Félagsbréf - 01.03.1961, Blaðsíða 22
SIGURÐUR NORDAL:
Litla stúlkan í apótekinu
í desember s. 1. gaf Almenna bókafélagið út söngplötu með 35 islenzkum þjóðlögum
sungnum af hinni víðkunnu söngkonu Engel Lund við undirleik dr. Ferdinands
Rauters. Einnig fylgir plötunni nótnabók með þessum 35 lögum. í tilefni af því fórum
vér fram á það við Sigurð Nordal, að hann leyfði oss að birta þessa frábærlega góðu
grein um söngkonuna. Greinin hefur verið prentuð áður, í ársritinu Unga íslandi, sem
Helgafell gaf út nokkrum sinnum fyrir rúmum áratug og mun í fárra höndum. — Ritstj.
I.
Seint í Fyrravetur*) KOM þjóðlagasöngkonati Engel Lund til íslands.
Blöðin fluttu smágreinar um hana. Þar var sagt frá því, að hún væri dóttir
danskra apótekarahjóna, sem hefðu verið í Reykjavík fyrir löngu, hefði
alizt hér upp þangað til hún var ellefu ára gömul og talaði íslenzku. Nú væri
hún orðin víða fræg utan lands og ætti heima í London. Á síðustu árum
hafa- komið hingað svo margir frægir tónlistarmenn, að fólk er hætt' að
þjóta upp til handa og fóta við þess konar heimsóknir. Sumir af þeim, sem
mest sækja hljómleika, vilja heldur hlusta á hljóðfæraslátt en söng, og
þeir eru til, sem finnst kvenfólki allt annað betur gefið en að reyna of
mikið á röddina. Það var engu líkara en fólk grunaði, að þessi fröken Lund
ætlaði að nota sér gamlan kunningsskap við Reykvíkinga til að ná sér í
skildinga, af því að hún væri atvinnuláus. Þegar hún söng í fyrsta sinn
suður í Trípólíleikhúsi, var líka ófærð og snjókoma. Það varð að smala
talsverðu af áheyrendum saman í skyndingu, með því að senda þeim að-
göngumiða ókeypis, svo að húsið yrði ckki hálftómt.
*) Góðfúsir lesendur eru beðnir að hafa tvennt í huga um þessa grein. Hún er skriíuð
og birt haustið 1947 og er hér prentuð alveg óbreytt, svo að allar tímaákvarðanir eru
miðaðar við það ár. Og hún var samin fyrir tímarit handa unglingum. Þegar lesendur
hennar eru ávarpaðir hér, er átt við lesendur Unga íslands, en ekki Félagshréfa. Mer
datt ekki heldur i hug, þegar þetta var skrifað, að það ævintýri mundi gerast, sem nU
er orðið: að allir Islendingar, sem eiga grammófón, gætu orðið þeirrar ánægju aðnjót-
andi, að heyra Göggu syngja heima hjá sjálfum sér. — S. N.