kl. 9.00 á Skólabraut. Billjard Selinu kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga Skólabraut kl. 11. Bingó salnum Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 14.00 Sléttuvegi 11-13 Opið frá kl. 8.30 - 16.00. Kaffi, umræða, spjall og gluggað í dagblöð kl. 08.30. Framhaldssaga kl. 10.00. Hádegisverður kl. 11.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir ! Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Síðdegissdans Síðdegisdans hefst fimmtudaginn 17. september kl. 16.00 – 18.00 Stjórnendur verða eins og áður Matthildur og Jón Freyr. Kynningarfundur hjá Heilsuborg Faxefeni 14 á fimmtudag 17. sept. „Hvað þarftu að gera til að verða níræður unglingur?” Kynningarfundur fyrir félagsmenn og aðra eldri borgara í Heilsuborg fimmtudag 17. september kl. 17.00 Dans sunnu- dagskvöld kl. 20.00. Vesturgata 7 fimmtudagur. Fótaaðgerðir kl. 09:00. Hárgreiðsla kl. 09:00. Kertaskreyting ( úr vaxi) kl. 09:15. Glerskurður kl. 13:00. Vitatorg Bólband og postulínsmálun kl. 9, framhaldssaga kl. 12.30, handavinna og prjónaklubbur eftir hádegi,frjáls spilamenska, stóladans kl. 13.00 Félagslíf Smáauglýsingar 569 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn FASTEIGNA- VIÐHALD Við þjónustum þig með lítil sem stór verk. Tímavinna eða tilboð. johann@jaidnadarmenn.is S. 544-4444/777-3600 www.jáiðnaðarmenn.is Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Bókhald NP Þjónusta Óska eftir bókhaldi, endurútreikning og vsk. Hafið samband í síma: 861-6164. Þjónusta                                 ! " #$ %&& ' '' ((()*)  Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122.Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi NÝTT – TÚNIKA-BUXUR St.S –XXL Sími 588 8050. - vertu vinur Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Húsviðhald Tökum að okkur viðhald, við- gerðir og nýsmíði fasteigna fyrir fyritæki húsfélög og einstak- linga. Fagmenn á öllum sviðum. Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373. brbygg@simnet.is Ríf ryð af þökum, ryðbletta, hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verk. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Glæsilegur skenkur, gegnheil eik, mjög vandað. Verð 50.000-,. Lengd 154 sm.Breydd 48 sm. Hæð 90 sm. Upplýsingar í síma 698 2598. Til sölu Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.