Félagsbréf - 01.10.1960, Síða 26

Félagsbréf - 01.10.1960, Síða 26
24 FÉLAGSBRÉF er það bara persónulegt ólán. Ef til vill gerist það einungis örsjaldan, að utanaðkomandi rödd nái að hefja máls um slíka hluti. Ég get einungils beðið um það, ásamt með mörgum öðrum, að „hin grimmilegu og kald- hæðnislegu áhugamál, sem andstæðingarnir eiga sameiginleg,“ eins og Oppenheimer hefur orðað þetta, muni nægja til að koma í veg fyrir ógæf- una og afkomendur vorir fái tækifæri til að vinna að framhaldi menningar vorrar. Það virðist mér aðalatriðið. Samkvæmt skoðun minni hefur lífið því aðeins tilgang, að um slíkt framhald sé að ræða. Og vér, sem tilheyr- um þessari kynslóð, höfum engan rétt til þess að rreita afkomendum vor- um um tækifæri til slíkrar aðildar, um dýpsta og helgasta rétt manneskj- unnar, — einungis sakir ófullkominnar sannfæringar vorrar eða vegna öryggis vors. Ég tala fyrst og fremst til yðar í dag til að segja yður, að í vonleysistilfinningunni gagnvart þessari ytri hættu sé ég enga ástæðu til að- gerðaleysis eða örvæntingar andspænis hinni tiegund hættunnar — þeirri hættu, sem sprettur úr viðjum vors eigin þjóðfélags. Þvert á móti: hin mikla óvissa, sem með tilliti til allrar menningarinnar jafngildir stöðugum mögu- leikum á tortímingu einstaklingsins, eykur aðeins á skylduna, að vér gerum það sem unnt ler, á meðan það er hægt, á þeim sviðum, sem enn standa okkur opin. I þessu sambandi dettur mér í hug lítil saga, sem, ef mér skjátlast ekki, vinur minn Dean Acheson sagði mér. Ég veit ekki, hvort mér tekst að endur- segja hana nákvæmlega rétta í öllum smáatriðum, en ég er viss um, að hann mun ekki reiðast mér, þótt ég reyni að segja hana hér eftir beztu getu. Á þingi einu í Nýja-Englandi á nýlendutímanum, ég held í Connecticut, gerðist eftirfarandi: Við fundarhöld dag nokkurn skall á þrumuveður, og himinninn varð svo dökkur, að það var ekki lengur lesbjart í þingsalnum- Margir héldu, að kominn væri heimsendir, og nokkrir krupu á kné í bæn. Stungið var upp á að fresta þingfundinum. Þá stóð upp forseti þingsins og sagði: „Herrar mínir! — Ef til vill er þetta heimsendir, ef til vill ekki- Ef þetta er ekki heimsendir, þá er engin ástæða til að fresta fundinum. Er. sé raunverulega um heimsendi að ræða, þá kynni ég betur við að mæta dauðanum við skyldustörf mín. Berið hingað ljós.“ Þetta er samkvæmt minni skoðun hin eina afstaða, sem vér getum tekið gagnvart hinni sýnilegu hættu, er steðjar að oss á vettvangi heimsmálanna- Skyldustarfið, sem vér óskum að mæta dauðanum við, er hin skapandi þróun vors eigin þjóðfélags. Og einmitt slíkar samkomur eins og þessi

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.