Félagsbréf - 01.03.1961, Side 36

Félagsbréf - 01.03.1961, Side 36
26 FÉLAGSBRÉF „Því meðan til er böl, sem bœtt þú gazt, og barizt var á meSan hjá þú sazt, er ólán heimsins einnig þér að kenna.“ Og hvort hann skildi ekki: „Því mannsins líj á hvergi framar hœli þann dag, sem hjarta hans er varnað máls.“ Af sömu snilli og áður um önnur viðfangsefni, af sömu rökvísi, sömu undursamlegu getu til að samræma form og efni og segja einmitt það, sem segja skyldi og segja varð og ekkert meira, fjallaði hann víða í Fljótinu helga um málefni, sem ég mundi eiga við, ef ég gerðist svo djarfur að taka mér í munn orðin: Á einu ríður mest ... Víst er það freistandi á sextugsafmæli slíks skemmtimanns sem Tómasar Guðmundssonar, manns, sem getur látið loga fyndninnar leiftra í öllum regnbogans litum, að víkja að persónulegum samverustundum okkar, sem alltaf hafa verið ánægjulegar, aldrei hallað orði okkar á milli jafnvel ekki þegar svo hefur staðið á, að æruverður ambassador Stefán Jóhann Stefáns- son hefði tæplega getað staðið við þann skemmtilega orðaða vitnisburð, sem hann gaf skáldinu til að friða samvizku heiðurskonu, er átti atkvæði í bæjárstjórn Reykjavíkur. ... Og trúlega mundi ég hafa getað — og það svo sem verið meira en maklegt — túlkað skammlítið skáldskap og listtækni Tómeisar Guðmundssonar hér í þessu riti — en „vofan þekkisl og viðbúnað hefur hún enn“, segir Tómas, og sannarlega þekkjum við hana báðir — og hugur minn hvarflar til þeirra, sem þrátt fyrir allt, sem séð hefur verið, síðan vegur gerzkra var mestur á landi hér, hafa látið sér sæma, án þess að vera haldnir bölmæði og meðfæddri blindu ofsa- trúarmannsins, að skipa sér undir merki vofunnar á mannfundum, í riti og á rolurjátli um Suðurnes, og svo minnist ég þá þess vanda, sem mörg- um ærlegum hugsjónamanni var á höndum — og ekki sízt skáldum og rithöfundum — á því tímabili, sem vofan sat hér í hæstarétti bókmennta og raunar allrar menningartúlkunar, tímabili, sem ég hygg að fæstir þeirra, sem nú eru ungir, geri sér grein fyrir, hve viðsjált var menningu og frelsi íslenzku þjóðarinnar. Þá var sannarlega af ráðnum huga — og við vofunni ólíkt hagstæðari aðstæður en nú — kappkostað að gera það að leyndar-

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.