Félagsbréf - 01.10.1965, Qupperneq 14
leyti um forna sögu og menningararf Ivínverja, en seinni helmingurinn um síð-
ustu hundrað árin og þó fyrst og fremst urn síðustu áratugi, sem skipt hafa
sköpum í allri þróun Kínverja. Höfundurinn, Loren Fessler, er þaulkunnugur
landi og þjóð og hefur fylgzt mjög náið með samtímaþróuninni í Kína, enda
hefur hann lagt stund á kínverska sögu, bókmenntir og stjórnmál um árabih
Bókina um Kína þýddi Sigurður A. Magnússon rithöfundur, en hún var mán-
aðarbók AB í febrúar. Bókin er rúmar 170 blaðsíður að stærð. Texti var prcnt-
aður í prentsmiðjunni Odda, en myndirnar voru prentaðar á Ítalíu og bókin
bundin þar.
Land og lýðveldi I-II eftir dr. Bjarna Benediktsson
I þessu tveggja binda riti birtist úrval eða sýnishorn af ritgerðum, ræðum og
blaðagreinum frá rösklega 30 ára stjórnmálaferli dr. Bjarna Benediktssonar for-
sætisráðherra. Var fyrra bindið mánaðarbók Almenna bókafélagsins í marz, en
síðara bindið ágúst-bók þess. Land og lýðveldi er í megindráttum samtímalýsing
þeirra viðburða, sem hæsl her í sögu íslands á síðustu áratugum, speglar við-
horf þjóðarinnar í sókn og sigrum, en einnig átökin að haki atburðanna. f
fyrra bindi ritsins er ein!;um fjallað um þá þætti þjóðmálabaráttunnar, seni
að öðrum þræði vita út á við. Þar eru m.a. rakin ýmis sagnfræðileg rök sjálf-
stæðisbaráttunnar. í síðara bindinu er að meginhluta rætt um önnur þau mál, sem
varða efnahagslega og menningarlega sérstöðu íslendinga, en þar að auki birt-
ast þar ritgerðir og minningaþættir um nokkra merka íslendinga. Er ekki að
efa, að þeim, sem kynnast vilja grundvallarskoðunum eins áhrifamesta stjorn-
málamanns þjóðarinnar á síðustu árum og viðhorfi hans til helztu þjóðmála a
því skeiði, verður mikill fengur að þessu verki. Hörður Einarsson hefur búið
bæði bindin til prentunar. Fyrra bindið er 287 blaðsíður að stærð, en hið síð-
ara 262 bls. Land og lýðveldi var prentað í Víkingsprenti, en Sveinabókbandið
annaðist bókband.
Klakahöllin eftir Tarjei Vesaas
Aprílbók Almenna bókafélagsins var hin fræga bók, Klakahöllin, eftir Norð
manninn Tarjei Vesaas í þýðingu Hannesar Péturssonar skálds. Tarjei Vesaas
er nú 68 ára að aldri og almennt talinn eitt fremsta sagnaskáld Norðmanna
dag. Klakahöllin er eitt merkasta og bezta verk hans, og fyrir hana voru Vesaa
6 FÉLAGSBRÉF