Félagsbréf - 01.03.1961, Page 50

Félagsbréf - 01.03.1961, Page 50
40 FÉLAGSBRÉF hafa sýnt heiminum bráðlifandi tíkarkvikindi, sem kostað hefur tugmilljarða króna að senda út í himingeiminn, að verða að játa fyrir kapítalískri veröld, að nú, eftir 45 ára ráðstjórn, farast menn úr hungri í ríki hans, þar eð 70 milljónir samyrkjumanna í einhverju hinu bezta korn- og kjarngresislandi veraldar, geta ekki framleitt nándar nærri eins mikið af mat og 16 milljónir búandkarla í hinum þrælkapítalísku Banda- ríkjum — maður þessarar grátbroslegu reynslu tók sig lil og afhjúpaði hálfguðinn sem svo harðsvíraðan grimmdarsegg, að veruleikinn reyndist hafa farið langt fram úr því, sem verst hafði verið sagt í auðvaldsheim- inum um ástandið og stjórnarfarið á hinum löngu og örlögþrungnu stjórnarárum Stalíns. íslenzkir kommúnistar höfðu sem sé verið að til- biðja villidýr í mannsmynd, skáldin að lofsyngja sem dýrling einn hinn ægilegasta fjöldamorðingja og frelsisdrep, sem veröldin hefur sögur af! Og svo er það Ungverjaland — þar var hann búinn, svo að segja með upphafinu, draumurinn um að hinn nýi valdhafi gæti orðið þó ekki væri nema hálfdýrlingur! Enn hafði sagan frá því að segja, að blóð saklausra og frelsisunnandi manna hrópaði í himininn. . . . Aftur rétti hann þó af sér, hinn broshýri, skapvargur á veldisstóli Stalíns, þegar hann gaf vonir um glæsilegan árangur af för sinni til Bandaríkjanna og menn horfðu um heim allan með eftirvæntingu til fundar æðstu manna. . . . En að nýju kom í ljós ofurvald kerfisins, kerfisfjötranna — og skór Krústjoffs úi þingsal Sameinuðu þjóðanna svífur enn fyrir sjónum þeirra, sem sjáandi sjá — en Venus-geimskotið glataðist út í ómælið! 7. Og þú spámaður, þú eljusami, já, óþreytandi verkamaður á akri þeirrar paradísartrúar, sem þú tókst ungur, og vissulega hefðir betur lent í raun og sannleika á hinum sama akri og þeir unnu á Fjölnismenn — hvað hefur orðið af hinni voldugu bókmenntahreyfingu, sem þú boðaðir, — sem skyldi sýna, að kommúnistarnir einir geti lýst veruleikanum á sannan og hlutlausan hátt? Hvað um alla hina miklu snillinga heimsbókmennt- anna, sem höfðu skipað sér undir fána Hamars og SigSar eða stóðu nasrri honum — hvað um Norðurlandamennina Ivar Lo-Johansson, Harry Martin- son, Karin Boye, Jan Fridegard, Arnulf Överland, Sigurd Hoel og Helgu Krog, — hvað um Bandaríkjamennina John Dos Passos, Ricard WrigW og Howard Fast, hvað um Ungverjann Arthur Koestler, hvað um ítalann

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.