Skólavarðan - 01.05.2015, Page 25
að vefa saman ólíka miðla gefst nemandanum og kennaranum
tækifæri til að ná betri árangri við markvissa öflun og miðlun
upplýsinga. Í mínum huga er það ekki spurning að kennarar 21.
aldarinnar verði að tileinka sér í auknum mæli margmiðlunar-
tæknina. Nám í hagnýtri margmiðlun er viðleitni okkar í Borg-
arholtsskóla til að mæta þessari þörf.“
Meginmarkmið náms í hagnýtri margmiðlun er samkvæmt
lýsingu á vefsíðu Borgarholtsskóla að gefa fólki tækifæri til að
tileinka sér upplýsingatæknina í tengslum við vinnu eða annað
nám. Rík áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð í náminu þannig
að þeir sem kunna eitthvað fyrir sér í margmiðlunartækni geta
nýtt það inntak sem þeir taka með sér inn í námið og eins þeir
sem hafa miklu að miðla en ekki kunnáttu á ólíka miðla upplýs-
ingatækninnar.
Kristján Ari segir markmiðið að nemendur geti á skilvirkan
hátt nýtt sér margmiðlun til hagnýtra verka á starfsviði viðkom-
andi. Þetta eigi ekki síst við um kennara. „Þeir eru jú sérfræðingar
í því efni sem þeir miðla en skortir hugsanlega leikni í tæknilegri
framsetningu efnis. Í náminu kynnast nemendur forsendum
mynd- og textavinnslu, umbroti og hönnun fyrir prentun og vef,
kvikmyndagerð og gagnvirkri vefsíðugerð. Og inn í verklegan
hluta námsins er leitast við að spinna fræðilegar forsendur.“
„Námið í hagnýtri margmiðlun við Borgarholts-
skóla er fjölbreytt, krefjandi og skemmtilegt.
Það gaf mér þau verkfæri sem ég þurfti til að
geta sjálf búið til og séð um heimasíðu fyrir mitt
fyrirtæki. Einnig fékk ég frábæra tilsögn við gerð
á nafnspjöldum, bæklingum, myndböndum og
plakötum. Það sem mér fannst jákvætt við þetta
nám var að geta valið sjálf þau verkefni sem ég
var að vinna, ég fór strax af stað með verkefni
tengt fyrirtækinu og bætti stöðugt við efni sem
ég gat notað strax.“
Margrét Kristín Jónsdóttir, grunnskólakennari í Mýrarhússkóla
og fjármálastjóri.