Félagsbréf - 01.03.1961, Qupperneq 49

Félagsbréf - 01.03.1961, Qupperneq 49
felagsbréf 39 óvart, þó að ég raunar vissi, að ástandið væri allt að því háskalega bág- borið. 6. Ég geng þess engan veginn dulinn, að rás heimsviðburðanna átti mestan þátt í því, að andvaraleysi lýðræðisflokkanna hér á landi gagnvart áróðri kommúnista — einkum í menningarmálum — hafði ekki örlögþrungnari afleiðingar en reynslan þó hefur sýnt til þessa. Griðasamningur Hitlers og Stalíns og árás Rússa á Finna og fleiri smáþjóðir varð íslenzkum kommún- istum mjög mikill hnekkir, en litlu síðar hækkaði hagur þeirra að nýju, þá er til kom samstaða Rússa, Breta og Bandaríkjamanna gegn Þjóðverj- um, og gæti margur tekið undir með Tómasi Guðmundssyni, þegar hann segir í Svo kvaS Tómas: „Um skeið hélt ég í einfeldni minni, að náin samvinna austurs og vesturs undir styrjaldarlokin mundi leiða til varanlegra sátta, bræðralags og friðar með öllum þjóðum. Ég trúði þessu meira að segja í lengstu lög. Það hefði verið gaman að lifa nokkur ár í slíkri veröld, ósnortinni af hatri og stríðsótta.“ Jafnvel þrælatökin á Eystrasaltslöndunum, Rúmeníu og Póllandi náðu ekki að eyða þessari óskhyggju hjá þorra þeirra manna, sem höfðu eignazt hana, en svo kom hin hörmulega örlagastund Tékkanna, sem voru beittir einhverju því svívirðilegasta níðingshragði, sem veraldarsagan kann skil á. Afdrif Tékkóslóvakíu voru sannarlega ógnþrungin aðvörun til allra frelsis- unnandi einstaklinga og þjóða um það, hvers er að vænta, þegar menn, gæddir borgaralegu siðgæði og drengskaparhugsjónum lýðræðisunnenda, gerast svo barnalegir að ganga til stjórnarsamvinnu við kommúnista lands sins, ójafnvæga og bölmóða ofsatrúarmenn eða ófyrirleitna loddara, sem hafa strandað á skerjum skapgalla sinna á leiðum lýðræðisins, hvora tveogja alger handbendi kaldrifjuðustu heimsveldissinna, sem uppi hafa Verið í veröldinni, menn, sem meta einskis orð eða eiða og mannslífin vart eins og siðaður vestrænn maður líf fiskiflugunnar. ... Það voru °g milljónir manna í veröldinni, sem stungu við fótum, þegar hin omurlegu örlög Tékkóslóvakíu urðu lýðum ljós. En áföllin urðu fleiri. Maðurinn Stalín reyndist ekki ódauðlegur — °g sú varð líka reyndin um hálfguðinn með sama nafni. Núverandi ein- valdi Rússa, maðurinn sem hefur orðið fyrir þeirri reynslu, að eftir að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.