Félagsbréf - 01.12.1960, Blaðsíða 75
FÉLAGSBRÉF
73
ur og fellur vel að efni bókarinnar. Hér
eru ekki lækjarsprænur heldur fljót. Lífið
streymir fram stórt og mikið, óstöðvandi.
Þannig er stíllinn.
Það er að bera í bakkafullan lækinn að
tma til dæmi um ritsnilld höfundar. Um
hana verður ekki deilt. Gróður jarðar er
ýkjulaust ein bezta skáldsaga sem skrifuð
hefur verið á Norðurlöndum. Persónur
sögunnar eru að sjálfsögðu ekki allar jafn-
skýrar enda koma þær ekki allar jafnt við
sögu. Allar eru þær þó meitlaðar sterkum
Þegar höíðingjarnir
Henry Holland:
Dagbók í íslandsferð 1810
fslenzk þýðing og skýringar eftir
Steindór Steindórsson frá Hlöðum.
Almenna bókafélagið. Júní 1960.
278 bls.
Arið 1807 hófst ófriður milli Englend-
inga og Dana og stóð um nokkur ár.
Samband Danmerkur og íslands varð á
þessum árum mjög stopult og siglingar
strjálar og hættulegar, því að Englending-
ar lögðu hald á kaupför, sem þeir náðu. .
Hlóðust framleiðsluvörur landsmanna upp
i geymslum kaupmanna, en erlend vara
varð sjaldséð og rándýr. Enskir sjóvík-
ingar sigldu víða og gerðu strandhögg.
Víkingur, Gilpin að nafni, rændi í Viðey
hjá Ólafi Stephensen stiftamtmanni árið
1808 og kom víðar við og 1809 hrifsaði
Jörundur hundadagakonungur völdin, sem
frægt er. Ekki voru þó allar siglingar
brezkra manna hingað til lands af þessum
toga spunnar, því að árið 1810 kom hing-
að leiðangur friðsamra vísindamanna frá
dráttum, þær eru stórskornar og mikilúð-
legar.
Þýðing Helga Hjörvars virðist mér nokk-
uð misjöfn. Hún er víða góð, en stundum
hnökrótt. Sé á heildina litið er þýðingin
skemmtileg aflestrar en þó er eins og
reknir séu fleygar inn á milli sem eru til
óprýði.
Almenna bókafélagið hefur unnið gott
verk með því að gefa þessa bók út í ís-
lenzkri þýðingu. Hún kemur bara þrjátíu
árum of seint.
NjörSur P. NjarSvík.
riðu við eitt ístað.
Skotlandi. Var forystumaðurinn skozkur
aðalsmaður Mackenzie að nafni, en með
honum tveir ungir læknar og íslenzkur
fylgdarmaður. Þessir menn ferðuðust um
landið og stunduðu náttúrufræðirannsókn-
ir sumarlangt. — Gaf Mackenzie siðar
út hók um ferð þeirra félaga, og er hún
alþekkt. Annar fylgdarmaður Mackenzie
hét Henry Holland og varð síðar frægur
læknir. Hann ritaði daghók á ferðalag-
inu, og var handrit hennar fyrir skömnra
gefið Landsbókasafninu af erfingjum dr.
Hollands. Kom daghókin út hjá Almenna
hókafélaginu á siðastliðnu vori.
Varla muu hafa verið til þess ætlazt
í upphafi, að dagbók þessi kæmi fyrir al-
menningssjónir, og er hún fyrir þá sök
að ýmsu leyti forvitnislegri en ella mundi
og er eftirminnileg lýsing og frásögn af
mönnum og málefnum á íslandi á bví
eymdarári 1810. Það er skemmst af að
segja, að höfundur dagbókarinnar sýnist
hafa verið furðulega skilningsskarpur
maður, þegar þess er gætt, að hann skildi
ekki tungu landsmanna, og sárafáir skildu