Félagsbréf - 01.10.1960, Blaðsíða 22
MAGNÚS VÍGLUNDSSON, rœSismaSur:
SKULDASKIL VIÐ BÓKINA
Erindi jlutt á aSalfundi Almenna bókafélagsins og StuSla 13. júní 1960
Góðir fundarmenn og samherjar!
Ég hefi í huga að segja hér fáein orð
um nokkuð sérstæð skuldaskil og inna
eftir greiðslu afborgunar af sameigin-
legri skuld okkar allra við bókina. En
ég segi þessi orð í tilefni yfirstandandi
hlutafjárútboðs Stuðla.
Gamalt íslenzkt máltæki skilgreinir
afstöðu manna til bókarinnar á þann
veg, að bærilegra hlutskipti sé að ganga
berfættur en að vera án bókar.
Og íslenzka þjóðin fékk vissulega
tækifæri til að sanna staðhæfingu þessa
spakmælis í verki. Berfætt — í flestum
skilningi — hlaut þjóðin að ganga
grýtta götu, kynslóð eftir kynslóð, en
bókarlausir urðu Islendingar aldrei.
Það er þessari samstöðu mæðra okkar og feðra með bókinni, sem má uni
fram allt þakka, að þjóðarsálin glataðist aldrei — þrátt fyrir allt.
Þau rök, sem í bókum urðu fundin, voru jafnan beittustu vopnin í bar-
áttunni fyrir sjálfstæði íslands. Við stöndum þannig með nokkrum hætti
í þakkarskuld við bókina fyrir það tækifæri, sem okkur gefst í dag til að
koma hér saman í þeim tilgangi að fagna sameiginlega viðgangi og vel-
gengni íslenzks bóka- og bókmenntafélags.
Margir eru þeir, sem hafa allt frá landnámstíð lagt hönd að gerð bóka
á Islandi. Mörg eru nöfn þessi gleymd, þótt efni bókanna hafi varðveitzL
og áhrif þeirra varað. Allmörg nöfn atorkusamra bókaútgefenda frá fyrsta
áfanga endurreisnartímabilsins blasa þó við augum: Sigurður Kristjánsson,