Félagsbréf - 01.10.1962, Blaðsíða 30

Félagsbréf - 01.10.1962, Blaðsíða 30
Abram Tertz: rödd úr myrkviðnum rið 1959 birtust í Frakklandi tvö stutt verk, ritgerð og skáldsaga, eftir óþekkt- x an rússneskan höfund, búsettan í Sovétríkjunum. Verkin birtust fyrst í tímaritum (Réttur er settur í Kultura; Um sósíalrealisma í Esprit), en hafa síðan birzt í bókarformi og verið jjýdd víðs vegar. Um höfundinn er ekkert vitað annað en það sem lesið verður úr verkum hans; handritum hans er smyglað eftir óþekktum leiðum frá Sovétríkjunum til Frakklands. Hann skrifar undir nafninu Abram Tertz; það er sótt í vinsælan stúdentasöng rússneskan, — sem nú hefur verið bannaður. Síðan 1959 hafa enn borizt handrit frá Tertz: síðastliðinn vetur birtust í París fimm „furðusögur“ (Fantasticzeskije Soczinni- eniya; ein þessara sagna, Grýlukertið, birtist í þýðingu í brezka tímaritinu Encounter, febrúar 1962). Bókmenntaviðhorf Abrams Tertz birtast að vonum skýrast í ritgerð hans Um sósíalrealisma; þessi sömu viðhorf standa svo í öðru ljósi í sögu hans, Réttur er settur, þau eru undirstaða og grundvöllur sem hann freistar að byggja á eigin skáldskap. Tertz vísar sósíalrealismanum á bug, hann sé ekki sósíalískur og þaðan af síður raunsæilegur heldur nýuppvakinn klassisismi og skyldastui skynsemisbókmenntum 18. aldar. Þetta kemur raunar heim við þá skoðun að sovétveldið sé beinn arftaki hins forna keisararíkis, að stórveldisdraumar Péturs mikla og annarra Rússakeisara gangi aftur í ílöngun núverandi ráðamanna að „frelsa“ umheiminn til kommúnismans. í Rússlandi hafa bókmenntir ævinlega verið háðar meira eða minna aðhaldi ríkisvalds; sósíalrealisminn, hin opin- bera bókmenntastefna, er núgildandi krafa ríkisins til bókmennta: að þær miði að því að „byggja upp“ kommúnismann, syngja „markmiðinu mikla“ (sem margt er rætt um í báðum bókum Tertz) lofgerðaróð. Maður sem trúir efast ekki, hann rökræðir ekki um eða við guð sinn, lætur sér nægja að lofa verk hans. Núverandi ríkistrú Sovétríkjanna, kommúnisminn, gerir þá kröfu að alll lúti sér, miði að „markmiðinu mikla“: framtíðarsæluríki fullkomnaðs kommún- isma. Þetta er hlutverk bókmenntanna, ekki raunsæileg lýsing samtímans, hvað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.