Þjóðmál - 01.09.2013, Qupperneq 65
64 Þjóðmál haust 2013
líka orðið fyrir áhrifum af löndum sínum,
heimspekingunum Adam Smith og David
Hume . Smith hafði skýrt, hvers vegna
margt gat verið skipulegt án þess að vera
skipulagt, og kallaði hann það „ósýnilegu
höndina“ . Hume hafði í Samræðum um
trúarbrögðin fært sterk rök gegn hinni
hefðbundnu sköpunarkenningu, sem var í
fæstum orðum sú, að sköpunarverk krefðist
skapara .4
Erfðir og menning
Þróun og eðli einnar dýrategundar, manns ins, var meginumræðuefnið
á þessu svæðis þingi Mont Pèlerinsam
takanna . Fyrirlesar ar á þinginu brugðu upp
stórfróðlegri og ótrúlegri mynd af þróun
þessarar tegundar, sem kallar sig hina viti
bornu veru, homo sapiens . Hún á sennilega
uppruna sinni í Afríku sunnanverðri .
Fyrir því eru tvenn rök . Fundist hafa eld
forn mannabein þar, en auk þess er erfða
efni manna sundurleitara á þeim slóð um
en annars staðar, og eitt lögmál erfða
fræðinnar er, að því sundurleitara sem
erfða efni tegundar er á einhverjum stað,
því lengur hefur hún dvalist þar . En fyrir
um hundrað þúsund árum lögðu hópar af
þessari dýrategund land undir fót og námu
fyrst Arabaskaga og héldu síðan norður
og austur yfir til Austurálfu . Talið er, að
fyrstu mennirnir hafi komið til Indlands
og Kína fyrir um 60 þúsund árum, en til
Norðurálfu fyrir um 35–40 þúsund árum .
Í Norðurálfu hittu þessir suðrænu forfeður
okkar fyrir Neanderdalsmenn, og sýnir
erfðaefni Evrópubúa, að þeir hafa eitthvað
blandast þeim, en frumbyggjar annars
staðar í heiminum hafa ekki það erfðaefni .
Sennilega hafa Neanderdalsmenn verið
hvítari á hörund en aðkomumennirnir,
svo að hinn hvíti litur Evrópumanna er
vænt an lega vegna hvors tveggja, erfðaefnis
frá Neanderdals mönnum og aðlögunar
að daufara sólarljósi á norðurslóðum og
því minni skammts nauðsynlegs Dfjörva
(vítamíns) . Menn héldu síðan út á eyjarnar
í Austurálfu suðaustanverðri og námu land
í Ástralíu fyrir um 40–60 þúsund árum .
Þeir þrömmuðu einnig austur á bóginn,
yfir Beringsund, sem skilur að Austurálfu
og Vesturheim og var ísilagt á síðustu ísöld,
fyrir 15–35 þúsund árum og byggðu síðan
Norður, Mið og SuðurAmeríku .5
Gunnar Gunnarsson skrifaði í skáld sög
unni Jörð: „Öðru hvoru geta menn víðsvegar
á jarðkringlunni rekist á menn, slíka sem
þessa, lítinn hóp manna, sem brunar áfram
með örlög í barmi sér .“6 Robert Boyd,
mann fræðiprófessor í UCLA, varpaði á
skjá yfirlitsmyndum af útbreiðslu fjögurra
dýrategunda á jörðinni, manna, apa, úlfa
og ljóna . Mennirnir eru eina tegundin,
sem hefur dreift sér um alla jörðina, staðist
hinar ólíkustu aðstæður . Hann býr í öllum
heimsálfum nema á Suðurskautslandinu .
Boyd rakti það ekki aðeins til andlegra og
erfanlegra yfirburða manna, heldur líka og
ekki síður til menningarlegrar þróunar . Væri
hópur gáfumanna strandaður á hrjóstrugri
eyju á norðurslóðum, þá gæti hann varla
lifað af að hætti skrælingja (eskimóa) .
Þ róun og eðli einnar dýrategundar, mannsins,
var meginumræðuefnið á þessu
svæðisþingi Mont Pèlerin
samtakanna . Fyrirlesarar á þinginu
brugðu upp stórfróðlegri og
ótrúlegri mynd af þróun þessarar
tegundar, sem kallar sig hina viti
bornu veru, homo sapiens .