Skólavarðan - 01.05.2007, Blaðsíða 25
FJARNÁMSUMRÆÐAN, STOFNUN RANNSÓKNASTOFU
25
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 7. ÁRG. 2007
treyst til að standa við sitt. Það er gert í
öllu námi.
Það er hægt að svindla í öllu námi
og það gildir jafnt um fjarnám sem
dagskóla. Nemendur í dagskóla geta
skilað ritgerðum sem aðrir hafa samið.
Hið sama er uppi á teningnum í fjarnámi.
Það væri nær að kennarar tækju höndum
saman um að leita leiða gegn þessu
fremur en að væna hverjir aðra um svindl
á borð við einingasölu. Það er hinsvegar
mat mitt að íslenskir framhaldsskólar séu
þrátt fyrir miðstýringu eins ólíkir og þeir
eru margir og námsmat þeirra einnig. Það
eru nemendur einnig og eiga því kost á
að velja sér skóla sem þeir telja að sé við
þeirra hæfi. Það ætti að vera sameiginlegt
markmið okkar að skólar fái að efla starf
sitt og sérhæfa sig í þágu nemenda.
Nýframkomnar tillögur Kennara-
sambandsins og yfirvalda mennta-
mála eru á vissan hátt skref í þá
átt að auka sjálfstæði skóla um
námsframboð. Þar er fjarnám
eðlilegur hluti af námsframboðinu.
Ég er tilbúin hvenær sem er að taka
á móti þeim Jens og Jóni Árna og
sýna þeim hvað er að gerast í raun
og veru í fjarnáminu. Eða heimsækja
þá á upp á Skaga henti það betur.
Steinunn H. Hafstað
Höfundur er fjarnámsstjóri
Fjölbrautaskólans
við Ármúla.
Þann 15. maí sl. var undirritaður samn-
ingur um stofnun rannsóknastofu í
menntunarfræðum ungra barna við
Kennaraháskóla Íslands. Forstöðumaður
rannsóknastofunnar er Jóhanna Einars-
dóttir prófessor við Kennaraháskóla Íslands.
Að öðrum ólöstuðum á Jóhanna veg og
vanda af tilurð stofnunarinnar. Forsagan
er sú að á alþjóðlega og stórglæsilega
Evrópuráðstefnu um rannsóknir á sviði
ungra barna, sem haldin var hérlendis
í fyrra, kom miklu meiri fjöldi en fólk
hafði látið sig dreyma um. Af þessum
sökum varð verulegur tekjuafgangur af
ráðstefnunni. Jóhönnu datt þá í hug hvort
ekki væri ráð að nota þessa peninga til
stofnunar rannsóknastofu og fór að leita
hófanna með samstarfsaðila.
Niðurstaðan varð vísindaleg rannsóknar-
stofnun með aðsetur í Kennaraháskóla
Íslands og með tilstyrk umboðsmanns barna,
Reykjavíkurborgar og Kennarasambands
Íslands. Þetta eru gleðileg tíðindi og marka
tímamót í íslenskum menntarannsóknum.
Elna Katrín Jónsdóttir varaformaður KÍ
og formaður skólamálaráðs KÍ skrifaði
undir samninginn fyrir hönd sambandsins.
Í máli Elnu Katrínar kom meðal
annars fram að auk þess að
Kennarasambandið vildi stuðla að
eflingu menntarannsókna væri
það sérstaklega ánægt með þá
tengingu skólastiga sem rann-
sóknarstofan stendur fyrir.
Menntunarfræði ungra barna
er það fræðasvið sem fjallar um
börn, aðstæður þeirra og nám frá
fæðingu til átta ára. Aðalmarkmið
rannsóknastofunnar er að auka
og efla rannsóknir á menntun og
uppeldi ungra barna og vera vett-
vangur fræðaþróunar á því sviði.
Rannsóknastofunni er ætlað það
hlutverk að eiga frumkvæði að og
sinna rannsóknum, miðla þekkingu
og kynna niðurstöður rannsókna
á sviðinu m.a. með útgáfu fræði-
greina og fræðirita og með
fyrirlestrahaldi. Rannsóknastofan
markar að vonum upphafið á tilurð
samsvarandi vísindastofa um tiltekin
fræðasvið menntunar, en Ólafur
Proppé nefndi í því samhengi t.d.
svið fjölmenningar og stærðfræði.
Rannsóknastofa í menntunarfræðum
barna frá fæðingu til átta ára aldurs
Björg Bjarnadóttir og Elna Katrín
Jónsdóttir á tröppum Kennara-
háskólans fyrir stofnfund og
undirritun samningsins um rann-
sóknastofuna.
Þann 15. maí undirrituðu þau Ingibjörg Rafnar
umboðsmaður barna, Elna Katrín Jónsdóttir
varaformaður Kennarasambands Íslands,
Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands
og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður
leikskólaráðs Reykjavíkurborgar samning um
stofnun Rannsóknastofu í menntunarfræðum
ungra barna.