Morgunblaðið - 17.09.2015, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 17.09.2015, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2015 Danski rithöfund- urinn Vibeke Nørgaard Niel- sen heldur í kvöld, fimmtu- dagskvöld, klukkan 20 erindi í Vatnasafni í Stykkishólmi um efni bókar sinnar Listamaður á söguslóðum – Johannes Larsen á ferð um Ísland 1927 og 1930. Gunnar Gunnarsson rithöfundur og vinur hans, danski rithöfund- urinn Johannes V. Jensen, áttu frumkvæði að veglegri útgáfu Ís- lendingasagnanna í Danmörku í til- efni þúsund ára afmælishátíðar Al- þingis árið 1930. Til að gera veg sagnanna sem mestan fengu þeir hinn þekkta listmálara Johannes Larsen til að túlka sögusviðið í myndum. Larsen fór í tvær erfiðar ferðir um Ísland á árunum 1927 og 1930, kynntist landi og þjóð og vann verk sitt á aðdáunarverðan hátt. Ólafur Túbals, bóndi og listmálari í Múlakoti, var aðalfylgdarmaður hans. Myndir Larsens eru hófstillt og blæbrigðarík listaverk. Nørgaard Nielsen hefur kynnt sér ítarlega dagbækur Larsens og Ólafs og ferðast í fótspor þeirra um Ís- land. Fjallar um teikn- ingar og skrif Larsens frá Íslandi Vibeke Nørgaard Nielsen Tengdist öllum í höllinni Morgunblaðið/Golli Blá og flott Jessie J litaði á sér hárið blátt fyrir Íslendinga. Hún ætlaði að reyna að sjá norðurljósasýningu strax eftir tónleikana og endaði á því að segja: „Vonandi get ég komið aftur til ykkar sem fyrst. Þið voruð frábær. Takk fyrir mig.“ Aðdáendur hennar sögðu sigri hrósandi á leiðinni út: „Ég ætla aftur.“ arnar mun betur en snjallsími. Viti menn. Unglingarnir lögðu frá sér símann og dilluðu sér í takt við takfast lag. Hversu margir for- eldrar hafa reynt að segja við unglinginn sinn: leggðu nú frá þér símann, og ekkert gengið? Jákvæð skilaboð Poppstjarnan talar mikið við áhorfendur á tónleikum sínum. Á því var engin undantekning í Laugardalshöllinni. Hún sagði að áhorfendur sínir hér á landi væru kurteisir. Það þögnuðu bara allir þegar hún talaði. Og hún hefur skilaboð fram að færa, góð og já- kvæð skilaboð sem trúlega 5.000 ungmenni tóku með sér út í lífið. Hún spurði frétta af Íslandi. Reyndi að bera fram Grindavík, segja Jórunn og fékk derhúfu lán- aða úr sal. Það var pínu fyndið. Þá var hún að fara að flytja lagið „Do It Like A Dude“ en hafði týnt derhúfunni sinni. Öll hljóm- sveitin var komin með húfur og tilbúin að slá í en stjörnuna vant- aði sína húfu. Spurði einhvern strák hvort hún mætti fá hans húfu lánaða sem var lítið mál. Þetta er bara ein saga af mörgum um hve nálægt hún var áhorf- endum. Jessie J er poppstjarna í hæsta gæðaflokki. Hljómsveitin var mögnuð, bakraddasöngurinn var glæsilegur og stjarnan skilaði sínu. Efast um að til sé betri söng- kona í dag. Hápunktarnir voru fjölmargir og kunnu stelpurnar sem voru í kringum mig nánast öll lögin. „Flashlight“, „Price Tag“, „No- body is Perfect“ og önnur stórgóð lög kunnu allir upp á 10. Þegar hún bað salinn um að syngja þá tók salurinn svo sannarlega undir. Jessie J sagði frá því að hún kynni ekki vel við það að vera fræg og kynni í raun ekkert að vera fræg. En hún kann svo sann- arlega að vera flott á sviði og fá áhorfendur með sér. Það tókst. Stífur og stirður Hún endaði tónleikana á „Bang Bang“-laginu sínu sem við feðgin höfum sungið svo oft í sum- ar. Það var ekki að sjá á salnum að hann hefði verið að dansa í 90 mínútur. Það var svakaleg keyrsla og stuð og endirinn var frábær. Í dag er ég enn með suð í eyr- um og axlirnar eru heldur stífar enda eldri dóttirin orðin 9 ára. Það er ekkert grín að vera með hana á háhesti heila tónleika. En það sem hún var glöð og ég efast um að brosið fari af henni næstu daga. Allir muna nefnilega eftir fyrstu stórtónleikunum sínum og ég er ánægður að hafa farið með hana á þessa tónleika því skilaboð Jessie J hitta svo sannarlega í mark og ekki skemma lögin. »Hún spurði fréttaaf Íslandi. Reyndi að bera fram Grindavík, segja Jórunn og fékk derhúfu lánaða úr sal. Snjallsímar Jessie J bað gesti sína að setja símann í vasann og horfa á eitt lag án hans, kannski dansa ef þeir vildu. Sagðist vilja sjá framan í fólk. AF TÓNLEIKUM Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Eftir tónleika Jessie J er égkominn um borð í Jessie J-lestina. Ég er enginn lestarstjóri en er orðinn aðdáandi. Eldri dóttir mín er mikill aðdá- andi og við skelltum okkur saman á tónleika. Eftir glæsilega upphitun Glowie datt allt í dúnalogn í góðan hálftíma eða svo en eftirvæntingin í salnum var mikil eftir stjörn- unni. Jafnvel þegar hljóðmað- urinn kom til að stilla gítar eða söngstatíf eða hvað sem er þá ærðist fólk af fögnuði. Stjarnan lét aðeins bíða eftir sér en keyrði síðan af stað í glæsilegt 90 mín- útna ferðalag. Sagði sögur af sjálfri sér Jessie höfðar til stúlkna sem eru óöruggar og lætur þeim líða vel. Það er magnaður hæfileiki. Hún höfðar líka til fleiri að sjálf- sögðu. Á milli laga stoppaði hljómsveitin og gítarleikarinn plokkaði gítarinn á meðan ofur- stjarnan sagði sögur af sjálfri sér. Að það sé allt í lagi að vera stund- um í vondu skapi og fleira. Unglingarnir hlusta greini- lega vel á það sem stjarnan hefur að segja því í einu laginu fékk hún snjallsímakynslóðina til að leggja frá sér símann. Bara hlusta. Sagði að það væri til nokkuð sem héti heili og hann geymdi minning- MAZE RUNNER 6,9 NO ESCAPE 5:45,8 STRAIGHTOUTTACOMPTON 10:15 ABSOLUTELY ANYTHING 5:30 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar Póstsendum hvert á land sem er | Laugavegi 178 | Opið mán-fös 10-18, lau. 10-14 | S. 551-2070/551-3366 | www.misty.is Þú svífur á þessum! Stærðir: 36-41 Verð: 12.870/15.870 2 frábærir Nýtt íMisty SOPHIE - létt fylltur í D-G skálum á kr. 7.990 og buxur kr. 3.550 SOPHIE - þunnur, en haldgóður í D-G skálum á kr. 7.990

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.