Félagsbréf - 01.12.1960, Blaðsíða 26

Félagsbréf - 01.12.1960, Blaðsíða 26
24 FÉLAGSB RÉF þaS. Svo opnaði fyrsti hermaðurinn dyrnar og Pétur kom inn. Hann var ekki í neinum hermannafötum. Hann var alveg eins og hann var, þegar hann fór upp í vagninn daginn áður, nema hvað það var eins og það væri heil vika liðin, það hafði svo margt gerzt, og ég hafði ferðazt svo mikið. Hann kom inn og þarna stóð hann, eins og hann hefði aldrei farið að heiman, nema hvað hann var hér í Memphis á leið til Pearl Harbor. „Hvern þremilinn ertu að gera hér?“ sagði hann. Ég sagði honum það: „Þið þurfið við og vatn til að geta eldað. Ég get klofið viðinn og sótt vatnið fyrir ykkur.“ „Nei,“ sagði Pétur. „Þú ferð beint heim.“ „Nei, Pétur,“ sagði ég. „Ég má til að fara líka. Mig tekur þetta svo sárt, Pétur.“ „Nei,“ sagði Pétur. Hann leit á hermanninn. „Ég skil bara ekkert. hvað hefir hlaupið í hann, lautenant,“ sagði hann. „Hann hefur aldrei ráðizt á mann með hníf fyrr.“ Hann leit á mig: „Af hverju gerðirðu það?“ „Ég veit það ekki,“ sagði ég. „Ég mátti til. Ég varð að komast hingað. Ég varð að finna þig.“ „Gerðu þetta aldrei aftur, mundu það,“ sagði Pétur, „Settu hnífinn í vasann og hafðu hann þar. Ef ég frétti, að þú hafir nokkurn tíma ráðizt á mann með hníf, þá kem ég, hvar sem ég verð staddur, og hýði þig miskunnarlaust. Heyriröu það?“ „Ég myndi ekki hika við að skera mann á háls ef það gæti orðið til þess að þú kæmir aftur,“ sagði ég. „Pétur,“ sagði ég, „Pétur.“ „Nei,“ sagði Pétur. Hann var ekki lengur hraðmæltur eða byrstur, hann var næstum rólegur, og þá vissi ég, að ég myndi aldrei fá hann á mitt máh „Þú verður að fara heim. Þú verður að sjá um mömmu, og ég treysti á þig að sjá um þessar tíu ekrur mínar. Ég vil þú farir heim. í dag. Hevrirð'u það?“ . „Ég heyri það,“ sagði ég. „Kemst hann heim einn?“ sagði hermaðurinn. „Hann komst hingaö einn,“ sagði Pétur. „Ég býst við ég komist heim,“ sagði ég. „Ég á ekki heima nema á einum stað og ég býst ekki við hann hafi fært sig til.“ Pétur tók dollaraseðil upp úr vasa sínum og fékk mér. „Fyrir þetta færðu miða alveg heim að póstkassanum okkar,“ sagði hanm „Ég vil að þú gegnir lautinantinum. Hann kemur þér á vagninn, og svo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.