Morgunblaðið - 17.09.2015, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.09.2015, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2015 HORNAFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Á FERÐ UM ÍSLAND Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is „Við notum allar aukaafurðir úr íslenskri matvælaframleiðslu sem við komumst í. Roðið er af þorski, laxi, karfa og hlýra, en skinnin af sel og smálömbum. Við notum leð- ur af hreindýrum og ull, horn og leður af sauðkindinni. Auk þess höfum við notað fjaðrir af land- námshana, hrosshár og fleira,“ segir Ágústa Margrét Arnardóttir sem hannar og framleiðir föt og fylgihluti úr roði, skinnum og öðr- um aukaafurðum undir vörumerk- inu Arfleifð. Hún starfar á Djúpa- vogi ásamt Kareni Sveinsdóttur. Bráðlega fara þær til Lundúna til að sýna nýja fatalínu og komast í kynni við söluaðila. Ágústa lærði skó- og fylgi- hlutahönnun en byrjaði fyrir um fimm árum að hanna fatnað á borð við kjóla, pils, jakka og fleira. Hún gerir einnig töskur og fylgihluti. „Ég hef alltaf föndrað og búið eitthvað til, en árið 2000 byrjaði ég að selja þær vörur. Ég nam í Iðnskólanum í Hafnarfirði á ár- unum 2003-2005 samhliða því að hanna og selja, en þá kynntist ég fiskroðinu í fyrsta skipti. Það var svo árið 2010 sem ég frumsýndi vörur undir merkinu Arfleifð og undir hugmyndafræði náttúrunýt- ingar og sjálfbærni,“ segir hún. Ágústa leggur mikla áherslu á að nýta aukaafurðir sem annars færu til spillis. Ágústa segir þá hugmynda- fræði vekja mikla athygli erlendra ferðamanna, sem og uppruna hrá- Ljósmynd/Úr einkasafni Heiðurskonur Ágústa og Guðrún Guðjónsdóttir taka á móti viðurkenningunni „Heiðurskonur á Djúpavogi“ Vinnur föt og auka- hluti úr aukaafurðum  Ágústa M. Arnardóttir hannar undir merkinu Arfleifð Belti Hluti af vinnsluferlinu er að raða skinnum á réttan hátt. Dýrleif Taskan Dýrleif með Bú- landstind í bakgrunni.  „Við erum eins og flott ítölsk fjöl- skylda,“ segir Ari Þorsteinsson sem hefur verið í veitingarekstri ásamt fjölskyldu sinni í um átta ár. „Ég, kona mín, María Gísladóttir, systir mín, Anna Þorsteinsdóttir og mágur minn, Ólafur Már Vilhjálmsson, eigum saman Humarhöfnina, en við hófum rekstur árið 2007 eftir að hafa keypt hús sem var verslunar- og skrif- stofuhúsnæði kaupfélagsins. Það var í hálfgerðri niðurníðslu en okkur lang- aði að gera það upp þannig að við ákváðum að fara í veitingarekstur og sérhæfa okkur í humri,“ segir hann. Eik, dóttir Ara, og Anna, systir hans, sjá um rekstur Humarhafnarinnar og synir Önnu vinna þar líka. Ari og María keyptu svo árið 2011 hús sem byggt var af kaupmanninum Ottó Tuliniusi árið 1897. „Ætlun okkar var að gera húsið upp og búa í því. Fljótlega sáum við að verkefnið var stærra en okkur hafði órað fyrir. Ákváðum við því að opna það fyrir fólki og fara í veitingasölu,“ segir Ari en veitingahúsið heitir Nýhöfn. Elsta hús bæjarins Nafnið er dregið af því að húsið var byggt í Kaupmannahöfn og flutt til Hafnar með skipi. Er því um elsta hús bæjarins að ræða. „Við leggjum mikið upp úr því að gestir komist inn í sögu- legt andrúmsloft á heimili sem gæti verið frá upphafi 20. aldar og fái að borða þar frábæran mat.“ Ari og María búa á efstu hæð húss- ins en á miðhæðinni er starfræktur veitingastaður þar sem rík áhersla er lögð á hráefni af bryggjunni í bænum og af svæðinu í kring. Í kjallaranum er svo boðið upp á „forníslenskt tapas“, sem er harðfiskur og hákarl. Ari og María hafa lagt mikið til upp- byggingar í miðbæ Hafnar. „Við vild- um byggja upp hafnarsvæði sem yrði að sérstökum áfangastað og að fólk kæmi hingað matarins vegna. Við byrj- uðum ein en núna eru fjórir veitinga- staðir við höfnina. Mörg gömul hús í kring hafa verið gerð upp þannig að svæðið er komið með fallegan heild- arsvip. Draumur okkar hefur nú ræst,“ segir Ari. „Við höfum áhuga á því að gera upp gömul hús á svæðinu og gefa þeim nýtt hlutverk og líf sem og að varðveita menningarminjar. Það er drifkrafturinn hjá okkur.“ María, sem er bókmenntafræðingur að mennt, hefur ásamt skjalaverði unnið að sýningu um byggingasögu og íbúasögu í húsi þeirra hjóna. Gáfu þau út blaðið Hústíðindi, sem er dagblað með fréttum frá fyrri tíð, þannig að fólk geti lesið sér til gamans um sögu hússins og breytingar á því í áranna rás. brynja@mbl.is Morgunblaðið/Albert Eymundsson Fjölskyldan Systkinin Ari og Anna ásamt fjölskyldum sínum við Humarhöfnina. Samhent í veitingarekstrinum Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is „Ég er með matvæli úr öllu sæ- dýrasafninu,“ segir Ómar Frans- son, eigandi matvælafyrirtækisins Sólskers og trillukarl, en hann stendur vaktina við reykofninn á milli þess sem hann sækir sjóinn. Ómar framleiðir heitreyktan makríl, makrílpaté, heitreykt þorskhrogn, reyktan regnbogasil- ung sem og léttreyktan og grafinn karfa. Ómar hóf að reykja makríl fyrir nokkrum árum, en regnboga- silungur og karfi eru nýjustu við- bæturnar í vöruúrvalið. „Ég vinn þetta að mestu leyti einn, en Björn Eymundsson, fóst- urfaðir minn, hefur verið mín hægri hönd í framleiðslunni,“ segir Ómar og bætir við að menn hafi komið að máli við hann og boðið honum að koma í samstarf. Ekkert hefur hins vegar verið ákveðið í þeim málum enn. Reykir og grefur „allt sædýrasafnið“  Á leið á matarsýningu í Lundúnum Morgunblaðið/Albert Eymundsson Úrval Ómar vinnur með makríl, þorskshrogn, karfa og regnbogasilung, þ.e. heitreykir eða grefur. Humarinn, u.þ.b. 125 g, tekinn frosinn og klofinn eftir endilöngu með flugbeittum hníf. Maginn hreinsaður úr með teskeið en lifrin skilin eftir. Humarinn garnhreins- aður. Honum raðað í ofnfast mót og penslaður með hvítlaukssmjöri (brætt smjör með hvítlauk og steinselju) og örlitlu af papriku stráð yfir. Humarinn er settur und- ir grill á 260 °C í 3½ mínútu og saltaður með eðalsalti um leið og hann er tekinn út. Settur á disk með smjörinu úr ofnskúffunni, ásamt salati. Humarsósa 1 bolli majónes, ½ bolli sýrður rjómi, 3-4 hvítlauksrif, 1 msk. soja- sósa og u.þ.b. ¼ bolli chili-sósa frá Heinz. Öllu hrært vel saman. Heill humar á Humarhöfninni UPPSKRIFT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.