Skólavarðan - 01.05.2007, Blaðsíða 30
30
SMIÐSHÖGGIÐ
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 7. ÁRG. 2007
þótt þroskinn hafi ekki verið mikill á 16 ára
aldrinum við lok grunnskólans. Nýlegar
rannsóknir og margvíslegar athuganir
staðfesta þetta rækilega.
Til frekari upplýsinga nefni ég að í
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ voru alls
29 hægferðarhópar á haustönn 2006. Í
byrjun voru innritaðir að meðaltali nærri
23 nemendur í hóp. Til prófs gengu að
meðaltali um 20 nemendur í hóp. Brott-
fallið var um 10%. Í hraðferðarhópum,
þar sem nemendur voru með einkunnir
8, 9 og 10 á grunnskólaprófi, er brottfall
nánast ekkert. Fjárhagslegt tjón skólans af
brottfalli skiptir tugum milljóna.
Reiknilíkanið í núverandi mynd ýtir
út nemendum með einkunnir 4,5 - 6,5 á
samræmdum prófum 10. bekkjar grunn-
skóla. Þetta eru nemendur sem þurfa oft
stuðning og ráðgjöf við upphaf skóla-
göngu sinnar í framhaldsskóla. Þess vegna
eru fleiri vinnustundir fagaðila innan
skólans á bak við þá en nemendur með
háar einkunnir. En að refsa mönnum í
reiknilíkani og beita hörðustu kröfum
um endurgreiðslu vegna þjónustu skóla
við þetta fólk er hreint og klárt vanmat á
vitrænni skólastefnu.
Lagfæringar
Undanfarin ár hef ég lagt til að reiknilíkanið
verði lagað til að hjálpa skólunum að
taka við breiðum hópi nemenda. Síðast
gerði ég grein fyrir þessu máli á sam-
starfsnefndarfundi skólameistara með
ráðherra og embættismönnum mennta-
málaráðuneytisins í apríl sl. Við þurfum að
sameinast um þessar lagfæringar:
Einungis verði settar réttar og nákvæmar
kostnaðartölur í reiknilíkanið.
Sparnaðarkrafa, ef einhver er, verði
sett á sérstakan stað í reiknilíkanið til að
menn sjái hvað um er að ræða.
Talningardagur nemenda verði þegar
mánuður er liðinn af önn eins og þekkist
alls staðar í hinum vestræna heimi. Til vara
mætti hafa talningardag á miðri önn.
Nýtingarhlutfall í hægferðaráföngum
verði lagað að þeirri staðreynd að nem-
endur sem standa höllum fæti eru í meiri
brottfallshættu en aðrir.
Reiknilíkanið verði einfalt og aðgengi-
legt.
Reiknilíkansnefnd verði virk og taki
ákvarðanir um stefnu og nauðsynlegar
breytingar.
Að lokum
Ég er og hef verið harður talsmaður reikni-
líkans um fimmtán ára skeið. Ég tel afar
brýnt að nú verði notuð akademísk hug-
myndafræði til að laga reiknilíkanið að
þörfum skóla sem hafa það hlutverk að
taka við öllum nemendum. Við erum
nefnilega farin að ræða um það að færa
skólaskylduna til 18 ára aldursins.
Ég er alls ekki sammála þér, Aðalsteinn,
í þeim vangaveltum þínum að hugsanlega
sé tími reiknilíkansins liðinn. Öðru nær!
Nú þurfum við að bretta upp ermar og
við bindum mörg miklar vonir við störf
nýskipaðrar reiknilíkansnefndar.
Þorsteinn Þorsteinsson
Höfundur er skólameistari
Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Reiknilíkanið í núverandi mynd ýtir út nemendum með einkunnir
4,5 - 6,5 á samræmdum prófum 10. bekkjar grunnskóla. Þetta
eru nemendur sem þurfa oft stuðning og ráðgjöf við upphaf
skólagöngu sinnar í framhaldsskóla.
Norræna félagið gegn illri meðferð á
börnum (Nordisk forening mod børne-
mishandling og omsorgssvigt) stendur
fyrir fimmtu ráðstefnu sinni á Nótel
Nordica 18.-21. maí 2008.
Markmið félagsins er að standa fyrir og
styðja norrænt samstarf og skoðanaskipti
þeirra margvíslegu faghópa sem vinna
með börn og koma að barnavernd með
einhverjum hætti.
Þema ráðstefnunnar verður Börn
og vanræksla: Þarfir - skyldur - ábyrgð.
Ætlunin er að höfða til sérfræðinga á
sem flestum sviðum þar sem unnið er
með þarfir, hagsmuni og réttindi barna. Á
ráðstefnunni verður athygli beint að
vanrækslu barna í víðum skilningi, af hálfu
foreldra, sérfræðinga og samfélagsins.
Lögð verður áhersla á þverfaglega nálgun
og einnig viðhorf barna, foreldra, fram-
kvæmdavaldsins og löggjafans.
Nánari upplýsingar eru á
www.congress.is/nfbo2008
Nýútskrifaðir leikskólakennarar komu í
Kennarahúsið nýverið í boði Félags leik-
skólakennara, þáðu léttar veitingu og
kynntu sér starfsemina í húsinu. Þetta er
árlegur viðburður og alltaf skemmtileg
stemning auk þess sem kennarar mynda
tengsl við sitt stéttarfélag strax í upphafi
kennaraferilsins.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri
afhenti hvatningarverðlaun leikskóla-
ráðs Reykjavíkurborgar í Höfða mánu-
daginn 14. maí kl. 17:30. Þetta er í fyrsta
sinn sem verðlaunin eru veitt, en nýtt
leikskólaráð samþykkti að stofna til
þeirra á fyrsta fundi sínum sl. haust.
Markmið verðlaunanna er að hvetja
til nýbreytni í leikskólastarfi og vekja
athygli á því gróskumikla þróunarstarfi
sem fram fer í leikskólum borgarinnar.
Foreldrar leikskólabarna, aðrir aðstand-
endur og starfsfólk skólanna sendu inn
þrjátíu tilnefningar vegna fjölmargra
áhugaverðra þróunarverkefna í leikskólum
borgarinnar.
Af þeim hlutu sex leikskólar hvatningar-
verðlaunin:
Dvergasteinn fyrir verkefnin Ótrúleg eru
ævintýrin og Samstarf myndlistaskólans og
leikskólans.
Fellaborg fyrir fjölmenningarverkefnið
Mannauður í margbreytileika.
Hamraborg fyrir verkefnið Vísindaleikir
Nóaborg fyrir verkefnið Stærðfræði.
Sólborg fyrir verkefnin Sameiginlegt nám
fatlaðra og ófatlaðra barna og Samvinna
og fagstarf.
Steinahlíð fyrir umhverfisverkefnið Í túninu
heima.
Börn og vanræksla -
Ráðstefna að ári
Nýútskrifaðir
kennarar í heimsókn
í Kennarahúsinu
Sex leikskólar í Reykjavík
fá hvatningarverðlaun fyrir
metnaðarfullt þróunarstarf