Félagsbréf - 01.03.1961, Síða 48
38
FÉLAGSBRÉF
flestir menn meira eða minna skemmtilegir. Ég fékk og snemma þá trú á
þessari þjóð, að nái ekki meinleg öfl og annarleg, innlend og erlend,
þrælatökum á henni, muni hún búa sér farsæl lífskjör og frjálst og rétt-
látt samfélag. Ég unni snemma af alhug íslenzkum menningarerfðum, og
þegar prófessor Sigurður Nordal skrifaði ritgerð sína Samhengið í ís-
lenzkum bókmenntum, þótti mér sem þar væri íslenzkri menningu mótuð
framtíðarstefna, reist á svo sterkum rökum fortíðar, að ekki yrði um
efazt, að henni bæri að fylgja. Ég var engan veginn vonlaus um, að í
Ráðstjórnarríkjunum kynni með tíð og tíma að verða slakað á harð-
stjórnartaumunum og þar komast á skipan, sem veitti skilyrði til frjálsrar
þjóðfélags- og menningarþróunar, þótt með öðrum hætti kynni að verða
en á Vesturlöndum, en þegar ég sá, hve blygðunarlaust var rekinn áróður
fyrir hinu heiltæka kerfi kommúnismans og beitt stórfelldum blekking-
um og undirróðri til að ná hér valdi á allri bókmenntaþróun og færa
andlegt frelsi í fjötra, svo að hin kommúnistíska bylting mætti koma hér i
fyllingu tímans að mestu af sjálfu sér — og allt þetta gert í nafni Jóns
Sigurðssonar og Fjölnismanna, þá þóttu mér við eiga orð Jóns Vídalíns
um að snúa Faðirvorinu upp á andskotann. Svo tók ég mig til og kynnti
mér eftir beztu getu ástand og horfur í Ráðstjórnarríkjunum og ennfremur
starfsemi Kómintern erlendis, en gangi málanna hér heima hafði ég fylgzt
rækilega með. Síðan skrifaði ég bókina GróSur og sandfok. Mér kom eng-
an veginn á óvart, hvernig kommúnistar tóku henni. Þeir létu hennar
sem minnst getið opinberlega, en beittu undirróðurskerfi sínu rækilega
gagnvart henni og höfundinum. Og þeim tókst mjög vel að koma því
fram, sem þeir vildu, útbreiða þá skoðun, að bókin væri öfgafullt kosninga-
rit. Aðeins nokkrir menn, sem bezt fylgdust með, vissu, hvers virði hún var.
Hins vegar hef ég svo orðið þess vís á seinasta áratug, að fjöldi ungra
manna hefur lesið hana — og nokkrir hinna rosknu. Og þeir segja margir:
Við erum búnir að sjá það nú, að þú hefur verið sannfróðari um þessi
efni en okkur hefði nokkurn tíma órað fyrir. Undirróðrinum gagnvarl
höfundi bókarinnar hefur verið haldið áfram — og sá undirróður hefur
ekki aðeins verið rekinn hér á landi, heldur líka á Norðurlöndum, en
þar eð ég hafði kynnt mér til hlítar vinnubrögð kommúnista fyrir fram,
vissi ég vel, að annars var ekki að vænta. ... En sinnu-, þekkingar- og
andvaraleysi ýmissa ráðandi manna á vettvangi blaðamennsku, þjóðmála-
starfsemi og menningarmála í hópi andstæðinga kommúnista kom mér á