Morgunblaðið - 17.09.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2015
Flóttamenn bíða á lestarstöð í smábænum Frei-
lassing í suðurhluta Þýskalands. Hafa þeir beðið
þar síðan þýsk stjórnvöld ákváðu að taka upp
landamæraeftirlit til að stemma stigu við
straumi flóttamanna inn í landið og koma „skipu-
lagi á ástandið“ eins og Thomas de Maiziere, inn-
anríkisráðherra Þýskalands, orðaði það. Þrátt
fyrir það hafa tvö þúsund manns farið um landa-
mærin frá Austurríki síðan eftirlitið hófst.
AFP
Bíða í óvissu á lestarstöð
Um helmingur
Ítala á aldrinum
25-34 ára býr
enn hjá for-
eldrum sínum
samkvæmt tölum
frá evrópsku
hagstofunni,
Eurostat. Er
hvergi hærra
hlutfall fólks sem býr enn hjá for-
eldrum í Evrópu. Í fréttaskýringu
The Local segir að þótt stór hluti
ástæðunnar sé bágur fjárhagur og
atvinnuleysi ungs fólks leiki sú
hefð, að fjölskyldur búi saman í
nánu samneyti, einnig stórt hlut-
verk. Háskólanemar útskrifast
seint á lífsleiðinni og kann það að
helgast af því að þeirra sem útskrif-
ast bíður gjarnan vinna þar sem
tekjurnar eru um 1.000 evrur eða
minna. Fyrir slíkar tekjur er eini
möguleiki ungs fólks að dvelja
heimavið í langan tíma og reyna að
safna peningum í skjóli frís húsa-
skjóls og fæðis. vidar@mbl.is
ÍTALÍA
Helmingur býr
enn hjá foreldrum
Svíum var í gær,
fyrstum þjóða,
boðinn sá kostur
að geta pantað
borð á veitinga-
staðnum McDon-
alds. Tilkynnti
fyrirtækið þessa
nýbreytni fyrr í
mánuðinum og
er hægt að panta borð fyrir fjóra að
hámarki. Svíar hafa gjarnan haft
orð á sér fyrir skipulagningu og að
sögn Staffans Ekstrams, stjórnanda
hjá McDonalds í Svíþjóð, er eitt
markmiðið með þessu að koma til
móts við þessi séreinkenni Svía.
Þykir þessi breyting til þess fallin
að hressa upp á ímynd vörumerk-
isins í Svíþjóð. Nýlega neyddist fyr-
irtækið til þess að loka útibúi í
Västra þar sem um þrjátíu veiktust
eftir að hafa borðað á staðnum. Að
auki fann kona hreinsiefni í kaffi-
bolla sem hún hafði keypt hjá
McDonalds í Malmö.
SVÍÞJÓÐ
Nú er hægt að panta
borð á McDonalds
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Að minnst kosti sextíu flóttamenn
hafa verið handteknir í Ungverjalandi
eftir að ný lög tóku gildi í vikunni þar
sem heimilað er að refsa þeim sem
koma til landsins með ólöglegum
hætti. Eru viðurlögin allt að þriggja
ára fangelsi.
Ungversk yfirvöld lokuðu endan-
lega landamærunum við Serbíu á
sunnudag þegar síðasti hluti 175 kíló-
metra langrar gaddavírsgirðingar var
settur upp til stöðva flóttamanna-
strauminn inn í landið.
Þótt ríkisstjórn Viktors Orbáns,
forsætisráðherra Ungverjalands, hafi
mátt sæta gagnrýni af hálfu alþjóða-
samfélagsins vegna aðgerðanna
gegnir öðru máli heima fyrir þar sem
þær njóta stuðnings 70% þjóðarinnar.
Flokkur Orbáns þykir vera hægri
sinnaður íhaldsflokkur en aðgerðirn-
ar hafa notið stuðnings þeirra sem
staðsetja sig enn lengra á hægri væng
stjórnmálanna, fylgismanna stærsta
stjórnarandstöðuflokksins, Jobbik.
Því fer þó fjarri að afstaða ríkis-
stjórnar Orbáns sé einsdæmi í Evr-
ópu. Hafa Lettland, Litháen, Pólland,
Slóvakía og Tékkland ítrekað hafnað
því að mæta skil-
yrðum Evrópu-
sambandsins um
að taka við hluta
flóttamannanna
eða svokölluðum
kvótaflóttamönn-
um. Ríkisstjórn
Orbáns nýtur
stuðnings tveggja
af hverjum þrem-
ur þingmönnum.
Hefur Orbán meðal annars látið hafa
eftir sér að þjóðin sé með „ofnæmi“
fyrir afskiptum frá útlöndum af inn-
anríkismálum. Slíkar skoðanir eru
vinsælar í landinu sem lengi mátti
sæta afskiptum Sovétmanna af inn-
anríkismálum fyrir fall járntjaldsins.
Króatar taka við vandanum
Eftir að Ungverjar lokuðu landa-
mærunum hefur flóttamanna-
straumurinn leitað til Krótatíu í
norðri. Þarlend stjórnvöld tilkynntu í
gær að þau hygðust leyfa flótta-
mönnum að koma inn í landið á leið
sinni norðar í Evrópu. Þegar höfðu
um 150 flóttamenn farið um landa-
mærin um hádegisbilið í gær og þús-
undir voru á leið þangað. Flestir vilja
fara til Þýskalands.
Vinsælli heima fyrir
Tugir flóttamanna handteknir Hafa „ofnæmi“ fyrir afskiptum að utan
Viktor
Orbán
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Fjórtán ára drengur var handtekinn
í Texas í Bandaríkjunum eftir að
hann sýndi kennurum klukku sem
hann hafði smíðað. Óttuðust kenn-
ararnir að um væri að ræða sprengju
og kölluðu til lögreglu.
Nemandinn, Ahmed Mohamed,
sagðist í samtali við fjölmiðla hafa
komið með klukkuna í MacArthur--
menntaskólann til þess að sýna hana
kennara í tæknifræði. Hafði sá hrós-
að honum en sagt um leið að hann
mætti ekki sýna öðrum kennurum.
Engu að síður kom kennari auga á
klukkuna eftir að hún gaf frá sér
hljóð í miðri kennslustund. Gerði sá
skólayfirvöldum viðvart og var
hringt á lögregluna.
Leiddur út í handjárnum
Síðar sama dag var drengurinn
kallaður til skólastjóra og yfirheyrð-
ur af fjórum lögreglumönnum. Sam-
kvæmt því sem fram kemur í Dallas
Morning News var drengurinn
leiddur úr skólanum í handjárnum
og settur í ungmennafangelsi auk
þess sem tekin voru af honum
fingraför. Skólinn tjáði sig ekki um
atvikið í yfirlýsingu sem frá honum
kom. Þar kom þó fram að kennurum
væri uppálagt að tilkynna það ef þeir
sæju eitthvað grunsamlegt.
Faðir drengsins segist hræddur
um að atvikið hafi átt sér stað sökum
þess að drengurinn er íslamstrúar.
Handjárnuðu 14
ára klukkusmið
Handjárnaður Ahmed Mohamed
var handjárnaður af lögreglu.
Kennararnir
héldu drenginn
vera með sprengju