Félagsbréf - 01.03.1961, Blaðsíða 16
6
FÉLAGSBRÉF
En spurningin er ekkert hjákátleg. Hvort heldur pað stafar af
pvi, að islenzk stjórnaivöld séu ekki trúuð á, að vér cndurheimtum
handritin að sinni eða af einhverju öðru, pá er pað vist, að pau
hafa lítið sem ekkert að pvi stuðlað, að komizt verði að niðurstöðu
um, hvernig skuli með handritin fara, pegar vér heimtum pau, hvað
skuli við pau og fyrir pau gert. Auðvitað verður tekið vel á móti
peim, pegar pau koma, og peim fenginn veglegur og öruggur sama-
staður, par sem viðhlitandi skilyrði eru til að vinna við pau. En
vœri nokkur goðgá, pó að farið yrði nú pegar að hugleiða, hvar
pann veglega stað sé að finna, livernig húsakynnum eiga að vera
par háttað, svo að pau pjóni sem bezt hlutverki sinu, hvort eigi
purfi að afla fjár til viðbótar pvi, sem pegar er fyrir hendi, til að
fullgera pau húsakynni, hve mikils fjár sé pörf árlega til handrita-
rannsókna og handritaútgáfu og hvernig eigi að afla pess fjár.
Um pessi mál verða sérfrœðingar að fjalla, að minnsta kosti á
fyrsta stigi pess. Mundu prófessorar við heimspekideild háskól-
ans vissulega manna líklegastir til að komast að niðurstöðu um,
hvers konar aðbúnaður hœfði handritunum, og gera jafnframt
áœtlanir um skipulegar rannsóknir peirra, útgáfur og starfslið. Vér
pyrftum pá ekki lengur að vaða i svíma um, hvað vér tökum til
bragðs, pegar vér fáum handritin, en stöndum verr að vigi að krefj-
ast peirra, meðan slik áætlun hefur ekki verið gerð.
SkipuIagMleysi «s' fj:í rskortur
En áætlun ein nægir vitaskuld eliki. Ef til vill mætli biða með
að fullgera vistarverur, par til meiri vissa væri fengm i handrita-
málinu, ewt eftir skipulegum handritarannsóknum og textaútgáfum
getum vér ekki beðið öllu lengur. Varla er ofmælt, pótt sagt sé, að
islenzk fræðastarfsemi sé i hálfgerðum molum i dag, og ber par
einkum tvennt til — fjárskortur og skipulagsleysi. Fræðimenn eig-
um vér nóga, en meiri hluti peirra er öðrum störfum hlaðinn af
peirri einföldu ástœðu, að peir purfa að vinna fyrir sér og fjöl-
skyldum sinum, en pað fá peir ekki gert með fræðistörfum einum.
Oss er hollast að loka ekki augum fyrir pvi, að eina skipulega