Félagsbréf - 01.03.1961, Page 59
félagsbréf
49
Nokkur leikrit hafa verið sýnd á Broadway yfir þrjú þúsund sinnum. Efst
eru Life witli Father meS 3224 leiksýningar og Tobacco Road 3182. Gaman-
leikurinn The Best Man var frumsýndur í vor og gengur enn. Höfundurinn
er Gore Vidal fæddur 1925 í New Yorkríki. Hann stundaði háskólanám við
Exeter Academy og gaf út fyrstu skáldsögu sína þegar hann var 19 ára,
en þekktustu sögur hans eru The City and The Pillar og A Search For
The King.
Á síðari árum hefur hann einkum skrifað fyrir sjónvarp, en fyrsta leik-
rit hans, Visit to A Small Planet, var sýnt á Broadway 1957 og hlaut góð-
ar viðtökur. Er það háði blandinn gamanleikur um mann frá annarri
stjörnu, sem kemur í heimsókn til jarðarinnar og gæti að því leyti minnt
á Sendiherrann frá Júpiter eftir Guðmund Kamban, en hér er enginn boð-
skapur, engin prédikun, aðeins háð og spé, en dofnar þó þegar á leikritið
líður, enda stefnan dálítið óljós.
Gore Vidal segist vera skáldsagnahöfundur í hjarta sínu, en ekki leik-
ritaskáld, en það sé eins með skáldsagnahöfundana og prestana, fólk fáist
ekki lengur til að hlusta á þá. Sjónvarp og kvikmyndir dragi það frá þeim.
The Best Man er háði blandinn gamanleikur um amerísk stjórnmál.
Sjálfur er Vidal kominn af stjómmálamönnum, afi hans var öldungadeild-
arþingmaður og nú við kosningarnar 8. nóvember var skáldið sjálft í fram-
boði í New Yorkríki fyrir Demókrata en náði ekki kosningu.
The Best Man fjallar um innanflokksátök, um útnefningu forsetaefnis,
°g var því mjög tímabært efni á ári forsetakosninga. Leiða tveir keppi-
nautar saman hesta sína. Er annar menntaður og vandaður að virðingu
sinni, en hinn er tillitslaus fantur. Báðir sækjast þeir fast eftir stuðningi
fyrrverandi forseta, sem er kaldrifjaður og útsmoginn og setur hagsmuni
flokksins ofar hagsmunum landsins, en er helsjúkur og deyr, áður en hann
befur látið lóð sitt falla. Hvorugur keppinautanna hlýtur útnefningu, held-
ur ótíndur miðlungsmaður, sem enginn styrr hefur staðið um.
Leikritið er fjörlega samið, en efnisuppistaðan er þó víða í molum og
kemur það æ betur í ljós sem á kvöldið líður.
Á þessu ári hefur Tennessee Williams átt tvö leikrit á Broadway, reyndar
er annað eftirlegukind frá fyrra ári, var frumsýnt 30. janúar 1959 og var
leikið í 375 skipti eða fram á sumar síðastliðið. Heitir það Sweet Bird of
Y°uth, magnað leikrit lilaðið kvöl og ótta. Aðalhlutverkið er ungur maður
af sama sauðahúsi og Blanche í Streetcar Named Disire, kemur hann á