Félagsbréf - 01.10.1960, Blaðsíða 29
félagsbréf
27
Og guð skapaði hana fremur en eins og mennirnir hafa spillt henni, menn
sem ennþá vilja heldur hafa fyrir augunum prentaða síðu eða landslag
eða einhvern stað fyrir sig, en villandi auglýsingar eða plaköt, sem aug-
lýsendur nota til að gylla hlutina. Mér liggur manneskjan á hjarta og bó
einkum barnið, sem vill reyna eitthvað sjálft fremur en heyra aðra segja
frá því, manneskjan, sem vill fremur gegna starfsömu en aðgerðarlausu
hlutverki, þegar um er að ræða að ljá tilveru vorri svipmót. Og þó ég sætti
mig við, að milljónir ungs fólks verði hálfmenntað, finnst mér fyrir öllu,
að með því sé ekki loku fyrir það skotið, að einhverjir fái raunverulega
fyrsta flokks menntun.
Þessir hlutir virðast mér mikilvægir, og ég vildi hér einungis leggja
á það áherzlu, að ef þessum skilyrðum verður ekki fullnægt, þá mun ekki
einungis minnihlutinn, sem ég virðist tala fyrir, líða þjáningar. Hinn stóri
tneirihluti, sem vér nefnum fjölda, mundi einnig finnast líf sitt fátækara
sakir slíkrar vanrækslu.
Leyfist mér svo að lokum að bera fram persónulegar þakkir til Frjálsrar
menningar fyrir hin góðu tækifæri, sem samtökin hafa veitt oss til að
koma saman nú og fyrr til að skiptast á uggvekjandi skoðunum? Og má
eg bera fram þakkir til Berlínar, þar sem ég hef dvalizt mörg ár ævi minn-
ar? Þökk fyrir rými hennar, athafnasamt andrúmsloft og karlmannlegt
trúnaðartraust, sem gera hana að einstæðum stað fyrir umræður um sbk
stór vandamál.
Njör'Sur P. Njarövík íslenzkaði.