Félagsbréf - 01.12.1960, Blaðsíða 34

Félagsbréf - 01.12.1960, Blaðsíða 34
32 FÉLAGSB RÉF öpptalning verður hér vitaskuld engan veginn við komið, en ég nefni samt sögurnar af bræðrunum í Grashaga og fólki þeirra, „Á bökkum Bola- fljóts", „í fjallskugganum“, „Musteri óttans,“ „Hrafnhettu“ og sér í lagi „Blindingsleik“ til að finna stað orðum mínum um skáldskap Guðmundar Daníelssonar. Smásögur á borð við Hjón, Lifendur og dauða, Pyttinn botn- lausa, Vígslu og Dreng á fjalli hljóta að teljast snjallar og fagrar bók- menntir. Manninum Guðmundi Daníelssyni kynnast lesendur aftur á móti mest og bezt í ferðabókum hans. Þar fer þessi slyngi og margvísi rithöf- undur að dæmi sýslunga, Eiríks á Brúnum, læzt falla í stafi yfir undr- um veraldar, en veit sannarlega sínu viti, sér og heyrir eitt og allt auga og eyra íslenzka sveitamannsins, sem þó er heimsborgari í hversdagsfötum, og gerir að gamni sínu á kostnað sjálfs sín, hvað þá annarra, þegar honum býður svo við að horfa. Og Guðmundur þurfti naumast að leggja ljóða- gerðina á hilluna af því að hann þyldi ekki samanburð við marga þá, sein kjánuðust til að gefa út kvæðabækur árin fyrir seinni heimsstyrjöldina og urðu sumir fræg skáld, er fram liðu stundir. Ljóð eins og Ó, sumardís mundu bera höfundi sínum sæmilegt vitni: Ó, sumardís, þér syng ég ljóð mín öll, þó sal þinn tjaldir bak við haf og fjöll og dalur minn sé drifinn vetrarmjöll. Ó, sumardís, mín sál — mín sál er þín, þó sindri í annars bikar lands þíns vín og tóm á borðum standi staupin mín. Ó, sumardís, þín einnar bíð ég æ, þó önnur hafi völd í mínum bæ, og þín sé aldrei — aldrei von af sæ. Mannsmyndinni af Guðmundi Daníelssyni reyni ég ekki að bregða upp, en gott hefur verið og gaman að hafa hana fyrir augunum öðru hvoru síðasta aldarfjórðung, kynnast dagfari, geðslagi, hugðarefnum og mann- kostum drengsins úr Holtunum, sem gerðist ungur svo djarfur að stíga í stól við hátíðlegt tækifæri til að lesa frumort kvæði í áheyrn ráðherrans og sýslumannsins og allra okkar hinna og réðst því næst í þá þoranraun að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.