Félagsbréf - 01.10.1965, Qupperneq 18
I bókmenntaráð AB voru kjörnir: Tómas Guð’mundsson, skáld, formaður,
Birgir Kjaran, forstjóri, Guðmundur G. Hagalín, rithöfundur, Höskuldur Ólafs-
son, bankastjóri, dr. Jóhannes Nordal, bankastjóri, Kristján Albertsson, rithöf-
undur, Matthías Jóhannessen, ritstjóri, dr. Sturla Friðriksson, jurtaerfðafræðing-
ur og Þórarinn Björnsson, skólameistari.
Aðalfundur Stuðla hf., styrktarfélags AB, var haldinn að loknum aðalfundi
bókafélagsins. Gerði framkvæmdastjóri félagsins, Eyjólfur K. Jónsson, grein
fyrir hag félagsins og starfsemi. Greindi hann frá fyrirhuguðum framkvæmdum,
þ.á.m. byggingu þriggja liæða ofan á hús félagsins í Austurstræti 18, sem mun
verða fokhelt á þessu hausti, en AB mun flytja þangað skrifstofur sínar fyrri hluta
næsta árs. 1 stjórn Stuðla hf. voru kosnir: Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, forin.,
Halldór Gröndal, framkvæmdastj., Kristján Gestsson, stórkaupmaður, Loftur
Bjarnason, útgerðarmaður, og Magnús Víglundsson, forstjóri.
10 FÉLAGSBRÉF