Morgunblaðið - 17.09.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2015
Viltu læra bridge?
Bridgesambandið getur útvegað leiðbeinendur fyrir hópa, fyrirtæki
og skóla. Guðmundur Páll starfrækir Bridgeskólann, þar geta þeir lært
bridge sem eru að stíga sín fyrstu skref í bridge og einnig þeir sem
vilja bæta við kunnáttu sína.
Námskeið í Bridgeskólanum hejast 21. september n.k.
Upplýsingar hjá Guðmundi Páli í síma 898 5427
eða á gparnarson@internet.is.
Eldri borgarar spila alla mánudaga
og fimmtudaga kl. 13.00-17.00
í Síðumúla 37.
Bridgefélög og klúbbar eru starfræktir um allt land – upplýsingar á bridge.is
Bridgesamband Íslands – Síðumúla 37 – 108 Reykjavík – sími 587 9360 – www.bridge.is
Bridge gerir lífið skemmtilegra
Árlegt alþjóðlegt stórmót
Icelandair Reykjavík
Bridgefestival fer fram
28.-31. janúar 2016,
skráning á bridge@bridge.is
Lanslið Íslands hefur náð langt á alþjóðlegum
mótum, Norðurlandameistarar 2013 og aftur 2015
Ungir sem aldnir
spila bridge
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Sýrlenskum föður, Osama Abdul
Mohsen, sem komst í heimsfrétt-
irnar eftir að hafa verið felldur af
ungverskum myndatökumanni þeg-
ar hann var á flótta undan ung-
versku lögreglunni og reyndi að
komast yfir landamæri Ungverja-
lands, hefur verið boðið starf sem
knattspyrnuþjálfari á Spáni.
Myndbrot af því þegar ungverski
myndatökumaðurinn Petra Laszlo
felldi Mohsen, sem hélt á sjö ára syni
sínum í fanginu, fór eins og eldur um
sinu um netheima. Vakti myndbrotið
gríðarlega reiði sem leiddi til þess að
Laszlo var rekin úr starfi sínu hjá
ungversku sjónvarpsstöðinni N1Tv.
Fær íbúð á vegum samtakanna
Osama Abdul Mohsen starfaði
sem knattspyrnuþjálfari í Sýrlandi
áður en hann þurfti að flýja landið
vegna stríðsins sem geisað hefur
þar. Fyrir tilstilli Knattspyrnuþjálf-
arasamtaka Spánar (Cenafe) býðst
honum nú starf og húsnæði í Getafe.
Mohsen starfaði áður sem knatt-
spyrnuþjálfari hjá Al-Fotuwa í efstu
deild í Sýrlandi.
Mohsen steig upp í lest í München
í gær og ferðaðist til Madrídar
ásamt tveimur sona sinna.
Miguel Ángel Galán, formaður
þjálfarasamtakanna, setti sig í sam-
band við Mohsen eftir að hafa frétt
af raunum hans. Tókst honum það
með hjálp spænsks blaðamanns og
bauð í framhaldinu Mohsen að koma
til Spánar, að því er fram kemur í
yfirlýsingu frá samtökunum. Arab-
ískumælandi stúdent á vegum sam-
takanna, Mohamed Labrouzi, hitti
Mohsen og syni hans í München og
fór með þeim til Madrídar. Samtökin
eru tilbúin með íbúð í Getafeborg,
sem liggur rétt sunnan við Madríd.
,,Um leið og hann lærir spænsku,
munum við bjóða honum starf hjá
samtökunum,“ segir Gálan. Þá mun
knattspynulið Getafe einnig vera
tilbúið til þess að leyfa Mohsen að
koma og þjálfa hjá liðinu að því er
fram kemur í yfirlýsingu frá Söru
Hernández, borgarstjóra Getafe.
„Þetta er skref til að sýna einingu
Getafeborgar og viðbrögð við þess-
um mannlega harmleik,“ sagði
Hernandez á fréttamannafundi í
gær.
Felldum föður á
flótta boðið starf
Boðið að starfa við knattspyrnuþjálfun á Spáni
Felldur Heimsathygli vakti þegar ungverskur myndatökumaður brá fæti
fyrir Mohsen þegar hann var á flótta undan lögreglu.
Ungverska óeirðalögreglan beitti
táragasi og vatnsdælum á hóp flótta-
manna sem gerði tilraun til að brjót-
ast í gegnum tálma sem yfirvöld settu
upp í gær. Að því er fram kemur í
frétt James Reynolds frá BBC, sem
viðstaddur var atvikið, voru átök
óumflýjanleg þar sem hundruð flótta-
manna höfðu stillt sér upp nærri hliði
við landamærin og kröfðust þess að fá
inngöngu inn í landið. „Opnið hliðið,
opnið hliðið,“ hrópaði hópurinn að
lögreglumönnum sem þar voru.
Nokkrir úr hópnum hófu að henda
vatnsflöskum og steinum í átt að lög-
reglumönnum og í kjölfarið beitti lög-
reglan táragasi og vatni gegn fjöldan-
um. Flestir flúðu af vettvangi en
nokkrir ungir menn urðu eftir og
hentu hlutum í átt að lögreglunni.
Stuttu síðar var allt með kyrrum kjör-
um á svæðinu.
Ungversk yfirvöld luku við að setja
upp 175 kílómetra gaddavírstálma
þvert eftir landamærum Serbíu og
Ungverjalands á þriðjudag. Til-
gangurinn er að verjast látlausum
straumi flóttamanna inn í landið.
Vatnsslöngur og táragas Til átaka kom við landamæri Ungverjalands og
Serbíu í gær þegar lögregla beitti táragasi og sprautaði vatni að flóttafólki.
Lögregla beitti tára-
gasi gegn flóttafólki
Átök á landamærum Ungverjalands