Morgunblaðið - 17.09.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 17.09.2015, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2015 I Want to be Weird, heimildamynd Brynju Daggar Friðriksdóttur, verður sýnd á norrænu stutt- og heimildamyndahátíðinni Nordisk Panorama í Malmö í Svíþjóð 18.-23. september nk. og verður ein 14 heimildamynda sem keppa um verðlaun sem besta norræna heim- ildamyndin. Myndin fjallar um bresku listakonuna Kitty Von Sometime sem hefur verið búsett á Íslandi í tíu ár og er þekktust fyrir The Weird Girls Project, röð verka eða myndbandsþátta þar sem kon- ur eru í forgrunni. Heimildamyndin fylgir Kitty eftir í daglegu lífi og við vinnu á verk- um sínum. Myndin verð- ur sýnd 19. og 21. september og munu Brynja og Kitty svara spurningum áhorfenda að sýningum loknum. Kitty mun einn- ig halda fyrirlestur um verk sín á hátíðinni að lokinni fyrri sýningu myndarinnar. Heimildamyndin I Want to be Weird í keppni á Nordisk Panorama Kitty von Sometime Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Meginþema verksins snýst um þrá eftir velgengni í nú- tímasamfélagi. Annað áberandi þema er leit að karl- mennsku í samtímanum,“ segir Björn Leó Brynjarsson um nýjan einleik sinn sem nefnist Frami og sviðs- listahópurinn Takataka setur upp. Sýningin var forsýnd á leiklistarhátíðinni Lókal í seinasta mánuði og verður formlega frumsýnd í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20.30. Björn Leó er bæði höfundur og leikstjóri sýningarinnar, en Pétur Ár- mannsson er aðstoðarleikstjóri og dramatúrg, Daníel Þorsteinsson hannar grafík og vídeó fyrir sýn- inguna og Kolbeinn Arnbjörnsson leikur. Að sögn Björns Leós þekkjast þeir félagar mjög vel. „Við Kolbeinn og Pétur vorum allir í Listaháskól- anum á sama tíma,“ segir Björn Leó, sem hálfur útskrifaðist af sviðshöf- undabraut LHÍ árið 2011, en þeir Kolbeinn og Pétur af leikarabraut vorið 2012. „Meðan við vorum í LHÍ bjugg- um við líka saman um árs tíma og í dag erum við Kol- beinn að vinna saman sem stuðningsfulltrúar á bráða- geðdeild. Þannig að þetta er mikill vinahópur þar sem ríkir mikið traust í öllu sköpunarferlinu,“ segir Björn Leó og bendir á að þeir Daníel hafi unnið saman á aug- lýsingastofu. Þróa eigið leiklistartungumál „Verkið fjallar um myndlistarmann sem er með óraun- hæfar væntingar og gerir miklar kröfur til sjálfs sín. Uppfærslan dregur upp mynd af innri rökræðu lista- mannsins og mögulegum aðstæðum sem hann sér sjálfan sig lenda í,“ segir Björn Leó og bendir á að mikið fari fyrir líkamlegu leikhúsi í sýningunni. „Við notum fyrst og fremst leikhúsmiðilinn, en blöndum inn í þetta kóreó- grafíu og nærveru líkamans. Að mörgu leyti er þetta því býsna hefðbundin leiksýning, en við leitum þó á nýjar slóðir í framsetningunni,“ segir Björn Leó og tekur fram að sviðslistahópurinn sé að reyna að tileinka sér sínar eigin vinnuaðferðir. „Við viljum þannig búa til og þróa okkar eigið leiklist- artungumál sem við höfum ekki séð mikið annars staðar. Leiklistartungumálið okkar birtist fyrst og fremst í af- stöðu leikarans gagnvart viðfangsefninu. Það er ákveðin frásögn í textanum og við reynum að láta framsetningu leikarans á köflum stangast á við söguframvinduna með áhrifaríkum hætti.“ Aðspurður segir Björn Leó sýninguna, sem tekur tæpa klst. í flutningi, leikna á íslensku. „En við eigum hins vegar enska þýðingu á textanum og okkur dreymir um að koma sýningunni á framfæri erlendis,“ segir Björn Leó og bendir á að í framhaldi af Lókal hafi hópn- um verið boðið að sýna verkið á leiklistarhátíð í Finn- landi sem verið sé að skoða nánar. Þess má að lokum geta að næstu sýningar verða 20. september, 8. og 18. október kl. 20.30. „Þrá eftir velgengni“ Karlmennska Kolbeinn Arnbjörnsson leikur í Frama.  Einleikurinn Frami frum- sýndur í Tjarnarbíói í kvöld Björn Leó Brynjarsson Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Where to Invade Next, nýjasta heimildamynd Michaels Moore, var frumsýnd á alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Toronto 10. sept- ember sl. Í myndinni ferðast Moore til nokkurra landa, m.a. Íslands, og kynnir sér ólíkar aðferðir þjóða þeg- ar kemur að því að leysa ýmis sam- félagsleg, stjórnmálaleg og efna- hagsleg vandamál. Meðal þeirra sem komu að gerð myndarinnar er kvikmyndagerðar- konan Ísold Uggadóttir. Hún segist ekki hafa séð myndina og viti því ekki hversu mörg lönd komi við sögu í henni en Moore hafi farið til 12 Evrópulanda til að sjá hvað þau gætu boðið upp á hugmynda- fræðilega. Titillinn sé ádeila á bandarísk stjórnvöld, tilhneigingu þeirra til að ráðast inn í lönd og nýta og eigna sér auðlindir þeirra. „Hann fékk þá áhugaverðu hugmynd að ráðast inn í ákveðin Evrópulönd og „stela“ auðlindum þeirra, sem eru þá hugmyndirnar. Hann sér að Evrópa býr yfir mörgum góðum hug- myndum sem Bandaríkin hafa verið að falla frá, einkum þeim sem snúa að velferðarkerfi og jafnrétti. Þegar kom að Íslandshlutanum vildi þann- ig til að ég var stödd í New York, í mars sl., var þar að vinna að eigin verkefnum og hitta fólk. Ég fékk símtal frá vinkonu minni sem átti kunningja sem var að vinna við þessa mynd og það vantaði mann- eskju til þess að koma inn í verkefnið og opna fyrir aðgengi að fólki á Ís- landi, sjá hvaða viðmælendur væri hægt að fá. Það fór mikill tími í að kasta fram hugmyndum og við vor- um ekki að vinna beint saman með Moore heldur var þetta mikið appa- rat og margir sem komu að málum,“ segir Ísold. Heillaður af Vigdísi Meðal þeirra sem Moore ræddi við á Íslandi voru Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrverandi forseti Ís- lands, Birgitta Jónsdóttir þingmað- ur og Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Ísold segir að Moore hafi m.a. verið bent á rétt- indabaráttu samkynhneigðra hér á landi, að fyrsta konan í embætti for- seta í heiminum væri íslensk og að Jóhanna Sigurðardóttir hafi verið fyrsta opinberlega samkynhneigða konan til að gegna starfi forsætis- ráðherra í heiminum. Moore hafi þótt mikið koma til sterkrar stöðu kvenna hér á landi og þá m.a. í stjórnmálum og viðskiptalífi. „Þegar undirbúningsferlið var bú- ið að standa yfir í nokkra mánuði kom hann til landsins. Það var svolít- ið fyndið því búið var að brýna mikið fyrir manni hversu mikið leynd- armál verkefnið væri en svo mætti hann í Leifsstöð með bandaríska fánann. Það fór náttúrlega beint í blöðin og var hluti af myndinni,“ seg- ir Ísold kímin. Moore hafi aug- ljóslega verið að deila á heimaland sitt með þessu uppátæki. Ísold segir Moore hafa farið víða meðan á dvöl hans á Íslandi stóð, unnið með margar hugmyndir og rætt við marga en ekki hafi verið hægt að nýta allt efnið í myndina. „Ég veit fyrir víst að Vigdís Finn- bogadóttir er í myndinni,“ segir Ís- old. Vigdís hafi boðið Moore og töku- liðinu inn á heimili sitt og verið afar elskuleg og afslöppuð. „Michael var svo heillaður af henni, eins og við öll í tökuliðinu, að hann ætlaði aldrei að hætta,“ segir Ísold. Kafli um íslenskar konur „Mér skilst að myndin endi á kafla um íslenskar konur, hversu langt þær hafa náð á ýmsum sviðum, m.a. í pólitík og fjármálageiranum,“ segir Ísold. Moore hafi m.a. rætt við Höllu Tómasdóttur, einn stofnenda Auðar Capital, og verið afar hrifinn af því sem hún hafði að segja um þátt kvenna í viðskiptum og hvernig hann geti bætt og breytt starfsháttum til hins betra. „Þannig að hugmynda- fræðin á bak við þennan Íslandsþátt er svolítið þessi: Hvað ef konur réðu bara heiminum? Væri hann þá ekki miklu betri?“ segir Ísold að lokum. Ef konur réðu heiminum Vinalegur Ísold ber Moore vel söguna og segist hafa knúsað hann þegar hann hélt af landi brott. Hér sjást þau saman í Leifsstöð fyrir brottför.  Ísold Uggadótt- ir vann við mynd Michaels Moore Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl. Billy Elliot (Stóra sviðið) Fös 18/9 kl. 19:00 5.k. Fös 25/9 kl. 19:00 8.k. Sun 4/10 kl. 19:00 11.k Sun 20/9 kl. 19:00 6.k. Sun 27/9 kl. 19:00 9.k Fös 9/10 kl. 19:00 12.k Fim 24/9 kl. 19:00 7.k. Lau 3/10 kl. 19:00 10.k Lau 10/10 kl. 19:00 13.k Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Lau 19/9 kl. 20:00 3.k. Lau 26/9 kl. 20:00 5.k. Fös 2/10 kl. 20:00 6.k. Mið 23/9 kl. 20:00 4.k. Fim 1/10 kl. 20:00 aukas. Sun 11/10 kl. 20:00 aukas. Aðeins þessar sýningar! At (Nýja sviðið) Fim 17/9 kl. 20:00 fors. Mið 23/9 kl. 20:00 3.k. Mið 30/9 kl. 20:00 6.k. Fös 18/9 kl. 20:00 1.k. Fim 24/9 kl. 20:00 4.k. Lau 3/10 kl. 20:00 7.k. Sun 20/9 kl. 20:00 2 k. Fös 25/9 kl. 20:00 5.k. Sun 4/10 kl. 20:00 8.k. Breskt verðlaunaverk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 20/9 kl. 13:00 1.k. Lau 10/10 kl. 13:00 4.k. Sun 1/11 kl. 13:00 8.k. Sun 27/9 kl. 13:00 2 k. Sun 18/10 kl. 13:00 6.k. Sun 4/10 kl. 13:00 3.k. Sun 25/10 kl. 13:00 7.k. Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 19/9 kl. 20:00 2 k. Lau 10/10 kl. 20:00 4.k. Fös 23/10 kl. 20:00 6.k. Lau 26/9 kl. 20:00 3.k. Lau 17/10 kl. 20:00 5.k. Fös 30/10 kl. 20:00 7.k. Kenneth Máni stelur senunni Mávurinn (Stóra sviðið) Fös 16/10 kl. 20:00 1.k. Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k. Mið 21/10 kl. 20:00 2 k. Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k. Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki Hystory (Litla sviðið) Fös 18/9 kl. 20:00 2 k. Fös 25/9 kl. 20:00 4.k. Sun 20/9 kl. 20:00 3.k. Sun 27/9 kl. 20:00 5.k. Aðeins þessar sýningar! Sókrates (Litla sviðið) Fim 1/10 kl. 20:00 1.k. Fim 8/10 kl. 20:00 5.k. Fim 22/10 kl. 20:00 9.k Fös 2/10 kl. 20:00 2 k. Fös 9/10 kl. 20:00 6.k. Lau 31/10 kl. 20:00 10.k Lau 3/10 kl. 20:00 3.k. Sun 11/10 kl. 20:00 7.k. Þri 3/11 kl. 20:00 Sun 4/10 kl. 20:00 4.k. Mið 21/10 kl. 20:00 8.k. Fim 5/11 kl. 20:00 Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina Vegbúar (Litla sviðið) Fim 15/10 kl. 20:00 1.k. Þri 20/10 kl. 20:00 4.k. Mið 28/10 kl. 20:00 Fös 16/10 kl. 20:00 2 k. Lau 24/10 kl. 20:00 5.k. Fim 29/10 kl. 20:00 Sun 18/10 kl. 20:00 3.k. Sun 25/10 kl. 20:00 6.k. Sun 1/11 kl. 20:00 Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Fim 17/9 kl. 19:30 Aukas. Sun 27/9 kl. 19:30 8.sýn Sun 18/10 kl. 19:30 14.sýn Fös 18/9 kl. 19:30 3.sýn Fös 2/10 kl. 19:30 9.sýn Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn Lau 19/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 10.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn Sun 20/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 4/10 kl. 19:30 11.sýn Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn Fös 25/9 kl. 19:30 6.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 12.sýn Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 26/9 kl. 19:30 7.sýn Lau 17/10 kl. 19:30 13.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Móðurharðindin (Kassinn) Fim 17/9 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/9 kl. 19:30 10.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 14.sýn Fös 18/9 kl. 19:30 7.sýn Sun 27/9 kl. 19:30 11.sýn Fös 9/10 kl. 19:30 15.sýn Lau 19/9 kl. 19:30 8.sýn Fim 1/10 kl. 19:30 12.sýn Lau 10/10 kl. 19:30 16.sýn Fim 24/9 kl. 19:30 9.sýn Fös 2/10 kl. 19:30 13.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 17.sýn Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna. Heimkoman (Stóra sviðið) Lau 10/10 kl. 19:30 Frums. Sun 25/10 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn Mið 14/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 29/10 kl. 19:30 6.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 10.sýn Fim 15/10 kl. 19:30 3.sýn Sun 1/11 kl. 19:30 7.sýn Fös 16/10 kl. 19:30 4.sýn Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters. 4:48 PSYCHOSIS (Kúlan) Sun 20/9 kl. 18:00 4.sýn Mið 23/9 kl. 19:30 Lau 26/9 kl. 19:30 Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan) Lau 10/10 kl. 13:30 Lau 17/10 kl. 13:30 Lau 10/10 kl. 15:00 Lau 17/10 kl. 15:00 Kuggur og félagar eru komnir aftur í Kúluna. DAVID FARR HARÐINDIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.