Þjóðmál - 01.09.2013, Blaðsíða 53
52 Þjóðmál haust 2013
ríkinu með því að fækka viðfangsefnum
sem ríkisstarfsmenn vinna beint að . Þetta
er hægt að gera með flutningi á starfsemi
frá ríki til sveitarfélaga og/eða til einkaaðila
þar sem hagræðingartækifæri kunna að vera
fyrir hendi . Ríkissjóður getur sparað og
verktakinn hagnazt með bættu skipulagi
og verklagi . Sveitarfélögin keppa um hylli
landsmanna með gæðum þjónustunnar og
heildargreiðslum íbúanna í sveitarsjóð o .fl .
Þess vegna þarf að afnema bæði gólf og þak
í þessari gjaldtöku .
Sem dæmi um verkefnaflutning má nefna
framhaldsskólana upp að háskólastigi, en
hverjum framhaldsskólanemanda gæti fylgt
ákveðin fjárhæð frá ríkissjóði, sem væri lægri
en núverandi kostnaður, sveitarfélagið bætti
í eftir þörfum og hann veldi frjálst um skóla .
Samkvæmt alþjóðlegum samanburði þarf
meira fé til háskólastigsins og það verður
að koma frá stúdentunum sem geta sótt um
styrki og/eða lán á grundvelli árangurs .
Allt of mikið skrifræði fylgir eftirliti
og ráðsmennsku ráðuneytanna vítt og
breitt um landið . Þúsundir einskis nýtra
eyðublaða eru fylltar út mánaðarlega til að
„fóðra kerfið“ .
Sjúkrageirinn er sér á báti vegna umfangs
og eðlis . Það verður að endurskipuleggja
hann áður en ráðizt er í rándýrar nýbyggingar
Land spítala á höfuðborgarsvæðinu . Það
þarf að stórefla heilsugæzlustöðvar vítt og
breitt um landið og hraða fjölgun vist
unarúrræða fyrir eldri borgarana, einnig
eftir sjúkrahússvist, til að draga úr álagi
á Landspítalaháskólasjúkrahús þar sem
legurýmið er eðlilega langdýrast .
Góð reynsla er af einkavæðingu heilsu
gæzlustöðva og ætti hiklaust að losa um
mið stýringuna á þeim . Heilbrigðisstofnanir
í héraði, t .d . sjúkrahúsin á Ísafirði, Akureyri
og á Neskaupstað, ber að efla og gera að
sjálfstæðum stofnunum, t .d . sjálfs eignar
stofnunum .
Þá þarf að sækja fyrirmyndir til hinna
Norð urlandanna, t .d . Svíþjóðar, um sparn
aðaraðgerðir með úthýsingu aðgerða eða
þjón ustu . Strútsaðgerðir í anda vinstri
stjórn arinnar með fyrirskipun úr ráðuneyti
um sparnað í von um að sá sparnaður bitni
ekki á þjónustunni, koma ekki til greina,
enda sjaldnast varanlegar og lítið annað
en skollaleikur . Sá skollaleikur hefur nú
þegar valdið heilbrigðiskerfinu stórtjóni,
sem sýnir að heilbrigðisráðuneytið er alls
ekki í stakk búið til að miðstýra kerfinu .
Vald dreifingar með valfrelsi sjúklinga er
þörf . Ráðuneytisafskipti af rekstri eiga að
heyra sögunni til, heldur eiga ráðuneytin að
innleiða hvata til aðhalds og samkeppni þar
sem henni verður við komið til sparnaðar .
Sjúkrahúsin, þ .e . Landspítalaháskóla
sjúkrahús og þau sem nefnd eru hér að
fram an, á að reka sem fyrirtæki sem senda
S ækja þarf fyrirmyndir til hinna Norð urlandanna, t .d .
Svíþjóðar, um sparn aðaraðgerðir
með úthýsingu aðgerða eða þjón
ustu . Strútsaðgerðir í anda vinstri
stjórn arinnar með fyrirskipun
úr ráðuneyti um sparnað í von
um að sá sparnaður bitni ekki
á þjónustunni, koma ekki til
greina, enda sjaldnast varanlegar
og lítið annað en skollaleikur . Sá
skollaleikur hefur nú þegar valdið
heilbrigðiskerfinu stórtjóni, sem
sýnir að heilbrigðisráðuneytið er
alls ekki í stakk búið til að miðstýra
kerfinu . Valddreifingar með valfrelsi
sjúklinga er þörf .