Morgunblaðið - 17.09.2015, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 17.09.2015, Qupperneq 23
halda minningu þinni á lofti. Ég er svo þakklát fyrir að hafa getað verið með þér þessa síðustu daga haldið í hönd þína og kvatt þig þegar að því kom. Megi góður Guð varðveita þig, elska þig enda- laust. Þín afastelpa, Elísabet (Ellý). Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Elsku besti afi minn, ég á erfitt með að trúa að þú sért farinn. Nú hrynja yfir mig minningar sem við áttum saman og þær minningar verða ávallt í mínu hjarta. Þú varst sönn hetja í mín- um augum og varst alltaf til stað- ar þegar ég þurfti á þér að halda og var ég svo lánsöm að fá að vera til staðar fyrir þig í þínum veik- indum. Ég er afar þakklát fyrir að hafa getað rétt hjálparhönd þeg- ar þú þurftir á því að halda, elsku yndislegi, afi minn. Nú veit ég að þú ert kominn á góðan og frið- saman stað. Ég á eftir að sakna þín rosalega mikið. Hvíldu í friði, elsku fallegi eng- laafi minn. Hér er smá sem ég samdi til þín: Haltu í hönd mína og leiddu mig áfram veginn góða. Höndin mín og höndin þín samasem gæfa og framtíðin. Afahöndin alltaf svo hlý og blíð sárt ég mun sakna þín. (E.H. Ólafsdóttir) Elísabet Hjálmarsen Ólafsdóttir. Nú þegar ég sest hér niður til að skrifa nokkur orð um hann elsku afa þá hellast yfir mig fal- legar minningar. Ég var svo lán- samur að eiga afa og ömmu sem bjuggu í sömu raðhúsalengju og við fjölskyldan. Var ég því nánast daglegur gestur á heimilinu og hlýrra viðmót var ekki hægt að fá. Við borðuðum alltaf hjá þeim á aðfangadag og afi elskaði að hlusta á sálmana í útvarpinu. Það fyllir mig jólaanda að hlusta á sálmana eins og afi. Alveg frá því ég var lítill hafði ég gaman af því að spyrja afa spurninga og heyra frá honum hinar ýmsu sögur og skoðanir. Það var svo gaman að hlusta á hann tala og hann virtist vita svo ótal margt. Maður kom aldrei að tómum kofunum hjá honum. Það er varla til það mál- efni sem ekki var hægt að tala um við hann. Hann var líka duglegur að kynna sér nýjungar í heimin- um. Kynnti sér nýja tækni, nýja síma og fleira, og var mjög virkur á facebook. Hann elskaði íþróttir og hélt mikið með sínum liðum, Arsenal, Leeds og Fram. Samt var hann sanngjarn og hreinskil- inn. Hann elskaði að horfa á fal- legan bolta og talaði ekki illa um hin liðin sem hann hélt ekki með. Ef þau spiluðu flottan bolta þá hreifst hann af því og lét þá skoð- un sína í ljós. Hann skrifaði oft hvatningarorð á heimasíðu Fram þegar á móti blés hjá liðinu og enginn sá ljós í myrkrinu. Afi hafði mjög gaman af því að fara á rúntinn með okkur krökkunum. Þar var yfirleitt stoppað niðri á bryggju og keyptur ís. Hann elsk- aði ís. Á labbinu með honum átti hann það til að lyfta skyndilega annarri löppinni upp og sparka létt í rassinn á okkur krökkunum. Þetta fannst mér alltaf æðislega gaman og mjög fyndið, óvænt og kjánalegt. Skemmtilegar minn- ingar á ég einnig um diktafón sem afi átti og við lékum okkur við að tala inn á hann og hlusta á aftur og aftur. Að þessu hlógum við mikið. Jólin 1994 fórum við með afa og ömmu til Orlando. Afi og amma fóru mjög reglulega til Bandaríkjanna. Þarna úti eyddi afi miklum tíma með mér. Við fór- um saman á NBA-leik og sáum Orlando Magic spila. Shaquille O’Neal líka. Eftir þetta var Or- lando Magic okkar lið. Við fórum í bíó og fengum okkur stóran popp með miklu smjöri, að amerískum sið. Eftir þá bíóferð villtumst við og áttum í miklum erfiðleikum með að rata heim. Þetta varð góð minning og töluðum við oft um þennan bíltúr um Orlando. Afi gaf mér minn fyrsta gítar, kenndi mér fyrstu gripin. Kynnti mig fyrir gömlum klassískum bíó- myndum. Hann sagði mér marg- ar skemmtilegar sögur og fyllti mig af miklum fróðleik um ýmsa hluti. Það má með sanni segja að hann Halli afi minn hafi átt stóran þátt í því að gera mig að þeirri persónu sem ég er í dag. Ég mun aldrei gleyma þessum merka manni sem ég var svo heppinn að eiga sem afa. Mér þykir líka ótrú- lega vænt um að börnin mín hafi fengið að kynnast honum aðeins. Ég mun sakna þess að eiga ekki eftir fleiri stundir með þér, afi minn. Ég mun ylja mér við fal- legar minningar um þig um ókomna tíð. Mér er svo kært að hafa átt kost á því að kveðja þig á spítalanum. Blessuð sé minning þín, elsku afi minn. Ólafur Haraldur Helgason (Onni). Þeim Reykvíkingum fer nú fækkandi, sem uxu úr grasi um miðja síðustu öld þegar þjóðin öðlaðist fullt sjálfstæði, stjórnar- farslegt sem efnahagslegt. Heið- ursmaðurinn Haraldur Haralds- son var góður fulltrúi þeirrar kynslóðar, sem var ákveðin í að nýta þetta frelsi til að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag. Ungur missti hann föður sinn og stóð móðir hans þá ein uppi með fjögur börn. Hann fór því snemma að vinna fyrir sér, fyrst í sveit en árið 1949 hóf hann störf hjá Slippfélaginu, næstelsta hlutafélagi landsins sem enn er starfandi. Hann markaði spor í atvinnulífinu þegar hann tók þátt í stofnun Málningarverksmiðju Slippfélagsins árið 1952 þar sem hann átti 45 ára farsælan starfs- feril, fyrst sem verkstjóri og síðan verksmiðjustjóri. Ég kynntist Haraldi fyrir um tuttugu árum í tengslum við starf mitt hjá Morgunblaðinu en átti síðan eftir að hafa frekari kynni af honum á vettvangi Sjálfstæðis- flokksins. Var auðheyrt að hann hafði mikla þekkingu á atvinnulífi borgarinnar og þá sérstaklega starfseminni við höfnina og upp- byggingu atvinnusvæðisins í Vogahverfi. Var mjög ánægjulegt og fræðandi að eiga samtöl við hann um þau mál. Stjórnmálaskoðanir Haralds mótuðust á miklum umbrotatím- um þegar þjóðfélagið tók meiri breytingum á nokkrum áratugum en það hafði áður gert öldum saman. Hann talaði aldrei tæpi- tungu og þurfti maður ekki lengi að velkjast í vafa um afstöðu hans til manna og málefna. Haraldur sjálfstæðismaður í bestu merkingu þess orðs. Hann lagði áherslu á nauðsyn þess að atvinnurekstur byggi við góð skil- yrði til verðmætasköpunar enda væri slíkt grundvöllur öflugs vel- ferðarkerfis, sem væri ekki síður mikilvægt. Haraldi þótti vænt um flokkinn sinn og var dyggur stuðnings- maður hans en hikaði ekki við að koma með skarpa gagnrýni ef honum fannst ráðamenn ekki breyta í samræmi við sjálfstæð- isstefnuna. Hann tók virkan þátt í fé- lagsstarfi flokksins í Reykjavík og sat lengi í stjórn Sjálfstæðis- félagsins í Fella- og Hólahverfi. Lagði hann ætíð gott til á fundum og kom oft með ábendingar um það sem betur mætti fara í sínu hverfi eða þjóðfélaginu í heild. Mikill áhugi hans á þjóðmálum varð til þess að hann fór að blogga undir nafninu Halli gamli. Var hann um tíma í hópi afkastamestu bloggara landsins og gaf þar mörgum yngri manninum ekkert eftir. Á bloggsíðu hans kom líka vel í ljós að fjölskyldan var stærsti fjársjóður hans. Að leiðarlokum langar mig til að þakka Haraldi fyrir ánægjuleg kynni og góðvild í minn garð um leið og ég votta fjölskyldu hans einlæga samúð. Minningu um góðan dreng mun ég halda í heiðri meðan mér endast dagar. Kjartan Magnússon.  Fleiri minningargreinar um Haral Haraldsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2015 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR GUÐFINNSDÓTTUR, Skólastíg 8, Bolungarvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu á 3G fyrir góða umönnun, nærgætni og hlýhug. . Þorsteinn Einarsson, Hildur Magnúsdóttir, Guðfinnur Einarsson, Heidi Hansen, Gísli Einarsson, Lára Gísladóttir og fjölskyldur þeirra. Elsku maðurinn minn, pabbi, tengdapabbi og afi, GUNNAR INGIBERG GUÐMUNDSSON, Boðaþingi 22, áður Nýbýlavegi 104, Kópavogi, lést 10. september. Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 18. september kl. 13. . Halldóra Hallfreðsdóttir, Díana Dröfn Ólafsdóttir, Guðmundur Karl Reynisson, Heimir Logi Gunnarsson, Guðlaug H. Gunnarsdóttir, Guðmundur Tr. Ólafsson og afabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT SIGMUNDSDÓTTIR, Lautasmára 25, Kópavogi, lést á Landspítalanum síðastliðinn föstudag. Útförin fer fram frá Hjallakirkju föstudaginn 18. september kl. 11. . Eygló Dröfn Hraundal, Hjalti Reynir Ragnarsson, Vera Björk Hraundal, Albert Már Eggertsson, Anna Margrét Hraundal, Anna Cecilia Inghammar, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA GÍSLÍNA VIGFÚSDÓTTIR, frá Sólvangi, Árskógsströnd, lést mánudaginn 14. september á dvalarheimilinu Hlíð. Útför hennar fer fram frá Stærri-Árskógskirkju laugardaginn 26. september kl. 14. . Bjarni H. Hjaltason, Anna G. Sigurðardóttir, Bjarki V. Hjaltason, Elín Hjaltadóttir, Reynir G. Hjaltason, Helga Ó. Finnbogadóttir, Vignir Hjaltason, Edda B. Kristinsdóttir, Vigdís E. Hjaltadóttir, Guðmundur Þ. Jónsson, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, BRYNDÍSAR KJARTANSDÓTTUR, Fífuseli 37, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjartadeildar Landspítalans fyrir góða umönnun og hlýju í hennar garð. . Karl Arason, Sigríður Sigurðardóttir, Eiríkur Ingimagnsson, Kjartan B. Sigurðsson, Unnur Erla Malmquist, Birgir Sigurðsson, Hildur Loftsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Unnur S. Kristleifsdóttir, Ari Karlsson, Elfa S. Sigurðardóttir, Guðlaugur K. Karlsson, Sigrún Ö. Sigurjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HULDA INGIBJÖRG SIGURBJÖRNSDÓTTIR, áður til heimilis að Skagfirðingabraut 37, Sauðárkróki, lést þriðjudaginn 8. september á Sjúkrahúsi Suðurlands. Hún verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 18. september kl. 14. . Dætur, tengdasynir, barnabörn, tengdabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ástkær maður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN KARL BJARNASON, Svarthömrum 68, Reykjavík, varð bráðkvaddur að heimili sínu 14. september. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 23. september kl. 15. . Álfhildur S. Jóhannsdóttir, Þórarinn Gunnarsson, Gunnar Þór Jóhannsson, Þóra Egilsdóttir, Guðmundur I. Jóhannsson, Kristín Jóhannsdóttir, Sumarliði Kristmundsson, Bjarni J. Jóhannsson, Jóna Gr. Ragnarsdóttir, Ísak Jóhann Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGA GUÐRÚN GUNNLAUGSDÓTTIR sjúkraliði, Víðihlíð 10, andaðist á dvalarheimilinu Grund 14. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. september kl. 13. . Sigurjón Hreiðar Gestsson, Sigríður Sigurjónsdóttir, Eiríkur Steingrímsson, Gunnlaugur Sigurjónsson, Þórdís Arnardóttir, Rúnar Sigurjónsson, Kristín Loftsdóttir, Arney Eva, Inga Guðrún, Halla, Jón Hreiðar og Ragna Steinunn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÁSLAUG SIGMUNDSDÓTTIR, lést 7. september síðastliðinn á Heilbrigðisstofnun Hvammstanga. Minningarathöfn fer fram frá Hvammstangakirkju 21. september kl. 13. Jarðsett verður í Mosfellskirkjugarði (nýja) kl. 18. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Hvammstanga, með þökk fyrir einstaka umönnun, nærgætni og hlýhug. . Baldur Skarphéðinsson, Eiríkur Sören Guðnason, Þorgerður Kristinsdóttir, Guðrún Nikólína Guðnadóttir, Guðmundur Sigurgeirs., Sigmundur Vilberg Guðnason, María Brink, Auðbjörg Kristín Guðnadóttir, Þormar Þór Garðarsson, Svanhvít Gróa Guðnadóttir, Þorvaldur Steingrímsson, Margrét Þórunn Guðnadóttir, Unnur Kolka Leifsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN FANNDAL ÞÓRÐARSON, frá Laugarási við Ísafjarðardjúp, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánudaginn 21. september kl. 15. . Margrét Magnúsdóttir, Hanna Sigurjónsdóttir, Bjarnþór Gunnarsson, Helga María Jónsdóttir, Styrmir Sigurðsson, Magnús Jónsson, Erna Ragúels, Halldór Jónsson, Guðrún Benediktsdóttir, Jón Þór Jónsson, Oddný Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.