Félagsbréf - 01.10.1960, Side 15

Félagsbréf - 01.10.1960, Side 15
félagsbréf 13 Ólína er ef til vill mesta meistaraverk Hamsuns af öllum hans ótölulegu persónum. Enginn mundi væna Hamsun þess, að hafa svo mikið sem séð Settu í Bollagörðum, sem íslenzkur sveitamaður mótaði átta árum fyrr. En grunur hefði getað fallið á Jón Trausta, ef tímaröðin hefði verið öfug, Að vísu: Setta er einhliða listaverk, vond kerling eingöngu, en Ólína Hamsuns er sem heil heimsálfa mannlegs eðlis. En hér eru fáeinir drættir úr boðskap hókarinnar: „....ísak beið enn nokkra daga, það leit út fyrir rigningu og hann sáði korninu. Öld eftir öld hafa forfeður hans sáð korni. Það er heilög athöfn á kyrru og mildu kvöldi, þegar logn er, helzt undir blítt og örlítið úðaregn . . . .korn eða korn ekki, það er lífið eða dauðinn. Isak gekk ber- höfðaður og í Jesú nafni og sáði, hann var eins og trjábútur með hand- ieggjum á, en hið innra var hann eins og barn. Hann hugsaði vandlega uin hvert sitt kast, hann var vinsamlegur og auðmjúkur. Sjá, nú skjóta þessi korn frjóöngum og verða að öxum og meira korni, og svona er þetta um alla jörðina, þegar korni er sáð. í Gyðingalandi, í Ameríku, í Guðbrands- dal — o-o! hvað veröldin er stór, og þessi örlitli reitur þar sem Isak gekk og sáði, hann var í miðjunni á öllu saman. Það breiddust blæjur af korr.i út úr hendi hans. . . .“ Þetta er frá hinum fyrstu dögum fátæklingsins í heiðinni, þegar stúlkau með skarðið í vörina er nýkomin til hans og orðin konan hans. En hálfum mannsaldri síðar, við bókarlok, talar Geissler, uppgjafa léns- maður, nú gamall og farinn og félaus; hann kom á fót koparnámunni í fjallinu hans ísaks; nú er hún að deyja út; nýju koparlögin í Montana órepa hana. — Geissler talar við Sigvarð, bóndaefnið í Landbrotum: »-...Seinast lét ég son minn selja, það er ungur maður á þínum aldri og annars ekki neitt. Hann er eldingin í ættinni, ég er þokan. Ég er einn af þeim sem vita það rétta en gera það ekki. .. . Það er eitthvað í mér, en það er ekki í honum, hann er bara eldingin, viðbragðsfljótur nútíma- maður. En eldingin sjálf er ófrjó. Líttu á ykkur í Landbrotum: þið hafið hvern dag blá fjöllin fyrir augunum, það eru ekki tilbúnir hlutir, það eru gömul fjöll, þau standa djúpt, bjargföst í fortíðinni. En þið eigið þau fyrir félaga. Þið þurfið ekki sverð í hönd, þið gangið gegn lífinu berhent °g berhöfuð, umvafin djúpri vináttu. Sjáðu, þarna er náttúran, þú og þínir eiga hana! Manneskjan og náttúran skjóta ekki úr fallbyssum hvor á aðru, þreyta ekki kapphlaup eftir neinu, þær fylgjast að. Mitt í þessu öllu hrærist

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.