Félagsbréf - 01.10.1960, Side 40
Sir STANLEY UNWIN:
Tvö brot úr ævisögu
Sir Stanley Unwin er forstjóri
eins af stærstu útgáfufyrirtækjum
Lundúnaborgar, Allen and Unwin.
Hann hefur nýlega ritað ævisögu
sína, The Truth Albout a Publisher,
merkt rit. Fara hér á eftir tveir
kaflar úr þeirri bók.
0r IslandsferS
inn 'þeirra rithöfunda sem vöktu
áhuga minn um þessar mundir
(um 1934) var Halldór Kiljan Lax-
ness og ég kynntist honum við óvenju-
legar aðstæður. Hversu mjög sem
útgefendum kann að þykja vænt um
rithöfunda þá þarfnast þeir þó hvíld-
ar frá þeim öðru hvoru, að minnsta
kosti frá handritum. Þegar ég tek
mér hvíld frá störfum á starfsfólk
mitt ekki að skýra neinum frá dval-
arstað mínum; frí er ekkert frí ef
maður er hundeltur með viðskipt-
um. Með einhverjum brögðum komst
rithöfundur einn að því eitthvert árið
að ég hefði farið til Wensleydale
og elti mig þangað þegar í stað.
Hann vildi fá tafarlausa ákvörðun
um handrit sitt. Hann fékk það.
Gott samhand við slíkan höfund
mundi fljótt vera úr sögunni, og ef
samband við rithöfund er óskemmti-
legt, þá er því bezt lokið sem fyrst
hvað sem hagnaðarmöguleikum af
verkum hans líður. Einu eða tveim-
ur árum eftir þetta atvik, þegar ég
var uppgefinn og óeðlilega þreyttur,
ákvað ég með tilliti til þessa fyrr-
nefnda atviks, að Island væri staður-
inn fyrir mig. Þangað voru þá eng-
ar flugsamgöngur, enginn sími, og
engin bréf gátu borizt til mín fyrr
en ég væri á heimleið. Ég dvaldist á
bóndabæ í Borgarfirði ásamt göml-
um skólafélaga mínum og naut þar
hinnar heztu andlegu hvíldar sem
hægt er að hugsa sér. Ég tala um and-
lega hvíld af ásettu ráði vegna þess
að það er ekki líkamleg hvíld að
sitja á hinum íslenzku smáhestum
mílu eftir mílu ef maður er því ekki
vanur, og fyrstu dagana var botn-
inn á mér svo aumur að ég gat ekki
setzt og ég var of þreyttur til að
standa. Það leið þó brátt frá og ég
sneri aftur til Reykjavíkur með nýja
lífsreynslu. Þar fann ég bréf frá Ás-
geiri Ásgeirssyni forsætisráðherra,
síðar forseta landsins, sem ég hafði
áður kynnzt í Lundúnum, og þarna
stakk hann upp á því að ég dveldist
nokkra daga á Þingvöllum sem gest-
ur ríkisstjórnarinnar, en áður skyldu
mér sýndir nokkrir'af goshverutn og