Félagsbréf - 01.12.1960, Side 13

Félagsbréf - 01.12.1960, Side 13
Dr. Þorkell JÓhannesson háskólarektor andaðist 31. október s.l. tæpra 65 ára. Hafði hann veikzt kvöldið áður og var látinn um hádegi næsta dag. Dr. Þorkell Jóhannesson stjórnaði sínum síðasta bókmenntaráðsfundi hjá Almenna bókafélaginu daginn áður en hann veiktist. Hann var þá hress og kátur að vanda, og datt þá vissulega engum af vinum hans þar í hug, að þetta væri í síðasta skipti, sem þeir sæju hann. Svo hittist á, að á þessum síðasta bókmenntaráðsfundi dr. Þorkels var gerð áætlun um útgáfubækur næsta árs. Verður ekki sagt, að hann hafi skilið við starf sitthjá Almenna bókafélaginu í óvissu. Er það táknrænt fyrir hann. Hann kunni aldrei við að hverfa frá hálfunnu verki. Dr. Þorkell Jóhannesson hefur orðið harmdauði öllum þeim, sem þekktu hann nokkuð, og þó einkum nemendum sínum og samstarfsmönnum. Hann var góður kennari, lét sér mjög annt um nemendur sína og fylgdist vel með þeim eftir að hann brautskráði þá. Hann var skarpvitur maður, víðsýnn í hvívetna og fordómalaus. Islenzk sagnfræði sér á bak traustum starfskrafti, þar sem dr. Þorkell Jóhannesson var. Þar olli hann straumhvörfum. Það, sem ritað var í þeirri grein, eftir að doktorsritgerð hans kom út, var allt önnur sagnfræði en áður hafði tíðkazt. Með sagnfræðiritum sínum reisti hann sér þann baula- stein, sem tönn tímans vinnur ekki á. En hann hafði líka yndi af bókmenntum, og bókmenntagreinar hans víðs vegar í tímaritum eru bæði merkar og snjallar. Dr. Þorkell Jóhannesson var kvæntur Hrefnu Bergsdóttur, ágætri konu. Islenzka þjóðin á dr. Þorkeli Jóhannessyni meira að þakka en flestum er ljóst að lítt hugsuðu máli, og er það bæði fyrir sagnfræðiritun og fleira. Sjálfur minnist ég hans alltaf sem mikils kennara, föðurlegs leiðbeinanda og trausts vinar. Eiríkur Hreinn Finnbogason.

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.