Félagsbréf - 01.12.1960, Blaðsíða 59
FÉLAGSBRÉF
57
Strax á eftir því ameríkanska lagði Lettemarken og svo inná höfnina
aftur. The Talbot hafði í millitíð hækkað sínar fyrri lækkuðu stengur og
sett hér undir lausum til uppdráttarbúnum seglum.
20. ágúst héldu orlogsskipsverjar hinir heldri ball í landi um kvöldið,
þá var íslenzka flaggið hafið, sem eftir því skipin öll flögguðu, en að
vörmu spori liðnu komu officerar í land frá Orlogskipinu og skipuðu að
taka niður íslenzka flaggið, og að því búnu færðu það strax um borð til
þess hæst kommeranerandi, sem að nokkrum tíma liðnum sendi það i
land aftur. Fóru þá útsendir officerar með sama að spyrja um samning
þann Nott61 kaptainn hefði gjört við greifann býfógeta Á[rna] Jónsson
Var þá komið í almannaróm að Jörgensen skyldi sigla.
21. ágúst komu Directörer fyrir lærðaskólanum á Bessastöðum og
lector hingað uppá skólann til Jörgensonar, þá var og kaptainn á The
Talbot í landi og uppi hjá honum til viðtals, ásamt etatsráði og amtmanni.
Um morguninn snemma kom Jörgensen til biskups og sagðist ætla að
erklæra opinberlega að etatsráð M[agnús] Stephensen væri orsök og undir-
rót til alls þess, er hann hefði sér fyrirtekið hér (þeirrar byltingar hann
hefði af stað komið). Seint um daginn kom mergð orlogsskipverja í land
og fóru niðurrífandi skansinn, en færðu kanonurnar flestar út í sjó. Því
héldu þeir frammí myrkur.
22. ágúst kom út snemma frá Mfagnúsi] Stephensen tilboð og tilmæli
til landfógeta Frydensberg og sýslumanns Koefoed62 til að taka við sín-
um embættum aftur og skömmu seinna convetion milli hans og bróður
hans á aðra en kaptains Alex[anders] Jones og Samuels Phelps á aðra
síðuna, sem samin hafði verið um nóttina þeirra á milli. Setti landfógeti
Prýdensberg placat upp, að allir skyldu fara til að rífa skansinn, sem og
gjört var af mergð mikilli án alls betalings. Fríhandlarar gengu og þar vel
fram: Thomson,63 Símonson,64 Knudson65 og Strube66 og enn fleiri, kost-
uðu Gunnarsson67 og Faber68 og allir þeir fulla rommfötu þangað, sem
voru 12 pottar, hvar af hvör mátti drekka eftir sem vildi. Þá sást greif-
inn um borð að veifa battinum með húrrahrópi yfir hans niðurrífun.
Gfficerum hinum íslenzku var skipað innan 24 tíma að rýma tukthúsið
ásamt öllum lífvökturum, Jörgensen að misstri allri makt og tign hér, fer
nú strax heim til Englands.