Félagsbréf - 01.03.1961, Side 34

Félagsbréf - 01.03.1961, Side 34
24 FÉLAGSBRÉF svali frá Esjunni, grænn ilmur frá gróandi túnum, hvítleitur sjávarniður utan af Nesi og máttugur hljómur af íslenzkri tungu. Hún skildi barns- hjarta sitt eftir í þessum heimi, og þar er það enn á vísum stað. Það er fjöreggið hennar, sem ekkert getur grandað. Hún á enn barnslundina, sam- hliða öllum sínum ríku gáfum, menntun og reynslu fullorðinsáranna. Hún á gleði barnsins, svo að stundum getur manni fundizt, að það sé hennar aðaleinkenni, hvað hún er fyndin og gamansöm og getur glaðzt af öllu, sem er skemmtilegt. En hún á líka alvöru barnsins, hún er mikil trúkona og ber djúpa lotningu fyrir undrum tilverunnar og mannlífsins. Og hún er algjörlega laus við hégómaskap og uppgerð. Allt þetta hefur gert henni auðvelt að skilja einlægustu, innstu og upprunalegustu tilfinningar óspilltrar alþýðu í öllum löndum og túlka þær með ósvikinni list, þegar hún fer með og talar um þjóðkvæðin og þjóðlögin. Þetta er leyndardómurinn, sem ég hef viljað segja ykkur frá, um sigurfarir litlu stúlkunnar í Apótekinu.

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.