Félagsbréf - 01.10.1960, Síða 19

Félagsbréf - 01.10.1960, Síða 19
félagsbréf 17 Úr bókinni: Fyrri hluti kaflans Flótti ofvirkjans. Bráðabirgðaúrlausn réttlætingarinnar, sem lýst er hér að framan, er að- eins einn af þeim mörgu möguleikum, sem hagnýttir eru, þegar tilfinninga- leg neyð sverfur að. Næst her að athuga tvær meginleiðir, sem í fljótu hragði virðast fullkomnar andstæður, en eru eigi að síður af skyldum rótum. Á aðra hlið er hér um að ræða þá svörun, sem leiðir til athafna út á við, þeg- ar einstaklingurinn fær útrás þenslu sinnar í látlausum athöfnum, með eða án forsjár, eins konar kapphlaupi við sjálfan sig og hugraun sína. Hin leiðin er innhverfing baráttunnar, þar sem hnútur vandamálsins er vandlega hulinn undir rólegu yfirborði, en glíman sjálf einkum háð á vitrænan hátt í sálarlífi hins þjáða. Að nokkru leyti myndast við þessa skiptingu svipaðir hópar og það, sem nefnt hefir verið úthverfir og innhverfir persónuleikar, en þess ber að gæta, að sú skipting er hvergi nærri alger. Bæði fyrirbærin geta birzt í sömu persónu, og engan veginn er fært að draga hvaða per- sonu sem er í annan hvorn þessara dilka. Það, sem hér verður um rætt, er því ekki raunveruleg flokkaskipting persónuleika, heldur viðbragðsfyrir- Bæri í sálarlífi mannsins, sem krefst alls ekki neinnar manngerðarflokkunar B1 þess að verða skilið. í langflestum þjóðfélagseiningum nútímans eru næg dæmi hinnar fyrr- nefndu jafnvægisleitar. Flestir munu kannast við einstaklinga, karla og konur, sem enga ró hafa í sínum beinum, þurfa stöðugt að vera á andlegum eða líkamlegum spretti. Þeir eru sítalandi og sívinnandi, stjórna lífi sínu °g annarra, eru pottur og panna í hverju búri. Oft og tíðum geta þessir einstaklingar naumast setzt niður, en þurfa að ganga um gólf, jafnvel í viðræðu, þola ekki þögn, láta útvarp eða grammófón stöðugt gjalla, mega °gjarnan vera einir og geta sízt af öllu þagað eða hugsað með öðrum. Þessir menn eru ætíð önnum kafnir, finnst þeir vera ómissandi, bæði á vinnustað og í félagsskap, láta skoðun sína, andúð og samúð óspart í ljós, eru vanalega kátir og glaðklakkalegir, en ýfast skjótt og sættast skjótt. í samræðu og þó einkum í kappræðu er hnyttni þeim nærtækari en rök, aukaatriði hugleiknari en aðalatriði. Snögg viðbrögð eru verulegur þátt-

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.