Þjóðmál - 01.09.2013, Page 90
Þjóðmál haust 2013 89
fóru út um þúfur áður en þær hófust vegna
smásálarlegs þjarks um hverjir ættu að vera í
forystu fyrir samninganefndunum . Norður
Kóreumenn eru enn eins og smákrakkar í
skammarkróknum; lokaðir inni í herberg
inu sínu í fýlu . Stjórnarerindrekar eru ófúsir
að ræða við þá .
Þessi atburðarás hefur enn og aftur vakið
upp spurning una um stöðugleika ríkisins .
Spurningin sem ég er oftast spurð um
NorðurKóreu er: Hvenær hrynur þetta
ríki? Á tíunda áratug síðustu aldar voru
sérfræðingar um málefni landsins sam mála
um að NorðurKórea væri á barmi hruns .
Eftir að ríkið lifði gegn öllum líkum af
fall Sovétríkjanna, hrun Berlínar múrsins,
umbæturnar í Kína og dauða Kim Il Sung
fékk það á sig yfirbragð ódauðleika . Íbúar
SuðurKóreu hafa áhyggjur af kostnaðinum
við að sameina ríkin tvö . Kínverjar eru
ánægðir með að hafa NorðurKóreu sem
stuðpúða milli sín og hinnar Bandaríkjahollu
SuðurKóreu . En fráfall Kim Jong Il og
reynsluleysi sonar hans hefur aftur vakið
spurninguna um hvort NorðurKórea geti
lifað af .
Óstöðugleiki virðist ríkja á æðsta
stjórnstigi . Þrír af þeim sjö mönnum sem
gengu næstir líkkistu Kim Jong Il við
útförina urðu fórnarlömb hreinsana í maí
2013 . Varnar mála ráðherrann var rekinn
um miðjan maí en hermt er að hann hafi
verið tekinn aftur í sátt viku síðar . Kim
Jong Un stjórnar ekki einn; frændinn Jang
Sung Taek, sem er kvæntur Kim Kyung
Hut, 67 ára gamalli yngri systur Kim Jong
Il, er starfandi ríkisstjóri . Konan hans
er þó heilsutæp og þjáist meðal annars af
afleiðingum ofdrykkju . Önnur lykilpersóna
er Choe Ryong Hae, varamarskálkur í
hernum og sérstakur sendimaður Kims í
samskiptum við Kína . Hann er líka undir
verndarvæng Jang frænda . „Augljóst er
að frændinn og Choe marskálkur eru
mikilvægustu mennirnir í landinu,“ sagði
sendifulltrúi með aðsetur í Pyongyang
nýlega við mig . Hann fylgdist náið með
fjölskyldu stjórnendanna og leiðtogunum
við kvöldverð 25 . apríl 2013 þegar stofnun
Alþýðuhers Kóreu var fagnað langt fram
eftir nóttu og fólkið var orðið ölvað eftir
linnulausar skálarræður . Kim Jong Un,
sagði hann, sat við enda borðsins með
frændann sér til hægri handar og mar skálk
inn sér til vinstri handar . Föðursystirin,
greinilega veikluleg, sat allan tímann við
annað borð ásamt systur Kim Jong Un .
„Kim Jong Un hefur raunveruleg völd en
ekki alræðisvald . Hann er valdaminni en
faðir hans .“ Heilsufar Kim Kyung Hui gerir
þetta fyrirkomulag viðkvæmt vegna þess að
líklegt er að dragi úr völdum Jangs þegar
eiginkona hans fellur frá .
NorðurKóreumenn virðast ekki hafa
neina hugmynd um hvernig þeir eigi komast
út úr horninu sem þeir hafa málað sig út í .
Nýjasta áætlunin sem Kim Jong Un kynnti
á fundi mið stjórnar Verkamannaflokksins
hinn 31 . mars, er „ný áætlun um að byggja
upp efnahagslífið samhliða því að kjarnorku
Spurningin sem ég er oftastspurð um NorðurKóreu er:
Hvenær hrynur þetta ríki? Á
tíunda áratug síðustu aldar voru
sérfræðingar um málefni landsins
sam mála um að NorðurKórea
væri á barmi hruns . Eftir að ríkið
lifði gegn öllum líkum af fall
Sovétríkjanna, hrun Berlínar
múrsins, umbæturnar í Kína og
dauða Kim Il Sung fékk það á sig
yfirbragð ódauðleika . . .