Félagsbréf - 01.03.1961, Síða 58

Félagsbréf - 01.03.1961, Síða 58
48 FÉLAGSBRÉF Undanfarin 9 ár hefur þó ekkert leikrit birzt eftir hana, og var því beðið eftir þessu með mikilli eftirvæntingu, enda er sýnilegt, að hún hefur ekki kastað til þess höndum. Leikritið fjallar um tvær ógiftar systur á fimmtugsaldri, sem búa í forn- fálegu húsi í New Orleans. Þær hafa fórnað sér fyrir bróður sinn, sem hefur drabbað og svallað, en hefur nú fyrir ári gengið að eiga dóttur ríkrar ekkju og flutzt með henni til Chicagó. Systurnar ráðgera að fara í langþráða Evrópusiglingu, en allt í einu skýtur bróðurnum upp með konu sína og hefur nú fullar hendur fjár. Hann eys óhóflegum gjöfum yfir þær og vill bæta þeim upp, hvað þær hafa alla tíð fórnað sér fyrir hann. En systrunum hugnast ekki að .þessum snöggu umskiptum og kæra sig lítið um gjafir hans, trúa ekki að allt geti verið með felldu. Mágona þeirra, barnaleg og einföld, kemur líka við sögu, móðir hennar dularfull og torræð og elskhugi móðurinnar, stórlyndur og göfugmannleg- ur negri. Þetta er undarlegt fólk, og þegar Lillian Hellman sýnir manni undir yfirborðið, koma ýmsir gallar og brestir í ljós. Hún sýnir yfirleitt sjaldan bjartari hliðar manneðlisins, en henni tekst þó alltaf að lýsa upp sviðið með kímni og leiftrandi mannþekkingu. Systurnar gera upp sakirnar hvor við aðra, sú eldri brigzlar þeirri yngri um að laðast af holdlegum fýsnum að bróður sínum, en hvorug þeirra þolir að sjá hann frjálsan og óháðan þeim, enda fer svo, að ráðagerðir bróður þeirra fara út um þúfur, og á kona hans þar nokkra sök, því hún vill ekki, að maður hennar hugsi um annað en skemmta henni í rúminu. Lífshamingja systranna fólst í áhyggjum og sjálfsfórn fyrir bróðurinn. Þetta fólk getur að ýmsu leyti minnt á persónur Tennessee Williams, þó að um bein áhrif sé varla að ræða. Leikrit þeirra gerast á svipuðum slóðum og fólkið, sem þau lýsa, er veiklað og sjúkt. Aftur á móti eru átökin á milli persóna Tennessee Williams miklu beinm og einfaldari en hjá Lillian Hellman. Leikur Maureen Stapleton í hlutverki yngri systurinnar þykir mikiÓ afbragð. Leikritið er búið að ganga í níu mánuði, en hér er reiknað með, að meðalleikrit þurfi að ganga a.m.k. sex mánuði til að geta borið sig- Meðal-kostnaður er áætlaður um 125 þúsund dollarar.

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.