Skólavarðan - 01.05.2007, Blaðsíða 4

Skólavarðan - 01.05.2007, Blaðsíða 4
4 LEIÐARI EFNISYFIRLIT SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 7. ÁRG. 2007 Forsíðumynd: Selma og Baldur, leikskólanum Fellaborg. Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959 Prentun: Svansprent Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín) og 595 1119 (Helgi). Laufásvegi 81, 101 Reykjavík Stóru verkefnin í menntamálunum 3 Formannspistill eftir Aðalheiði Steingrímsdóttur Tuttugustu og sjöttu greinarnar 4 Leiðari Shafallah skólinn í Doha, Katar 5 Gestaskrif eftir Guðrúnu D. Guðmundsdóttur Kjaramál: Foreldraorlof 7 Ársfundir KÍ og skólamálaráðs 8 Ályktað og fjallað um forgangsatriði í menntamálum og tíu punkta samkomulagið Leiksoppinn af snaganum og leiðtogann sýnilegan! 10 Edda Kjartansdóttir og Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir fjalla um kennarann sem leiðtoga Hver er staða leikskólans í samfélaginu? 13 Íslenskun menntastefna og -framkvæmd, 2. grein Orlofshús – orlofshús! 18 Þú lest ekki nema þú skiljir 20 Námsferð sérkennara til Baltimore Sleggjudómum um fjarnám svarað 24 Rannsóknastofa í menntunarfræðum ungra barna 25 Ungir frumkvöðlar á Austurlandi 28 Vangaveltur og athugasemdir 29 Þorsteinn Þorsteinsson rekur smiðshöggið á blaðið Þjóðaratkvæðagreiðslur hafa menn rætt töluvert hérlendis, ekki síst í sambandi við Íraksstríðið, Kárahnjúkavirkjun og fjöl- miðlafrumvarpið sem forseti Íslands synjaði staðfestingar eins og 26. grein stjórnarskrárinnar veitir honum heimild til. Ekki kom til þess að lögin væru borin undir þjóðina þar sem þau voru dregin til baka. Írak og Kárahnjúkar komust aldrei nálægt því að vera lögð fyrir dóm þjóðarinnar. Íslendingar virðast afskaplega lítið hrifnir af þjóðaratkvæðagreiðslum og einungis fimm sinnum hefur þjóðin gengið til atkvæða um einstök mál, síðast lýðveldisárið 1944. Fyrir fjörutíu árum samþykktu Danir að þriðjungur þingsins gæti ákveðið þjóðaratkvæðagreiðslu um nýsamþykkt lög og skyldi atkvæðagreiðsla fara fram innan fárra vikna. Til að byrja með óttuðust menn að minnihlutinn myndi ganga á lagið og beita þessari heimild óspart. Það varð ekki. Talið er að í heimildinni sé fólginn fælingarmáttur sem valdi því að meirihlutinn reyni síður að þvinga í gegn mál sem eru óvinsæl hjá almenningi. Þriðjungsreglan hefur þannig e.t.v. orðið til þess að efla lýðræðið í landinu. Lítil hefð er fyrir því hérlendis að forseti beiti heimildinni sem 26. grein stjórnarskrárinnar veitir honum og leiðir til þjóðar- Tuttugustu og sjöttu greinarnar Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is Ábyrgðarmaður: Eiríkur Jónsson eirikur@ki.is Umsjónarmaður félagatals: Sigríður Sveinsdóttir sigridur@ki.is / sími 595 1115 Hönnun: Zetor ehf. Ljósmyndir: Jón Svavarsson, nema annars sé getið atkvæðagreiðslu, nema lagafrumvarp sé dregið til baka eins og gerðist með fjölmiðlalögin. 26. greinin er ekkert vinsæl frekar en þjóðaratkvæðagreiðslan. Loks eru það skoðanakannanir. Eins og sagan sannar eru niðurstöður þeirra iðulega hunsaðar af stjórnvöldum. Það er áhyggjuefni að almenningur hefur fá og rýr ráð til að hafa áhrif á framkvæmd landsmála önnur en þau sem kosningarétturinn veitir á fjögurra ára fresti. Helst er ávinnings að vænta ef tekst að fá sjónvarpið til að snúast á sveif með tilteknu máli. Menntunarmál eru ekki líkleg til framgöngu þar, þau eru einfaldlega ekki nógu sexí málaflokkur. Til er önnur 26. grein sem er okkur mjög mikilvæg ef við tökum hana alvarlega, rétt eins og sú tuttugasta og sjötta í stjórnarskránni. Þetta er 26. grein Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Hún hljóðar svo: „Hver maður á rétt til menntunar. Skal hún veitt ókeypis, að minnsta kosti barnafræðsla og undirstöðumenntun. Börn skulu vera skólaskyld. Iðnaðar- og verknám skal standa öllum til boða og æðri menntun vera öllum jafnfrjáls, þeim er hæfileika hafa til að njóta hennar. Menntun skal beina í þá átt að þroska persónuleika einstak- linganna og innræta þeim virðingu fyrir mannréttindum og mannhelgi. Hún skal miða að því að efla skilning, umburðarlyndi og vináttu meðal allra þjóða, kynþátta og trúarflokka og að efla starf Sameinuðu þjóðanna í þágu friðarins. Foreldrar skulu fremur öðrum ráða hverrar menntunar börn þeirra skuli njóta.“ Takið eftir því að inntak menntunar er skv. 26. greininni persónuþroski einstaklinga og virðing fyrir mannréttindum og mannhelgi. Menntunarfræðingurinn Joel Spring hefur lagt til að Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna verði grundvöllur skólamenntunar um allan heim. Það er hins vegar langt í land og kannski borin von að samstaða náist í þeim efnum. Menntun fyrir atvinnulífið er í örum vexti um víða veröld og þar eru mannréttindi og mannhelgi í besta falli í öðru sæti á eftir fjárhagslegum ávinningi, sem veifað er eins og gulrót framan í nemendur til að fá þá til að mennta sig fyrir stórfyrirtækin. Meira að segja Education for all (EFA) sem mestar vonir eru bundnar við að vinni að menntun til mannréttinda á alþjóðlegum grunni er tvíbent í afstöðu sinni. EFA hefur verið gagnrýnt fyrir tvískinnung í afstöðunni til mannréttinda og fyrir að vinna að nýfrjálshyggjulegri stefnu í menntun fyrir atvinnulífið. Í mark- miðum EFA er skólum í senn ætlað að félagsmóta nemendur til hlýðni við ríkjandi gildi og stigveldi og hins vegar að ögra stigveldinu og umbreyta samfélaginu í átt til meiri jöfnuðar. Getur þetta farið saman? Kristín Elfa Guðnadóttir Kristín Elfa Guðnadóttir

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.