Félagsbréf - 01.03.1961, Page 54
AGNAR ÞÓRÐARSON:
Broadway 1960
T-jegar talað er um leiklistarlíf í Bandaríkjunum er fyrst og fremst miðað
við Broadway, hina miklu breiðgötu í New York, sem liggur eftir endi-
langri Manhattaneyju, en það er þó einkum þar sem 45. gata sker Broadway
og kringum Timestorg, sem aðal leikhúsaþyrpingin er.
Öll amerísk leikritaskáld eiga sér þann draum að sjá leikrit sín flutt á
Broadway — því það er leiðin til frægðar og frama.
Hér kemur þó ekki fyrst og fremst listrænt mat til greina, heldur hitt,
hvað sé líklegast til vinsælda og gefi þar af leiðandi leikhúseigendum mestan
ábata. Eigendur leikhúsanna hætta ógjarnan tugþúsundum dollara, ef þeir sjá
fram á fjárhagslegt tap. Þá kippa þeir að sér hendinni, svo að oft verður
raunin, að nýstárlegum og athyglisverðum leikritum hlotnast ekki það
hnoss að verða færð upp á Broadway — en eiga sér þá oft griðland í gamla
listamannahverfinu, Greenwich Village.
En strax og höfundurinn hefur getið sér nafn, breiðir Broadway faðm
sinn móti honum.
Amerískt leikrit koma sjaldnast beinustu leið á Broadway, heldur hafa
þau áður verið leikin í nálægum borgum, svo sem Boston, New Haven og
Washington, lagfærð og sorfin til. Sum deyja á leiðinni og komast aldrei
til fyrirheitna landsins. Daufar undirtektir leikhúsgesta og misjafnir dóm-
ar í blöðum grannborganna hafa varað Broadway við hættunni.
En þau sem komast alla leið, eiga þó enn einn hreinsunareld eftir, sem
oft vill svíða utan af þeim skrautklæðin, en það eru dómar gagnrýnenda
stórblaðanna í New York. Sitja þar í öndvegi Walter Kerr og Brooks Atkin■
son og drottna áþekkast duttlungafullum örlaganornum yfir framtíð og
framaferli leikara sem höfunda.
Walter Kerr skrifar í New York Herald Tribune, en Brooks Atkinson
skrifaði leikdóma til skamms tíma í New York Times. Þeir hafa lengi ritað i
þessi b!öð, eru ómyrkir í máli, enda hafa dómar þeirra iðulega drepi^