Félagsbréf - 01.12.1960, Blaðsíða 63
BÆKUR
Góður skerfur til íslenzkra geðverndarmála
Karl Strand:
Hugur einn það veit.
Þættir um hugsýki og sálkreppur,
Almenna bókafélagið — október
1960. 200 bls.
Um huglæga sjúkdóma og kvilla hefur
fátt verið ritað á íslenzku fram til
þessa. Með bók Karls Strands geðlæknis
er fyrsta skipuleg tilraun gerð til að
fjalla á alþýðlegan hátt um einn af aðal-
sjúkdómaflokkum þessarar tegundar,
sjúkdómsfyrirbæri það, sem almennt geng-
ur undir heitinu taugaveiklun og er
hverjum manni kunnugt að nafni, en
fæstir vita mikil deili á. Höfundur nefnír
sjúkdóminn hugsýki, sem er gamalt orð
> málinu og merkir áhyggjur, hryggð,
kvíði, þunglyndi. Heitið er vel valið, en
vafasamt hvort það rekur af hólmi tauga-
veiklun og taugaveiklaSur, sem náð hafa
festu í málinu.
Alþýðleg hók um hugsýki er tímabær
a islenzku. Hugsýki er langalgengust allra
huglæra sjúkdóma og kvilla, þjáir fjölda
nianns árum saman eða ævilangt og hefur
vafalaust miklu örlagaríkari áhrif á sam-
kúð manna en flesta grunar. Það er sann-
færing mfn, að höfundur hitti naglann á
höfuðið í upphafi með eftirfarandi um-
Juælum, sem að vísu eiga við fleira en
hugsýki: „Þeir, sem fást við sállæga
kvilla, trúa því einnig, að þar megi finna
lykilinn að mörgum þeim ógnum, sem nú
steðja að öllu mannkyni." Og þessi orð
boða þegar viðhorf höfundar og hverjum
tökum hann tekur verkefnið. Hann lýsir
ekki hugsýki sem einangruðu fyrirbæri í
lífi einstaklinga og leggur ekki aðal-
áherzlu á að þylja sjúkdómseinkenni,
heldur bendir sífellt og jöfnum höndum
á viðtækar félagslegar afleiðingar henn-
ar. Það er þessi sivaxandi sýn höfundar
út yfir mannlegt samfélag, sem veldur
því meðal annars, hve bók hans er ný-
stárleg og forvitnisleg, en einnig að öðru
leyti mun hún koma á óvart þeim lesend-
um, sem ekki vita því meira um hugsýki
fyrir fram. Hér á eftir verður leitazt við,
eftir því sem unnt er í stuttri grein, að
benda á nokkur meginsjónarmið höfund-
ar og túlkun hans á þeim.
Hugur einn þad veit er í tuttugu og
tveimur köflum, nokkuð mislöngum, rétt-
ar 200 blaðsíður að lengd. Aðalefnisatriði
eru í stuttu máli: Höfundur skýrir frá,
hvað fyrir honum vakir með ritun bókar-
innar, kynnir heiti og hugtök og gerir
grein fyrir meginþáttum sálarlífsins, að
svo miklu leyti sem hann telur lesendum
nauðsynlegt til skilnings á afbrigðilegu
sálarlífi. Andlegur þroskaferill bama og