Skólavarðan - 01.05.2007, Side 29

Skólavarðan - 01.05.2007, Side 29
29 SMIÐSHÖGGIÐ SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 7. ÁRG. 2007 Ég má til með að þakka þér, Aðal- steinn Eiríksson, fyrir greinina Á síðustu metrunum í Skólavörðunni í apríl sl. Greinin er skemmtilega skrifuð og hafði ég mikla ánægju af að lesa frásagnir þínar af eigin skólagöngu og hugleiðingar um kennslu og gildi þess sem var og er enn gert í skólastarfi á ýmsum stigum. Ég verð þó að játa að undir lok greinarinnar var ég farinn að klóra mér dálítið í höfðinu. En það er nú eins og gerist og gengur – ekki er manni gefið að skilja allt til hlítar. Á einum stað í greininni nefnir þú nafn mitt í tengslum við margrætt reiknilíkan. Það gefur mér tilefni til að setjast við tölvuna mína og skrifa þessa grein. Reiknilíkan Hugmyndir manna um reiknilíkan fyrir framhaldsskóla voru orðnar nokkuð háværar upp úr 1990. Haustið 1992 fóru Jón Gauti Jónsson fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ, Friðrik Friðjónsson þá deildar- stjóri í menntamálaráðuneytinu, Hjálmar Árnason þá skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Jón F. Hjartarson skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Þorsteinn Þorsteinsson skólameistari Fjöl- brautaskólans í Garðabæ í langa ferð, m.a. til Kanada og Danmerkur. Við kynntum okkur hugmyndir manna um aðferðir til að deila út fjármunum til framhaldsskóla með reiknilíkönum og svokölluðu taxa- meterkerfi. Við fimmmenningarnir lögðum til að gerð yrði tilraun til að smíða reiknilíkan til að ákveða sanngjarnar og eðlilegar fjárveitingar til íslenskra framhaldsskóla. Skemmst er frá því að greina að tillögum okkar var tekið vel og í kjölfarið hófst vinna á ýmsum vígstöðvum, m.a. á vegum menntamálaráðuneytisins í sérstakri nefnd sem við Aðalsteinn sátum í og nefndum gjarnan í gamni Módelsamtökin. Þróunin Smátt og smátt varð til reiknilíkan sem Aðalsteinn hefur að mestu smíðað sjálfur og sjálfsagt með góðri aðstoð ýmissa töluglöggra manna. Í mínum huga var tekin ný og dálítið sérkennileg stefna við gerð íslensks reiknilíkans. Ég hafði alla tíð lagt til að við tækjum upp aðferðir sem reyndar hafa verið úti í hinum stóra heimi og víðast hvar með góðum árangri. Niðurstaðan var önnur. Notuð var þekkt íslensk aðferð – við reyndum að finna upp hjólið sjálf. Hugmyndafræðin Á árunum 1996 og 1997 tók ég m.a. tvo áfanga í skólastjórnun á meistarastigi við háskóla í Bandaríkjunum. Grunnhugmynd fræðanna í þessum áföngum um reikni- líkan er að mæla fjármagnsþörf á eins sanngjarnan og réttlátan hátt og unnt er. Þegar sá útreikningur liggur fyrir taka við nýjar aðferðir til að láta þá fjármuni duga sem tiltækir eru hverju sinni. Með öðrum orðum: Fyrst er að sjá hvað hlutirnir kosta og síðan eru gerðar áætlanir og ráðstafanir til að láta peningana duga, svo sem með kröfu um tiltekinn sparnað í prósentum, t.d. með flötum niðurskurði. Í núverandi reiknilíkani er þessu grautað saman. Settar eru inn forsendur, sem ekki standast. Framlag vegna meðal- mánaðarlauna kennara fyrir kennslu, vegna stjórnunarstarfa, aldursafsláttar og fleiri þátta hafa jafnan verið of lág. Þetta er gert til þess að heildarniðurstöðutalan verði eins hentug og unnt er. Reiknilíkanið í núverandi mynd er því tæki til að skipta fyrirfram ákveðinni fjárhæð en ekki tæki sem segir okkur hvað hlutirnir kosta í raun og veru. Staðan nú Ég hef undanfarið verið talsmaður þess að við reynum að ná sátt um að taka þetta reiknilíkan og laga betur að þörfum framhaldskólastigsins sem á, og er í reynd, að taka inn mjög breiðan hóp nemenda. Þetta hefur gengið mjög erfiðlega. Reiknilíkanið er ekki aðgengilegt. Nefnd sem átti að endurskoða líkanið var ekki kölluð saman. Nú hefur reyndar verið gerð bragarbót á því og mun ný nefnd vonandi halda fundi og gera tilraunir til að laga reikniverkið. Stærsti gallinn Í lögum um framhaldsskóla er kveðið á um að framhaldsskólinn skuli vera fyrir alla nemendur sem lokið hafa grunn- skólaprófi. Þess vegna taka margir skólar inn breiðan hóp nemenda - þó ekki allir. Í þessum breiða hópi eru nemendur með misgóðar einkunnir á samræmdum prófum 10. bekkjar grunnskóla og eru því misvel búnir undir nám í framhaldsskóla. Ein grundvallarhugmynda áfangakerfis er að nemendur geti tekið námsefni með mismunandi hraða. Þess vegna hafa orðið til hægferðaráfangarnir 102, 122, 202 og 212. Áfangar þessir gefa tvær einingar þótt vikulegar kennslustundir (6 kennslust.) séu jafnmargar og í hraðferðaráföngunum 103 og 203. Lengi vel fengu skólarnir lægri fjárveitingu fyrir hægu áfangana þar sem einingarnar voru færri. Þetta var leiðrétt hjá mörgum skólum en þó ekki öllum. Hægferðaráfangarnir eru ein undir- staða þess að hægt sé að þróa öflugt og gott starf á almennum brautum. Á almennum brautum eru í boði ýmsir áfangar sem eru nokkuð vel metnir í reiknilíkaninu en það er ekki lengur hægt að ganga fram hjá hægferðunum. Nú er staðan þannig að skólstjórn- endum finnst ekki fýsilegt að bjóða upp á hægferðaráfanga. Í þessum áföngum eru nemendur sem fengið hafa einkunnirnar 4,5 - 6,5 í samræmdum prófum 10. bekkjar grunnskóla. Þetta eru nemendur sem þurfa mikla aðstoð og eru jafnan í mikilli brottfallshættu. Kerfið er þannig að skólum er miskunnarlaust refsað fjárhagslega ef þessir nemendur mæta ekki í lokapróf hverrar annar. Kerfið ýtir því undir að skólar taki frekar inn nemendur með háar einkunnir og það er einmitt það sem nú á sér stað. Hvernig ætlum við að mæta þeirri skyldu okkar að hafa framhaldsskólann fyrir alla með fyrirkomulag af þessu tagi? Þessi stefna gerir að engu menntunartækifæri ungmenna sem af einhverjum ástæðum ljúka grunnskólaprófi með slökum árangri. Er það metnaðarfull menntastefna? Ég þekki af langri reynslu fjölmörg dæmi um ungt fólk sem spjaraði sig vel og lauk góðum prófum, m.a. á háskólastigi, Vangaveltur og athugasemdir eftir lestur greinarinnar „Á síðustu metrunum“ eftir Aðalstein Eiríksson. Ég hafði alla tíð lagt til að við tækjum upp aðferðir sem reyndar hafa verið úti í hinum stóra heimi og víðast hvar með góðum árangri. Niðurstaðan var önnur. Notuð var þekkt íslensk aðferð – við reyndum að finna upp hjólið sjálf. Þorsteinn Þorsteinsson Lj ó sm y n d f rá h ö fu n d i

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.