Félagsbréf - 01.10.1960, Side 32

Félagsbréf - 01.10.1960, Side 32
30 FÉLAGSBRÉF Það fylgir heitunum bekkjarbróðir og bekkjarsystir sérstök hlýja, sem veldur því, að þótt margt beri í milli og leiðir skilji, tökumst við þéttings- fast í hendur og njótum liðinna minninga, þegar við hittumst á stúdents- afmælum. Fyrir 25 árum vorum við 42, sem gengum niður Skólábrúna með hvítar húfur og rauðar rósir í barmi. Sá dagur er okkur flestum minnisstæðari en aðrir dagar. Við vorum kynslóð, sem sleit skólaskónum á árum kreppunnar miklu. Þá var vorhret þeirrar æsku, sem nú er komin á manndómsárin. Þá gránaði í rót á hörðu vori íslenzks þjóðfélags. En þann dag gleymdum við hversdagsleikanum. Stúdentsdagurinn kom sem mildur hnúkaþeyr. Þá varð sumar, og það var sól, og sjálfum fannst okkur við vera vaxtarbroddur nýrra tíma. ( Ég vona, að þessi virðulegi skóli megi alltaf vekja sams konar kenndir í brjóstum allra ný-útskrifaðra stúdenta. Að hann megi alltaf vera athvarí frjálsrar hugsunar, eða eins og Jón Sigurðsson orðaði það: „Skólinn á að tendra hið andlega ljós.“ Og þeir, sem eiga að lýsa, þeir verða að loga. Loga af sannfæringu og vilja til þess að láta eitthvað gott af sér leiða fyrir samfélagið, fyrir þjóðina. Megi Menntaskólinn kveikja slíka elda. Þjóðin þarfnast þeirra í dag. Manna, sem hafa sannfæringu og kjark til þess að standa við hana. Manna, sem geta sagt eins og klerkurinn í Worms fyrir 440 árum: „Hérna stend ég og gel ekki annað.“ Það er menningarleg- ur protestantismus, sem þetta þjóðfélag vantar, uppreisn einstaklingsins gegn múghyggju og fjöldasamtökum. Megi slik svöl hafræna berast frá j>essum skóla. Ennþá gnæfir gamli skólinn svipmikill yfir hjarta höfuðborgarinnur. Fyrir hönd okkar 25 ára stúdentanna vil ég í dag færa honum þakkir fyrir þær ánægjustundir, er við dvöldumst innan veggja hans, og óska honum þess, að hann megi á ókomnum öldum jafnan vera íslenzkri æsku Hungurvaka, stöðugt vekja hungur hennar eftir aukinni þekkingu, aukinni menningu og auknum mannfélagsbótum. Minnugir glaðra stunda hér á sal, færum við 25 ára stúdentar á þessum tyllidegi okkar, Menntaskólanum í Reykjavík að gjöf hljóðfæri, píanó j)að, er hér stendur, og við vonum, að því megi jafnan fylgja lífsgleði, það verða fæðingarstaður góðra tónverka og fjölda mörgum stúdentsárgöngum hljómþýð harpa minninganna.

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.