Félagsbréf - 01.10.1962, Síða 25

Félagsbréf - 01.10.1962, Síða 25
FÉLAGSBRÉF 21 skyndilega á fætur og sagði með þjósti: Til þeirra á Irwin Avenue hefur hann ekki skrifaö. Til útlanda skrifaði hann. Ég skal sýna þér bréfið, mótmælti konan. Ég þarf ekkert bréf að sjá. Til þeirra á Irwin Avenue hefur hann ekki skrifað. Og þér skuluð eigi kalla neinn föður yðar á jörðinni, því einn er faðir yðar, hann sem er á himnum, sagði Jesú. Samt skipið þið ykkur undir merki Al- þjóðabandalagsins, — sem er argasta merki djöfulsins. Ég get sagt þér, að ég hef hvorki skipaö mér undir merki eins né neins. Ég er frjáls kona í frjálsu landi! Árið 1918 setti Guð Jehóva Jesú í hásæti, og tilkynnti heimsþjóðunum hann sem konung á jörðinni, og fyrirliggjandi voru gnægðir sannana af spádóms- orðum ritningarinnar að tími Guðs væri kominn til umráða yfir ríkjum jarðar- innar. — Rödd trúboðans skalf nú af geðshræringu. Til að ná valdi yfir henni á ný, staulaðist hann fram í ganginn, steytti vísifingri íraman í konuna, sem hélt á peningnum, og hélt áfram: En þið og klerkastétt hins svonefnda kristin- dóms þjóðanna höfnuðu Kristi, lambinu og ríki hans — og játuðust Alþjóða- bandalaginu. — Hásæti Jehóva og hans réttláta skipulag þar Kristur er höfð- ingi, segir Malakí. Margt hefði betur farið ef þannig hefði orðið, sagði konan og flýtti sér að koma með teppiö, sem nú var orðið þurrt, og fékk það trúboðanum. Ég skal viðurkenna það. Trúboðinn skeytti engu játningu konunnar. Hann batt þegjandi snærinu um töskuna og kassann og hélt út í rigninguna. Ekki hafði trúboðinn lengi gengið þegar hann greindi hlaup að baki sér og skrjáf. í fyrstu skeytti liann því engu, en við dyrnar á fyrsta húsinu sneri hann sér við og sá unglinginn klæddan síðri regnkápu og með sjóhatt á höfði. Og þegar hann kom út stóð unglingurinn viö dyrnar og beið. Trúboðinn lét sem ekkert væri og gekk rakleitt að næsta húsi. Skrjáfið fylgdi honum. Um leið og trúboðinn kom út úr þriðja húsinu sá hann hvar unglingurinn grýtti símastaur. Þá varð hann hræddur. Á milli fjórða og fimmta hússins nam hann skyndilega staðar, vék sér að unglingnum og hrópaði: Farðu burt! Snautaðu burt! Hvað ertu að elta mig! Unglingurinn nam einnig staðar í liæfilegri fjarlægð. í fyrstu brosti hann afkáialega, síðan kom fát á hann. Samt fór hann ekki, heldur staröi á trúboðann skaka hnefana á móti sér. Þegar auðsætt var að unglingurinn ætlaði ekki að fara, gafst trúboðinn upp á ógnunum og sagSi mildri röddu: Komdu hingaS, Sveinn. Var þér sagt að elta mig og ofsækja?

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.